Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1994, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
Fréttir
Fyrir hvað eru átjánmerniingarnir í stóra fíkniefnamálinu ákærðir?
Veigamestu sakborning-
arnir neita sínum hlut
- þrettán af átján mættu 1 gær til að gefa yfirlýsingu um ákæruna
Þeir tveir sakbomingar sem fá
þyngstu sakargiftirnar í ákærunni í
stóra fíkniefnamálinu neituðu að
mestu leyti því sem þeim er gefið að
sök við þingfestingu málsins fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Þrettán af átján sakbomingum
mættu til þess að gera dóminum
grein fyrir hvort þeir samþykktu efni
ákæmnnar á hendur þeim. Misjafn-
lega mikið var viðurkennt.
Dómarinn gaf út handtökuskipun
á hendur einum aðila sem mætti
ekki fyrir dóminn í gær en hann er
staddur í Bandaríkjunum. Tveir sak-
borninganna, sem em búsettir í Sví-
þjóð, mættu heldur ekki.
26 kíló af hassi og 4,4 af am-
fetamíni
Samkvæmt upplýsingum DV er
sakbomingum raðað upp í ákæm-
skjah með hliösjón af vægi alvarleika
meintra brota þeirra. Ólafi Gunnars-
syni, 38 ára, sem fyrstur er nefndur
í ákæm, er gefiö að sök að hafa stað-
ið að innflutningi á um 26 kílóum af
hassi og um 4,4 kílóum af amfetamíni
frá maí 1992 fram í júlí 1993. Hann
er ákærður fyrir að hafa í félagi við
aðra verið frumkvöðull og aðalskipu-
leggjandi og lagt tii megnið af því fé
sem til þurfti. Olafur hefur neitaö að
langmestu leyti því sem honum er
gefið að sök en þó hefur hann viður-
kennt að hafa lagt til fé til annarra,
án þess þó að það hafi beinlínis verið
ætlað til fíkniefnakaupa.
Þorgeir Jón Sigurðsson mætti við
þinghaldið í gær. Honum, eins og
Ólafi, er gefið að sök ýmislegt sem
varðar skipulag á innflutningi mikils
magns af fikniefnum. Þannig er hann
m.a. ákærður fyrir að hafa keypt
fiknieíni sjálfur erlendis og fengið
ýmsa aðila til að flytja hass og am-
fetamín til íslands og aðstoðað þá
með ýmsum hætti. Þorgeir Jón sagði
við þinghaldið í gær að meginhluti
þeirra sjö ákæruatriða sem honum
eru gefnar að sök eigi ekki við rök
að styðjast.
Handtökuskipun og skjalafals
Helgi Ólafsson, 27 ára, kom ekki
fyrir dóminn í gær. Honum er gefið
að sök að hafa með ýmsum hætti
staöið aö innflutningi á rúmlega 17
kílóum af hassi og um 2,4 kílóum af
amfetamíni, auk skjalafals sem snýr
að því að hafa gefið upp nöfn ann-
arra á gjaldeyrisumsóknir.
Jóhann Tómas Zimsen, 26 ára, sem
er búsettur í Svíþjóö, mætti heldur
ekki í gær. Ákæran á hendur honum
er í fimm liðum þar sem honum er
gefið að sök að hafa staðið að inn-
flutningi á um 11 kílóum af hassi og
um 2 kílóum af amfetamini.
Þorsteinn Sæmundsson, 44 ára,
viðurkenndi í megindráttum í gær
sakargiftir ríkissaksóknara á hendur
honum - að hafa í fjögur skipti verið
meira og minna viðriðinn innflutn-
ing og að hluta til sölu á rúmum 7
kílóum af hassi og um 1,3 kílóum af
amfetamíni.
Guðlaugur Tryggvi Stefánsson, 33
ára, sem einnig er búsettur í Svíþjóð,
mætti heldur ekki fyrir dóminn í
gær. Hann er ákærður fyrir að hafa
flutt inn og reynt að flytja inn sam-
tals rúm 7 kíló af hassi og um 1,5
kíló af amfetamíni.
Dómurinn gaf í gær út handtöku-
skipun á Guðmund Gest Sveinsson,
39 ára, sem hefur lögheimili í Reykja-
vík. Hann er sagður staddur í Banda-
ríkjunum og er óljóst hvort eða hve-
nær hann mætir fyrir héraðsdóm.
Guðmundi er gefið að sök að hafa í
þijú skipti staðið aö innflutningi á
samtals rúmlega 7 kílóum af hassi
og rúmu kílói af amfetamíxú.
Viðurkenningar og afneitanir
Jónas Páll Guðlaugsson, 45 ára,
viðurkenndi aö miklu leyti það sem
hann er ákærður fyrir - að hafa í
þrjú skipti flutt inn tæp 6 kíló af
hassi og 500 grömm af amfetamíni.
Herbjöm Sigmarsson, 30 ára, við-
urkenndi að mestu leyti sakargiftir
um að hafa flutt 5,8 kíló af hassi og
200 grömm af amfetamíni til landsins
í eitt skipti og nokkm síðar lagt fé
til kaupa á talsverðu magni af fikni-
efnum.
Amar Reynisson, 29 ára, viður-
kenndi í stómm dráttum sinn þátt í
ákærunni sem fólst að mestu leyti í
að flytja inn 2,3 kíló af hassi og
300-500 grömm af amfetamíni, auk
annarra brota.
Eftirgreindir aöilar mættu allir fyr-
ir dóminn í gær, að undanskildum
þeim síðastnefnda. Þeim er gefinn að
sök innflutningur, sala eöa önnur
brot á fikniefnalöggjöfinni sem em
tahn vega heldur minna en brot
þeirra sem að framan era taldir.
Þeir em Vilhjálmur Svan Jóhanns-
son, 47 ára, og Jóhann Jónmundsson,
51 árs, sem viðurkenndu að mestu
leyti sinn þátt í málinu. HaUdór Mar-
geir Ólafsson, 25 ára, og Inga Áma-
dóttir neituðu því sem þeim var gefið
að sök. Einar Guðjón Einarsson, 24
ára, og Knútur Arnar Hilmarsson,
41 árs, viðurkenndu aö miklu leyti
þeirra hluta, Jónasína Þórðardóttir,
51 árs, viðurkenndi ekki ákæraatriði
á hendur henni en Ólafur Jóhanns-
son, 41 árs, mætti ekki eins og áður
segir. -Ótt
Alþjóölega danskeppnin 1 Blackpool:
íslenskir dansarar komast í úrslit
íslensku pörin í alþjóðlegu dans- era að gera það gott þessa dagana
keppninni í Blackpool í Englandi enda hafa þau náð góöum árangri
íslendingar hafa náð góðum árangri i danskeppninni i Blackpool í Eng-
landi og má sem dæmi nefna að Sigursteinn Stefánsson og Elísabet
Sif Haraldsdóttir komust í undanúrslit í flokki 12-15 ára i suður-amerisk-
um dönsum. Hér sjást þau í frjálsum dönsum.
í þessari danskeppni sem er ein sú
stærsta og sterkasta sem haldin er
í heiminum fyrir böm og unglinga.
Tæplega 200 manna hópur Islend-
inga fór á danskeppnina í Black-
pool í byijun mánaöarins, þar af
um 40 pör, og er von á þeim heim
eftir helgina. Alls taka 137 pör þátt
í keppninni.
Sigursteinn Stefánsson og Elísa-
bet Sif Haraldsdóttir hafa nú þegar
komist í undanúrslit í flokki 12-15
ára í suður-amerískum dönsum og
er það besti árangur sem íslenskir
dansarar hafa náð í þessum aldurs-
flokki í Blackpool. Hafsteinn Jón-
asson og Laufey K. Einarsdóttir era
fyrsta íslenska dansparið sem hef-
ur komist í úrsht í flokki 11 ára og
yrigri, auk þess sem Sólrún Dröfn
Bjömsdóttir og Elvar Þór Gíslason
hafa komist í tólf para undanúrslit
í enskum valsi, svo nokkur dæmi
séu nefnd.
„Það er gríðarlega hörð sam-
keppni í þessari danskeppni því
þama koma saman sterkustu pörin
í heiminum. Ég segi stundum að
þetta sé óopinber heimsmeistara-
keppni. íslensku pörin hafa náð
geysilega góðum árangri en við
bindum mestar vonir við keppnina
í dag því að þá getum við átt von á
aö nokkur pör komist í úrsUt,“ seg-
ir ,Stefán Guðleifsson fram-
kvæmdastjóri.
-GHS
Ákæran á hendur Ólafi Gunnarssyni er i 13 liðum. Hann neitar að lang-
mestu leyti öllu því sem honum er gefið að sök. Ólafur sést hér, með sól-
gleraugu, i fylgd rannsóknarlögreglumanns i gær. DV-mynd ÞÖK
Ágreiningur í fyrsta þinghaldinu í stóra fíknie&iamálinu:
Ákærðu fá ekki að
sjá framburði hinna
- sækjandi notfærir sér heimild til aö hindra sammæli
Veijendur hinna átján ákærðu
sakbominga í stóra fíkniefnamálinu
kröfðust þess í gær að dómari máls-
ins tæki afstöðu til þess hvort ríkis-
saksóknara væri heimilt að koma í
veg fyrir að sakbomingar fengju að
kynna sér skjöl málsins íyrr en að
loknum dómsyfirheyrslum yfir
hverjum og einum. Þetta þýðir að
sakbomingar fá ekki upplýst, a.m.k.
ekki með formlegum hætti, hveijir
framburðir annarra en þeirra sjálfra
hljóðuðu við lögreglurannsókn. Verj-
endur telja umrætt fyrirkomulag
ekki standast ákvæði mannréttinda-
sáttmálans.
Lagaheimild sem ríkissaksóknari
notfærir sér í þessu sambandi miðast
að vissu leyti við að koma í veg fyrir
að sakbomingar breyti eigin fram-
burði fyrir dómi eftir að hafa kynnt
sér hvað hinir bára við lögregluyfir-
heyrslu.
Við þingfestingu málsins í gær lýsti
Guðjón St. Marteinsson því yfir að
hann mundi úrskurða í þessu ágrein-
ingsmáli og er reiknaö með að niður-
staða fáist eftir helgina.
Ákveðiö var að dómsyfirheyrslur
yfir sakborningunum hæfist þann 2.
maí og er gert ráð fyrir að réttarhöld-
in muni standa yfir í 2-3 vikur.
Þrettán af átján sakborningum
mættu við þinghaldið í héraðsdómi í
gær.
-Ótt