Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 Fréttir i>v Snjóflóðavarnir kosta sveitarfélög allt að fimm hundruð milljónum króna: . Eðlilegt að skattleggja hvern landsmann - segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri í ísaQarðarbæ „Ég hef bent á að þarna er um vanda tiltölulega fárra sveitarfélaga að ræða, þetta eru sennilega um 8 sveitarfélög á öllu landinu. Það ligg- ur fyrir að Jöfiiunarsjóður sveitar- félaga mun ekki með neinum hætti mæta þessum kostnaði. Það er gróft mat að kostnaður þessara sveitarfé- laga við að koma upp snjóflóðavörn- um sé í kringum 5 milljarðar króna. Ef þetta er umreiknað á hvem íbúa í umræddum sveitarfélögum þýðir það að skattleggja þarf hvern íbúa um 60 til 70 þúsund krónur," segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, um þann kostnað sem það hefur í för með sér fyrir íbúa á hættusvæðum að koma upp snjóflóðavörnum. Hann segir að kostnaður við vamir í ísaijarðarbæ einum nemi fast að hálfum milljarði króna sem þýði um 50 milljónir króna sem bærinn verði að greiða sem sinn hlut af kostnaöi á móti Of- anflóðasjóði. Kristján Þór segir þennan kostnað einfaldlega of mik- inn fyrir fjárhag bæjarins sem og annarra sveitarfélaga í sömu stöðu. „Við áttum fund með forsætisráð- herra, umhverfisráðherra og félags- málaráðherra áður en hafist var handa við framkvæmdir við snjó- flóðavamir á Flateyri. Þar kynntum við þeim vanda sveitarsjóðs vegna fjármögnunar þessara verka,“ segir Kristján Þór. Kostnaöi jafnað út Hann segist sjá þá lausn í málinu að í stað þess að íbúar sveitarfélag- anna taki einir á sig kostnaðinn þá verði honum deilt á aUa landsmenn. „Ef þessu yrði jafnað út á alla landsmenn með því aö ríkisvaldið taki að sér að greiða þessar 500 milljónir yrði það i aukna skatt- heimtu á hvem íbúa landsins að- eins 2 þúsund krónur sem gæti ver- ið greitt á einhverju árabili. Ég segi að menn muni fjandakornið ekkert um það,“ segir Kristján Þór. „Út frá samfélagslegu sjónarmiöi Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á ísafirði, vill að ríkiö fjármagni snjóflóöa- varnir aö fullu. Til þess þurfi aöeins aö skattleggja hvern einstakling um sem nemur 2 þúsund krónum. Þaö sé sanngirnismál í staö þess aö íbúar á hættu- svæöum þurfi aö greiöa milli 60 og 70 þúsund krónur hver fyrir varnirnar. DV-mynd Brynjar Gauti er það ríkis- ins að taka á vanda þess- ara byggða. Þetta em tiltölulega ný sann- indi, innan gæsalappa, að við þurf- um að verja byggðina svona. Við Eldgos undir 600 metra þykkri íshellu við Bárðarbungu: Getur náð í gegn á hverri stundu - hlaupi spáð úr Grímsvötnum „Það er greinilegt útstreymi kviku undir íshellunni og gosórói er stöðugur en sýnir sig á mælum í missterkum hrinum og er síst að draga úr þeim,“ segir Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur í sam- tali við DV í gærkvöldi. Eldgos hófst í gærmorgun undir íshellunni sunnan undir Bárðar- bungu í norðanverðum Vatnajökli. Það var Reynir Ragnarsson, lög- reglumaður og flugmaður í Vík, sem fyrstur sá merki um umbrotin í gærmorgun þegar hann flaug yfir svæðið. Þá var, að sögn hans, búinn að myndast stór sigketill og annar að myndast litlu sunnar. Ari Trausti flaug í tvígang yflr svæðið með nokkurra klukkutíma millibili í gær og sagði hann að um- talsverðar breytingar hefðu orðið á svæðinu í síðara skiptið sem hann flaug yfir það. Þá hafi verið að myndast fleiri sigkatlar í íshelluna sem þama er að hans sögn 5-600 metra þykk. í morgun voru katlam- ir orðnir samhangandi, en þá hafði gosið ekki enn náð upp í gegn um ís- helluna, en haldi það áfram er búist við því á hverri stundu. Ari Trausti segir að ummerki um eldsumbrotin séu greinileg og megi ráða þau bæði af ummerkjum á svæðinu og eins jarðskjálftamælum Raunvísindastofnunar, veðurstof- unnar o.fl. Undir sigkötlunum og ís- hellunni hefði í gærkvöldi greini- lega verið verulegt vatnsrennsli sem virtist renna í Grímsvötn. Hann taldi að gosið væri það öflugt að búast mætti við að það bryti sér leið í gegn um íshelluna og þá yrði um gjóskugos að ræða. Eldsumbrot- in era á eldfjallahrygg sem liggur til suðurs frá Bárðarbungu, sem skil- greind var fyrir ekki löngu og hefur fengið nafnið Loki. Ari Trausti Guðmundsson segir að þetta gos sé merkilegt fyrir þær sakir að það verður í fýrsta sinn sem hægt verður að fylgjast frá upp- hafi með umtalsverðu gosi undir jökli. Við fyrstu sýn virðist þaö haga sér líkt og gos sem varð á þess- um slóðum árið 1938 en hins vegar hafi ekki þá verið sömu tækifæri til að fylgjast jafnvel með og nú er mögulegt. Vatnið sem bráðnað hefur undan jöklinum í gosinu, rennur í Gríms- vötn, sem voru næstum tóm fyrir. Þau munu nú vera að fyllast og er búist við miklu jökulhlaupi innan fárra daga á Skeiðarársandi. -SÁ Útburðargerð á Skriðufelli: eram að fara fram á það að samfé- lagið allt saman leggi til 2 þúsund krónur á hvem haus í landinu. Þetta er að okkar mati sanngimis- mál,“ segir Kristján Þór. Hann segir undarleg þau rök sem hann heyri fyrir því að sveitcuTélög- in fjármagni sjálf vamir gegn snjó- flóðum. Ástæðan sé að það sé fyrst og fremst fyrir þrýsting frá þeim að þessara vama sé krafist og þau fái þannig framkvæmdir heim í hérað. „Ég segi í stöðunni að ég skyldi fyrstur manna bjóða ríkinu að taka yfir snjóflóðavamimar 100 prósent. Þar með ráða þeir hvar og hvenær snjóflóðavamir verða reistar. Þar með verða þeir að forgangsraða þessum verkum enda má segja sem svo að það ráði þessu þegar þar sem við getmn ekkert gert nema með samþykki rikisins," segir Kristján Þór. -rt Stuttar fréttir Nemendum úthýst Námsmenn telja að mennta- málaráðherra hafi úthýst þeim af menntaþingi sem halda á um næstu helgi. Samtök náms- manna ætla að halda sína eigin ráöstefnu í fjaldi við Háskólabíó. Áhugi á Norðurtanga Fjölmörg útgerðarfyrirtæki hafa sýnt áhuga á kaupum í Norðurtanganum á ísafirði. Samkvæmt RÚV hafa nokkur stór fyrirtæki á Norðurlandi sýnt Norðurtanganum áhuga. ísland í áttunda íslenska skáksveitin hafnaði í 8.-12. sæti á Ólympíuskákmót-.. inu í Armeníu eftir tap fyrir Rússum með minnsta mun í gær. Sameining könnuð Vinnslustöðin í Eyjum og Meitillinn í Þorlákshöfh kanna möguleika á sameiningu fyrir- tækjanna. -bjb Abúandinn ekki heima og fjölmiðlum vísað frá DV, Suðurlandi: Útburðargerö var framkvæmd í gær á bænum Skriðufelli í Þjórsár- dal að ábúandanum Bimi Jóhanns- syni fjarstöddum. Gerðarbeiðandi var Skógrækt ríkisins, sem er eig- andi jarðarinnar. Birni hafði verið sagt upp ábúð, en þar sem hann neitaði að víkja af jörðinni krafðist Skógræktin útburðar með atbeina sýslumanns Árnesinga og gekk dómur í héraði og fýrir hæstarétti Skógræktinni í vil. Jörðin Skriðufell hafði verið í eigu sömu ættarinnar frá því fyrir aldamótin 1800 þar til faðir Björns seldi hana til Skógræktar ríkisins árið 1938. Bjöm gerði samning við Skógræktina um ábúð til æviloka. Þú getur svarað þessari spurningu með því aö hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Jé 1 Nel 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 Á að leyfa sölu á áfengum gosdrykkjum í matvöruverslanir? en hann er nú 68 ára gamall. Skóg- ræktin krafðist útburðar á þeim for- sendum að Bjöm hefði fyrirgert ábúðamétti sínum, meðal annars með því að leigja hluta landsins undir tjaldstæði og hjólhýsastæði og að hafa glutrað niður búmarki jarð- arinnar með samningum við Fram- leiðnisjóð og Framleiðsluráð land- búnaðarins. Einnig er hann talinn hafa valdið umtalsverðu tjóni þegar sinueldur, sem hann kveikti á land- areigninni 15. maí á síðasta ári, fór úr böndunum. Bú Bjöms hefur ver- ið tekið til gjaldþrotaskipta. Karl Gauti Hjaltason, fulltrúi sýslumanns Ámesinga, fram- kvæmdi útburöargeröina. Með hon- um í för vora lögregluþjónar og á staðnum voru einnig lögmenn þrotabús Björns, lögmaður Skóg- ræktar ríkisins og starfsmenn það- an, oddviti Gnúpverjahrepps og full- trúar nokkurra fjölmiðla. Bærinn var mannlaus en ólæstur. Þegar í ljós kom að enginn var heima til- kynnti Karl Gauti að Skógræktin hefði nú forræði á bænum og að kröfu hennar var fjölmiðlafólki skipað að hafa sig á brott af jörð- inni. Skipt var um skrár læsingar á útihurðum. íbúðarhúsið verður haft innsiglað þar til dót Bjöms hefur verið fjarlægt og virðingargjörð hef- ur farið fram. Hreppsnefhd Gnúp- verja hefur ábyrgst að búslóðinni verði komið af jörðinni fyrir kl. 16 næstkomandi föstudag. DV er kunnugt um að hrepps- nefnd Gnúpverja reyndi að semja við Skógræktina um að sonur Bjöms fengi að fóðra um 70-80 svín, sem era í húsi á Skriðufelli, til slát- urstærðar. Þær umleitanir voru ár- angurslausar. Síðar í vikunni mun ganga dómur í Héraðsdómi Suður- lands vegna sinueldanna sem fyrr er getið. -ÍÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.