Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1985, Qupperneq 8
8
DV. MANUDAGUR 3. JUNI1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Herferdmistókst
Herferð suöur-afrískra víkinga-
sveita langt inni i Angóla i síðasta
mánuði hefur skaðað mjög
hlýjustefnu Bandaríkjanna gagn-
vart Suður-Afríku en ekki er búist
við að herferðin muni valda stefnu-
breytingu Bandaríkjastjórnar.
Suður-Afríka segir að ferð sveita
sinna hafi verið i njósnatilgangi.
Angóla segir að sveitimar hafi
farið til að valda spjöllum á olíu-
stöðvum bandarískra fyrirtækja í
Angóla.
Tveir suður-afrískir hermenn
fórust í herferðinni og Angólamenn
tóku einn til fanga.
Löggafærvöld
Finnska þingið íhugar nú lög sem
myndu gefa lögreglu vald til að
handtaka næstum hvern sem er frá
miðjum júlí til loks þessa árs.
Astæöan er sú aö i ágúst munu
utanríkisráðherrar frá 35 Evrópu-
þjóðum, og Bandaríkjunum og
Kanada, koma til Helsinki til að
taka þátt í 10 ára afmæli
Helsinkisamkomulagsins um
öryggi og mannréttindi í Evrópu.
Ýmsir útlagahópar frá Eystra-
saltsríkjunum þrem, sem Sovétrík-
in innlimuðu í síðari heimsstyrjöld-
inni, hafa skipulagt víðtæk mót-
mæli vegna sáttmálans.
Samkvæmt lögunum má lögregla
handtaka alla þá sem teljast
grunsamlegir”.
Sharonívanda
Ariel Sharon, hinn hægrisinnaöi
fyrrum landvarnarráðherra lsra-
els, er á ný kominn í vandræði. Nú
hefur dagblað í Israel upplýst að
hann hafi ekki sagt ríkisstjóminni
frá því að við heræfingar sem Isra-
elsher hélt fyrir innrásina í Liban-
on hefði komið í ljós að Israel gæti
ekki náð takmarki sínu með innrás-
inni. Heræfingamar sýndu að Isra-
elsmenn myndu lenda gegn
Sýrlendingum í Austur-Líbanon og
hljóta mikið mannfall, sem og varð
raunin.
Sharon segir þetta allt lygi.
Sorgáftaiíu
Sorg ríkti í Italíu í dag vegna Ital-
anna sem fórust í óeirðunum á
knattspymuleikvanginum i
Brussel. Lík Italanna sem fórust
era öll komin til Italíu. Þar verða
þau krufin og síðan grafin í heima-
bæjum þeirra.
Einnar mínútu þögn var fyrir-
skipuð á öllum knattspymuleikjum
á Italíu í gær.
Grísku kosrímgarnar.
Papandreou sigraði
—f ékk hreinan meirihluta
Sósialistaflokkur Andreasar Papan-
dreou forsætisráðherra sigraði í þing-
kosningunum í Grikklandi í gær. Þegar
búiö var aö telja um 50 prósent at-
Skera upp herör
gegn skríislátum í
knattspymunni
Breska stjómin hefur brugðist viö
fréttum um keppnisbann breskra
félagsliða með því að lýsa yfir að bann-
tímabilið verði notað til þess aö kveða
niöur skrílmenninguna í knattspyra-
unni.
Talsmaður Thatcher forsætisráö-
herra sagði að hún væri ákveðin i að
tíminn yrði notaður til þess aö hreinsa
enska knattspyrnu af skrílslátum
áhorfenda.
John Smith, formaður knattspymu-
félags Liverpool, sem lék gegn Juvent-
us í Brassel þegar ósköpin dundu yfir,
fagnaði ákvörðun Evrópusambands-
ins. Sagði hann að bannið hlyti að ýta
viö enskum knattspyrnufélögum að
koma reglu á hjá sér.
Lögreglan i Liverpool hefur sett hóp
lögreglumanna til þess að finna þá er
tóku þátt í óeirðunum í Brussel. Þeir
eiga yfir höfði sér að veröa framseldir
til Belgíu eöa Italiu til þess að sæta
ábyrgö vegna gerða sinna.
Eitt bresku blaðanna heldur því
fram að fréttamaður þess hafi séð til
áhorfanda í rauðri Liverpool-peysu
skjóta af byssu en belgíska lögreglan
fann tóm skothylki á áhorfendapöllun-
um.
Real Madrid, sem er Evrópubikar-
hafi, hefur boðist til þess að ágóði af
einum leikja liösins renni til þeirra
sem slösuðust í Brussel.
kvæöa haföi Pasok, flokkur sósíalista,
fengið 46,4 prósent atkvæða, sem gefur
161 þingsæti, en Nýtt lýðræði, ihalds-
flokkur Mitsotakisar, fékk 40,2
prósent, sem gefur 126 sæti. Alls era
300 þingsæti. Allt bendir þvi til aö
stjómarflokkurinn fái hreinan meiri-
hluta og þurfi ekki aö reiða sig á
stuðning kommúnista, eins og óttast
hafði verið.
Sovétsinnaði kommúnistaflokkurinn
fékk 10 prósent atkvæða, sem gefur 12
sæti, og Evrópukommúnistaflokkur
fékk 1,8 prósent, sem gefur eitt sæti.
Efnahagsmál vora aðalmál kosning-
anna. Papandreou lofaði að halda
áfram uppbyggingu sinni á félags-
málasviðinu. Talið er að hann muni
halda áfram að verja miklum
fjármunum í heilsugæslu, menntun og
ríkisrekstur hvers konar.
Stjóm hans samdi við Bandaríkin
um fimm ára framlengingu herstööva-
samnings ríkjanna, og Papandreou
hefur sagt að þegar samningurinn
renni út 1988 muni herstöðvamar
hverfa.
Papandreou hefur oft komið með
yfirlýsingar óþægilegar NATO. Hann
var fylgjandi því þegar Pólverjar
bældu niður verkalýðssamtökin
Einingu með herlögum, hann er á móti
stefnu Bandaríkjanna í Mið-Ameríku
og hann er á móti uppsetningu stýri-
flauga í Evrópu.
Papandreou þykir hafa komið fram
af óbilgimi i samskiptum við Tyrki.
Siðar í dag er búist við að Papandreou
hitti Sartzetakis forseta til að undirbúa
eiötöku hinnar nýju ríkisstjómar
sinnar.
Flutningavandræði
Frá Gunnlaugl A. Jónssyni, frétta-
rltara DVI Svíþjóð:
Tuttugu þúsund sænskir bændur úr
öllum landshlutum tóku í gær þátt í
mótmælum í Stokkhólmi gegn land-
búnaðarstefnu ríkisstjórnarinnar.
Þetta eru fjölmennustu mótmæli
bænda í Svíþjóð síöan 1914 en þá leiddu
mótmælin til þess að ríkisstjómin varð
aðsegjaaf sér.
Nú krefjast bændumir afsagnar
landbúnaðarráðherrans, Svante Lund-
kvist, sem tók mótmælunum af
stillingu og sagðist ekki aðeins gæta
hagsmuna bænda heldur einnig neyt-
enda.
öll umferð um miöborg Stokkhólms
stöövaðist i rúma tvo tíma í gær vegna
mótmælanna.
Bangladesh:
Ottast kóleru-
faraldur á ham-
farasvæðunum
Að minnsta kosti 46 manns á flóða- því er virðist af kóleru eftir að drekka
svæðunum i Bangladesh hafa farist, að eitrað vatn.
Nú er óttaat afl kólerufaraldur kunnl að gjóaa upp é flóflaavasflunum.
Indverski forsætisráðherrann, Rajiv
Gandhi, og forseti Sri Lanka, Junius
Jayewardene, sem vora að ráðleggja
að fara til hamfarasvæðanna í gær,
sögðu aö menn óttuöust að mikill kól-
erufaraldur væri um það bil að brjót-
astút.
Flugvélar hafa undanfarna tíu daga
dreift bleikiefni yfir svæðin til að
minnka fnykinn frá rotnandi líkum. Nú
er talið að alls hafi um 10.000 manns
farist af völdum flóðbylgjunnar 24.
maí.
't&flúni Boikn*
Fínar ferðir í þrjár vikur á eina vinsaelustu strönd Spánar:
Hvítu ströndina.
Brottfarardagar: 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10
Beint leiguflug og góð gisting á hótelum (með eða án fæðis)
eða í íbuðagistingu. Islenskir fararstjórar.
Benidorm býður upp á fjölbreytta afþreyingu af öllu tagi: Verðdæmi: (búðagisting frá kr. 23.910.-pr. m.
Næturklúbba, diskotek, alþjóðlega veitingastaði, kaffihus, Hjón i íbúð með tvö börn frá kr. 17.932,-pr.
skemmtigarða tívolí, golfvelli, sjóskíði, dýragarð . .. miðalda- ^ t _ „n/c ,„/•? ,n 0, /0 ,,/„ 0/,,
veislu. Éitthvað fyrir alfa.
I
BJARNI DAGUR/AUGL TflKNISTOfA
FERÐAMIDSTOÐIN
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133