Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1994, Page 11
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
11
Atvinnuleysið er komið til að fara:
Erum litlir strákar
- að leika okkur- Bubbi og KK spila saman á tónleikum í Borgarleikhúsinu
Bubbi og KK hittast reglulega til að kjafta, spila og bulla sér til skemmtun-
ar en segjast ekki hafa nein plön um útgáfu á sameiginlegu efni. Hins
vegar hafi komið upp sú hugmynd að fara saman i túr um landið.
DV-mynd ÞÖK
„Ég vil leggja mitt af mörkum í
krafti þess aö ég er listamaður og
þekktur. Viö breytum engu en at-
vinnulaus maður getur veriö reiöur
og málið er að virkja þá reiði á sem
jákvæðastan hátt. Það er pólitíkus-
anna að leysa atvinnuleysið en við
komum inn í málið að sameina þetta
fólk sem er atvinnulaust og fá það
til að beijast og gefast ekki upp,“
segir Bubbi Morthens en hann og
KK ætla að halda tónleika á mánudag
í Borgarleikhúsinu til styrktar at-
vinnulausum.
„Atvinnuleysingjar eru minni-
hlutahópur sem er falin í þjóðfélag-
inu,“ segir Kristján Kristjánsson.
„Hópurinn er tiltölulega lítill ennþá
og það þykir skammarlegt og niður-
lægjandi að vera atvinnulaus. Fólk
missir sjálfsvirðinguna og reynir
frekar að fela sig. Það er eitt að vera
atvinnulaus en þá verður fólk að fá
nægan pening til þess lifa af. Það eru
smánarbætur greiddar til atvinnu-
lausra í dag.“
Sameiginleg lög í
fyrsta sinn opinberlega
Á tónleikunum á mánudag ætla
KK og Bubbi meðal annars að spila
lög sem þeir hafa verið að búa til í
sameiningu. Þetta er í fyrsta sinn
sem þeirra sameiginlegu lög koma
fyrir hlustir almennings en þeir hafa
starfað öðru hvor saman í gegnum
árin.
„Við höfum hoppað inn í gigg hjá
hvor öðrum á mjög óformlegan hátt
og við spiluðum undir á plötu með
Bubba,“ segir KK og Bubbi minnir
hann á sjónvarpslagið þeirra.
Samstarf þeirra á tónhstarsviðinu
hefur staðið í mörg ár.
„Við erum bara hthr strákar að
leika okkur. Við tveir og Þorleifur
Guðjónsson höfum verið að hittast
öðru hvoru.undanfarin tvö ár, engin
pressa og engin plön. Okkur þykir
bara svo gaman að hittast og taka
lagið saman."
Bubbi segir að þeir hittist á öðrum
forsendum en aðrir músíkantar sem
koma aðeins saman til að gera lög
og gefa út.
„Við sitjum og rifjum upp sögur af
okkur í gamla dag, kjöftum, spilum
í klukkutíma og buhum. Þetta erum
við búnir að gera í nokkum tíma og
köhum okkur kahaklúbb. Við eigum
bunka af lögum en erum ekkert að
stressa okkur á því að gefa þau út.
Við höfum þó talað um að það væri
gaman að fara saman í túra um land-
ið með þetta efni. Það gerum við bara
einhvern daginn, kannski eftir tíu
ár eða eitt ár.“
Ekki vhja þeir viðurkenna að plata
sé í bígerð hjá þeim enda eru þeir
samningsbundnir sinn hjá hvoru út-
gáfufyrirtækinu. Þeir halda þeirri hug-
mynd opinni sín á mihi en segjast núna
bara hafa ánægju af samstarfinu án
nokkurraskuldbindinga. -JJ
6 daga rýmingarsala
30% afsláttur af öllum vörum
Fatnaður við allra hæfi - við höfum yfirstærðirnar
Kynnið ykkur okkar hagstæða verð
nmr
pu
aðcjott
í fallegri möppu
Kostir þess að fá þér „ Gerðu það goti' möppu
fyrir uppskriftirnar þínar eru fleiri en einn:
• Þú hefur alla bæklinga Tilraunaeldhúss MS
á einum stað
• Mappan er falleg, handhæg og af hentugri stærð
| fyrir alla bæklingana
• í möppunni eru grunnupplýsingar um mál,
1 vog og ýmis góð ráð
• Hún kostar aðeins 490 kr
Já takk!
□ Eg vil fá senda safnmöppu MS í póstkröfu
□ Ég óska eftir því að uppskriftarbMingar MS
númer------------------ fylgi möppunni.
Utanáskrijtin er: Tilraunaeldhús MS, Pósthólf10340, 130 Reykjavík.
NAFN
Búðin, Bíldshöfða 18
Sími 91-879010
Fax 91-879110
Opið: mán.-föst. 9-18
laugard. 10-16
KENNITALA
HEIMILIS F A N G
PÓSTNÚMER STAÐUR
,99,,
MYNDBOND
hVlKW'íMOlB
TlV*f.mT éHUCfcröl-KS
sem hittir í mark
Bíómyndir og myndbönd er tímarit áhugafólks um kvikmyndir og
eina tímarit sinnar tegundar á íslandi. Blaðið er allt í lit, glæsilegt í
útliti og er í dag prentað í 45.000 eintökum samtals þ.e.:
A-blaðið Prentað í 5.000 eintökum og sent til áskrifenda og í
lausasölu. inniheldur B og C blöðin.
B-blaðið Prentað í 20.000 eintökum og dreift frítt í
kvikmyndahúsum.
C-blaðið Prentað í 20.000 eintökum og dreift frítt á mynd-
bandaleigum.
Bíómyndir & myndbönd er því kjörinn vettvangur til að kynna og
auglýsa vöru og þjónustu. Petta er blað sem hittir beint í mark.
Áskriftar-og ouglýsingosími 162 80