Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1994, Blaðsíða 28
36
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
Siguröur
Sveinsson ;
(Kristján Ágústsson 43)
DV
Iþróttir
Lokaslagurinn
- 8-liða úrslitin í handboltanum hefjast á þriðjudagskvöldið
Lokaslagurinn um íslandsmeist-
aratitilinn í handknattleik karla
hefst á þriðjudagskvöldið. Átta efstu
Uð 1. deildar leika útsláttarkeppni
um titilinn, eins og síðustu ár, og
íslandsmeistarar verða krýndir eftir
þriggja til fimm leikja einvígi tveggja
bestu hðanna í fyrstu vikunni í maí.
Sjaldan hefur verið jafn erfitt að
spá fyrir um meistara og nú því
mörg lið virðast eiga möguleika á titl-
inum. Besta dæmið um jafnræðið í
deildinni í vetur er að liðin sem urðu
í 5.-8. sæti náðu öll hagstæðri út-
komu úr tveimur leikjum sínum við
andstæðinga sína í 8-liða úrslitunum
sem þó voru í fjórum efstu sætum
deildarinnar.
í 8-liða úrslitum þarf að vinna tvo
leiki til að komast áfram og þar
mætast eftirtalin lið:
1. Haukar - Afturelding
1. leikur í Strandgötu 13. apríl.
2. leikur í Mosfellsbæ 15. apríl.
(3. leikur í Strandgötu 17. apríl)
2. Valur - Stjarnan
1. leikur á Hlíðarenda 12. apríl.
2. leikur í Ásgarði 14. apríl.
(3. leikur á Hlíðarenda 16. apríl)
3. Selfoss - KA
1. leikur á Selfossi 13. apríl.
2. leikur á Akureyri 15. apríl.
(3. leikur á Selfossi 17. apríl)
4. Víkingur - FH
1. leikur í Víkinni 12. apríl.
2. leikur í Kaplakrika 14. apríl.
(3. leikur í Víkinni 16. apríl)
í undanúrslitunum mætast síðan sig-
urliðin í 1. og 4. leik annars vegar
og sigurliðin í 2. og 3. leik hins veg-
ar. Það lið sem varð ofar í 1. deild-
inni á oddaleikinn ef með þarf.
Valsmenn eiga íslandsmeistaratitil
að verja en þeir sigruöu FH eftir fjóra
úrslitaleiki síðasta vor. Þeir tefla
hins vegar fram mikið breyttu liði
nú. Geir Sveinsson, Valdimar Gríms-
son og Jakob Sigurösson eru allir
horfnir á brott og aðrir komnir í
þeirra stað. Ólafur Stefánsson og
Dagur Sigurðsson eru með mikla
ábyrgð á ungum herðum.
Haukar urðu deildarmeistarar á
sannfærandi hátt í vetur og töpuðu
aðeins einu sinni í 22 leikjum. Það
tap var einmitt gegn Aftureldingu,
mótherjum Hauka í 8-hða úrshtun-
um. Liðsheildin er öflug en fáir hafa
leikið betur í deildinni í vetur en
Halldór Ingólfsson. Takist þeim að
halda dampi verða þeir í slagnum
um meistaratitihnn aht th loka.
Selfoss náði þriðja sæti eftir köfl-
óttan vetur og spurningin er hvort
þeir klári loks dæmið. Þeir geta valt-
að yfir alla á góðum degi en líka
steinlegið fyrir hveijum sem er. Sig-
urður Sveinsson og Einar Gunnar
Sigurðsson eru báðir í geysilega góðu
formi og frammistaða þeirra ræður
miklu.
Víkingar hafa verið á uppleið
seinni hluta vetrar og eru til ahs lík-
legir í úrshtakeppninni. Birgir Sig-
urðsson, Bjarki Sigurðsson og Gunn-
ar Gunnarsson geta fleytt liðinu
langt á reynslu og seiglu. Þeir þurfa
þó að ghma viö þann sálfræðilega
vanda að hafa tapað tvisvar fyrir FH
í vetur.
FH náði ekki einu af fjórum efstu
sætunum sem er afar sjaldgæft á
þeim bænum. FH-ingar eru með
reynslumikið lið, Hans Guðmunds-
son, Guðjón Árnason, Atli Hilmars-
son og Kristján Arason njóta sín best
þegar mest hggur viö.
KA skartar þremur af bestu leik-
mönnum deildarinnar, Valdimar
Grímssyni, Sigmari Þresti Óskars-
syni og Alfreð Gíslasyni, og þegar við
bætist öflugur heimavöhur getur
Akureyrarhðið gert ýmislegt.
Stjaman er með mun betra lið en
7. sætið segir til um, tvímælalaust
eitt besta lið deildarinnar á pappír-
unum en það þarf meira th. Patrekur
Jóhannesson og Konráð Olavsson
eru hlviðráðanlegir í ham og svo er
Sigurður Bjarnason á lager.
Afturelding er á sínu fyrsta ári í
1. dehd í 34 ár og hefur náð sínu
markmiði. Án Gunnars Andréssonar
verður baráttan við Hauka erfið en
ekki ómöguleg.
Þannig eru liðin skipuð
Hér fyrir neðan má sjá hvernig úr-
slitaliðin átta eru skipuð, þeir sjö
leikmenn sem oftast eru í byijunar-
liði og fyrsti skiptimaður í sviga.
Tölur hjá útispilurum eru mörk
þeirra í vetur, vítaköst ekki talin með
til að skor þeirra úr sínum stöðum
sjáist betur en tölur hjá markvörðum
eru varin skot.
-VS
Haukar
Afturelding
Leikir í vetur:
Afturelding - Haukar.........28-27
Haukar - Afturelding.........22-22
Árangur Hauka:
Heima: 8 sigrar, 3 jafntefli.
Úti: 6 sigrar, 4 jafntefli, 1 tap.
Árangur Aftureldingar:
Heima: 8 sigrar, 1 jafntefli, 2 töp.
Úti: 1 sigur, 3 jafntefh, 7 töp.
Valur
Stjarnan
Leikir í vetur:
Valur - Stjarnan...........23-22
Stjaman - Valur............24-21
Árangur Vals:
Heima: 7 sigrar, 2 jafntefli, 2 töp.
Úti: 7 sigrar, 1 jafntefli, 3 töp.
Árangur Stjörnunnar:
Heima: 5 sigrar, 2 jafntefli, 4 töp.
Úti: 4 sigrar, 4 jafntefli, 3 töp.
Selfoss
KA
Leikir í vetur:
KA - Selfoss....................23-23
Selfoss - KA....................26-30
Árangur Selfoss:
Heima: 6 sigrar, 2 jafntefli, 3 töp.
Úti: 6 sigrar, 2 jafntefli, 3 töp.
Árangur KA:
Heima: 5 sigrar, 4 jafntefli, 2 töp.
úti: 4 sigrar, 2 jafntefh, 5 töp.
Víkingur
FH
Leikir í vetur:
FH - Víkingur..............30-27
Víkingur - FH..............22-30
Árangur Vikings:
Heima: 6 sigrar, 2 jafntefli, 3 töp.
Úti: 5 sigrar, 2 jafntefh, 4 töp.
Árangur FH:
Heima: 8 sigrar, 2 jafntefli, 1 tap.
Úti: 3 sigrar, 2 jafntefli, 6 töp.
Friöleifsson
(Helgi Arason 26)
rnnn*, Bergsveinn
Belnteinsson 54 Bergsveinsson 278
Hans
Guömundsson 72
(Atli Hlimarsson 27)
Hálfdán
Þóröarson 55
_ Guöjón
Árnason 88
Knútur
Sigurösson 55
Slavlsa
Cvijovic 45
Bjarki
Slgurösson 80
Sigurösson 113
Gunnar
Gunnarsson 71