Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1989, Page 12
12
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1989.
RobertDeNiro CharlesGrodin
A tough bouztfy hunter. A serisítive cráninal.
Thts could b« the beginning of
a beButífui frterulshlp
i ese
! FROM THH DIRECTOR OF “BEVHRLY HIIXS COE' video
BOÐSMÓT
TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1989
hefst að Grensásvegi 46 miðvikudag 31. maí kl. 20.
Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi þannig:
Umferð:
1. miðvikudag 31. maí kl. 20.00
2. föstudag 2. júní kl. 20.00
3. mánudag 5. júní kl. 20.00
4. miðvikudag 7. júní kl. 20.00
5. föstudag 9. júní kl. 20.00
6. mándag 12. júní kl. 20.00
7. miðvikudag 14. júní kl. 20.00
Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu.
Umhugsunartími er 1 'A klst. á fyrstu 36 leikina en
síðan 'A klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni. Engar
biðskákir.
Skráning þátttakenda fer fram í síma Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20-22. Lokaskráning verður þriðjudag
30. maí kl. 19-22.
Taflfélag Reykjavíkur, Grensásvegi 44-46, Reykjavík
Símar 8-35-40 og 68-16-90
KEMUR ÚT 31. MAÍ ’89.
Útlönd
Mannræningi
handtekinn
Maður, sem grunaður er um að Belgíu, var handtekinn í Brasilíu á
hafa skipuiagt eitt fuilkomnasta laugardag. Hinn 37 ára Patrick Hae-
mannrán sem framið hefur verið í mers, sem grunaður er um aðild að
Grunaður mannræningi, Patrick Haemes, kyssir eiginkonu sina Denise
Tyack. Haemes er grunaður um að hafa skipulagt ránið á fyrrum forsætis-
ráðherra Belgíu, Boeynants. Símamynd Reuter
ráninu á fyrrum forsætisráðherra
Belgíu, Paui Vanden Boeynants, var
handtekinn ásamt eiginkonu sinni
og vitorðsmanni í Brasilíu þegar
hann var að reyna að hringja í ætt-
ingja í Belgíu. Lögregluyfirvöld í
Brasilíu óttast að tveir vitorðsmanna
Haemes hafi sloppið og yfirgefið
landið.
Boeynants var sleppt í febrúar-
mánuði eftir að hafa verið í haldi
mannræningjanna í um mánuð. Fjöl-
skylda hans greiddi lausnargjald að
upphæð 1,5 milljónir dollara að sögn
Haemes.
í samtali við Reuters-fréttastofuna
í gær sagði Haemes að hann hefði
ákveðið að ræna Boeynants þar sem
bankarán og önnur viölíka rán hefðu
reynst ofbeldisfull. Hann neitaði því
að hafa nokkur pólitísk tengsl við
öfgahópa og sagðist hafa ákveðið að
ræna Boeynants eftir að hafa lesið í
dagblöðum að hann væri auðugur.
Talsmaður lögreglu sagði að Hae-
mes og glæpaklíka hans væru grun-
aðir um 13 rán. Hann sagði átta
manns hafa látið lífið í þessum rán-
um. Haemes hefur verið á flótta und-
an lögreglu í tvö ár eða frá því hann
slapp úr vörslu hennar. Hann verður
framseldur til Belgíu. Reuter
Neyðaraðgerðir í Argentínu
Raúl Aifonsín, forseti Argentínu,
tilkynnti í gær um harðar aðgerðir í
efnahagsmálum til að reyna að
bjarga nær gjaldþrota ríkisbúinu.
Aðgerðir forsetans fela í sér m.a.
hærri skatta og niðurskurð í útgjöld-
um ríkisins.
Argentína rambar á barmi gjald-
þrots. Sérfræðingar spá því að verð-
bólga í júní fari yfir 100 prósent og
haili ríkissjóðs eykst stöðugt. Kaup-
máttur launa hefur hrunið og í kjöl-
farið hafa mikil mótmæli brotist út.
Forsetinn sagði í gær að fylgst yrði
náið með verðlagi í landinu. Hann
tilkynnti aö í neyðaraðgerðunum
væri gert ráð fyrir auknum atvinnu-
leysisbótum og hækkun fjölskyldu-
bóta.
Mikil óvissa ríkir nú í Argentínu,
ekki síst í kjölfar forsetakosninga
sem fram fóru fyrr í þessum mán-
uði. Frambjóðandi stjómarflokksins
tapaði fyrir Carlos Menem, fram-
bjóðanda Perónista. Samkvæmt lög-
um eiga stjórnarskipti ekki að eiga
sér stað fyrr en í desember en Alfons-
ín og Menem hafa rætt um að þau
eigi sér stað fyrr. Á þriðjudag ákvað
Alfonsín aftur á móti að hann myndi
sitja þar til kjörtímabili hans lýkur.
Um helgina vöktu nokkrir stjóm-
málamenn í Argentínu athygli á
möguleikanum á að umræðurnar
hefjist á nýjan leik.
Reuter
JÚNfTILBŒ)
Kr. 1080.- gistinótt pr. mann í 2ja manna herbergi ef keyptar eru 4
nætur eða fleiri samtímis. Dvelja má t.d. 4 nætur á einum stað eða 1 nótt á
hverju hóteli. Morgunverður er ekki innifalinn. Gistingu má aðeins panta með
tveggja daga fyrirvara eða skemmri. Edduhótelin bjóða alla veitingaþjónustu frá
morgni til kvölds. Eddutilboðið gildir frá 10. til 30. jýní og 10. til 31. ágúst.
Allar nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Islands sími 25855
Q
£
8