Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 15 Ahættubisness og um- boð stjórnmálamanna 3000 USD/tonn 2500 íerð á áli á skyndi- markaði í London (LME) USD/tonn - 2000 1500 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 DV| „Meö því aö tengja orkuverö álveröi er ríkisvaldið komiö í bullandi áhættu," segir m.a. í greininni. Engin efnisleg unn-æða á sér stað í þjóðfélaginu um væntanlegar virkj- ana- og álversfram- kvæmdir. Samt eru hér á ferðinni gríð- arlegir hagsmunir, því tugmilljarðar króna liggja undir á ábyrgð almenn- ings. Stjórnmála- menn upp til hópa kjósa frekar að eyða tíma sínum í karp um 200 millj- ónir hér og 200 milljónir þar til að fjárlagadæmið gangi upp. Væntan- lega til að draga úr lántökum rikisins, en nóg þarf rík- ið samt að taka ef fjármagna á of- angreindar tugmUljarða fram- kvæmdir. Bullandi áhætta Sú spuming hefur gerst áleitn- ari hvort stjórnmálamenn hafi í raun umboð kjósenda til að taka þátt í slíkum áhættubisness sem áliðnaður er. Venjulega tak- markast umboð þeirra við sam- neysluþjónustu og fjárfestingu tengda henni og við tilfærslur til heimila og atvinnulífs, þ.e. dæmi- gerða opinbera þjónustu. Áliðnaður er hins vegar mikill áhættuiðnaður. Menn gera þar því miklar arðsemiskröfur. Með því að tengja orku- verð álverði er ríkis- valdið komið í bullandi áhættu. Hefur það um- boð til þess frá kjósend- um og eru arðsemis- kröfur þess sambæri- legar kröfum einkaað- ila? Fram hefur komið hjá Landsvirkjun að orku- verðið sé viðskipta- leyndarmál og að það tengist alþjóðlegri þró- un á álverði. Fyrir örfá- um árum var mikil um- ræða um samninga Al- umax um framkvæmdir á Keilisnesi sem flestir muna. Hér var á ferð- inni gríðarstórt verkefhi sem kosta átti tugi milljarða króna. í þeim áætlunum var byggt á spám um 1.850 dollara langtímaverð á áltonni. Nú, nokkrum árum seinna, byggir ISAL sínar áætlan- ir við álversstækkun á 1.600 til 1.650 dollara langtímaverði. Sem betur fer geta bisness- mennimir hjá Landsvirkjun og í stjómarráðinu á þeim tíma nú þakkað fyrir að Alumax samn- ingamir gengu ekki upp. Umboð og lagaheimildir En hvað um framtíðina? Á langtímaverð á áltonni enn eftir að lækka með fyr- irsjáanlegu tapi Landsvirkjunar og millifærslu frá almenningi til stóriðju? Hér er hægt að skrifa doðranta um líklega þróun heims- búskaparins og hugsanleg áhrif á álverð. En það einfaldasta í þessu og það sem skiptir mestu máli er að þeim sem eiga peninga er frjálst að taka áhættu og það stóra áhættu. Það að taka stóra fjárhags- lega áhættu fyrir aðra er hins veg- ar stór siðferðileg spuming og því þarf að kanna vel umboð og laga- heimildir fyrir slíkum ákvörðun- um. Nýlega birtist efirfarandi frétt í Morgunblaðinu: „Verð á málm- mörkuðum lækkaði í gær og hefur verð á áli ekki verið lægra í tvö ár og þrjá mánuði. Stórir bandarískir fjárfestingarsjóöir seldu mikið á málmmarkaðnum í London og seldist ál á innan við 1.400 doll- ara... Sérfræðingar á málmmörk- uðum segja að verðlag sé undir þrýstingi vegna aukinnar fram- leiðslu, vaxandi birgða og sölu- tregðu." Vilji íslenskir stjómmála- menn hasla sér vöO í þessum áhættubisness þá verði þeim að góðu. En því verður áreiðanlega vel haldið til haga hvað það mun kosta eða gefa þjóðinni og hveijir bera ábyrgðina. Þjóöhagslega hagkvæmt Síðar gefst örugglega tækifæri á að skýra út fyrir þeim sem ekki vita muninn á annars vegar arð- bærum framkvæmdum og hins vegar þjóðhaglega hagkvæmum framkvæmdum. Því hér er vem- legur munur á. Óarðbærar fram- kvæmdir geta verið þjóðhagslega hagkvæmar til skamms tíma. í þessu samhengi skiptir máli hvort miðað er við hagvöxt vergrar landsframleiðslu eða hreinna þjóð- artekna sem taka tillit til afskrifta og vaxta- og arðgreiðslna út úr landinu vegna framkvæmdanna. Jóhann Rúnar Björgvinsson Kjallarinn Jóhann Rúnar Björgvinsson hagfræöingur „Vilji íslenskir stjórnmálamenn hasla sér völl í þessum áhættu- bisness þá verði þeim að góðu. En því verður áreiðanlega vel haldið til haga hvað það mun kosta eða gefa þjóðinni og hverj- ir bera ábyrgðina.u Fundist hefur kuml! í því voru bein; lærleggur af lág- vöxnum karlmanni sem dáið hef- ur úr skyrbjúg, hauskúpa af smalahundi og leðurreim. íslensk fortíð. Það er svo ótrúlega ólíklegt að gersemar leynist hér í jörðu að við emm löngu hætt að gera ráð fyrir því. Trúum því ekki einu sinni þegar þær finnast. Dæmigert, en í eina skiptið sem almennilegur silf- ursjóður finnst í íslenskri jörðu halda allir að hann sé blekking, made in Taiwan eða hamraður heima í sveitinni með kúluhamri frá Black og Decker. Þangað til eigandinn getur ekki orða bundist lengur yfrr forheimsku arfa sinna og grefur sér leið upp á yfirborðið. Frá skinni á pappa „Skyldi hann lenda í pitsukassa eins og kollegi hans á Austfjörð- um?“ Hugsar maður ósjálfrátt og hættir við að panta eina með pepp- eróníi og heimsendingu. Það er einfaldlega allt of neyðarlegt að forfeður okkar, stórskáldin (sem þeir náttúrulega allir voru), menn- imir sem ólu kálfa sér til bóka- gerðar og sultu frekar en að éta fuglana i túnfæt- inum, skuli flutt- ir með flugi milli staða í ómerki- legum pappa- kössum. Hugsa sér að fyrstu kynni fornskáldanna af tæknibyltingu prentlistarinnar skuli vera pappaspjald með áletruninni „Ókeypis heim- sending ef pant- aðar era þijár áleggstegundir og kók“. Gamalt súrmatartrog væri betur við hæfi, askur eða skinn- sekkur en sennilega færi þá svo illa um morknaða leggina að þeir yrðu í hæsta falli brúklegir í blómaáburð. Jólatré eöa kuml? Fornleifafræðingamir brýna teskeiðamar og tina lærleggi og rifbein upp úr kumlinu. Enn á ný fáum við að kynnast nýjum land- námsmanni, þökk sé uppblæstri landsins. Sem betur fer hefur gróður- setningarátakið mikla enn ekki náð að jarða alla forfeð- ur okkar fyrir fullt og allt. Það stóð líka heima að um leið og menn fóm að amast við lúpínunni og hætta að stinga henni niður í hverja þúfu tóku kumlin að spretta upp eins og gorkúlur. Þeir Þorgrímur og Þormóður, eða hvað þeir nú hétu allir í denn, geta nú stung- ið upp kollinum og heilsað upp á Andra og Sindra i nútíman- um í stað þess að bera beinin í blárri blómabreiðu þar sem enginn sér glitta í þau. Þá væri langferðin til lítils farin. (Imyndið ykkur bara hvað það leynast mörg kuml undir jóla- trjám, lúpínum og melgresi í sveit- um landsins!) Aö búa til rústir Það er kannski eins gott að það frnnist ekkert mikið og merkilegt í öllum þessum kumlum annað en leggir og höfuðbein. Spjótsoddar, skóreimar og smávegis klink er i góðu lagi en það má ekki hafa mikið aðdráttarafl fyr- ir túrista þar sem vafa- mál er hvort Þjóö- minjasafnið beri fleiri gesti en þessa nokkru útlendinga og skóla- böm sem nú sækja safnið heim. Að minnsta kosti er stóra, djúpa sprungan í veggnum við stigann ekki til að fýlla mann öryggiskennd. En kannski á þetta að vera svona. Fortíðin var náttúrlega skugga- leg og því ætti hús yfir fortíðina ekki að vera skuggalegt líka, til minningar um skakk- hlaðna veggi og mold- argólf? Þannig höldum við samfellunni í sögunni og minnug þess að þessi sama saga er gjöm á að endurtaka sig getum við glaðst yfir því að eftir smávegis Suður- landsskjálfta verður hægt að grafa íslenskar fomminjar úr jörðu aft- ur - og nú úr stóra kumlinu við Hringbrautina. Brynhildur Þórarinsdóttir minnug þess að þessi sama saga ergjörn á að endurtaka sig getum við glaðst yfír því að eftir smávegis Suðurlandsskjálfta verður hægt að grafa íslenskar fornminjar úr jörðu aftur - og nú úr stóra kumlinu við Hringbraut- ina.u Kjallarinn Brynhildur Þórarinsdóttir blaðamaöur Með og á móti Verð á gleraugum á íslandi Of há álagning Mér fannst gleraugu dýr, þess vegna keypti ég þau í Englandi fyrir ári. Ég kann- aði verðið hér heima fyrir ferðina og komst að raun um að lægsta d?tt,r sjónar- verð hljóðaði hólL upp á 42 þúsund krónur. Sams konar gleraugu keypti ég á 24 þúsund í London. Gleraugu em nauðsynjavara en ekki munaðar- vara. Hvers vegna þessi mikli verðmunur? Ég fæ ekki betur séð en aö það sé of há álagning. Hvers á fólk að gjalda? Síðan ég hóf störf í Gleraugnaversluninni Sjónarhóli hefur glöggt komiö í ljós að ég var ekki ein um að finnast gleraugu of dýr á íslandi. Fjömtíu til sextíu þúsund eru mikill peningur upp úr hvaða buddu sem er. Margir hafa kom- ið með margra mánaöa gamalt augnvottorð í vasanum og tjáð okkur að þeir hafi einfaldlega ekki haft ráð á því að kaupa gler- augu fyrr. Einnig eru dæmi þess að fólk hafi komið með brotna umgjörð og skemmd gler að leita sér að nýrri umgjörð fyrir skemmdu glerin. Það má eitt- hvað betur fara í svokölluðu vel- megimarþjóðfélagi ef stór hópur fólks þarf að ganga með skemmda umgjörð, brotin gler eða gleraugnalaus með augnvott- orð í vasanum. Gylfi Björns- son, formaöur félags íslenskra sjóntækjafræö- inga. Hræðast hvergi verð- samanburð Þegar verð á gleraugum er skoðað er nauðsynlegt að bera saman verð og gæði til að komast að raunhæfri niðurstöðu. Sjóngler og gleraugnaum- gjarðir eru að sjálfsögðu framleidd í mörgum mis- munandi gæðaflokkum og aðeins af þeirri ástæðu hlýtur alltaf að skapast verðmismuniu' á gleraugum. En spurningin er: Hvað vill neytand- inn fyrir sitt sjónvandamál? Vill hann hágæða-sjóngler þar sem tekið er tillit til UV-varnar, bjög- unar, litadreifingar og tærleika svo eitthvað sé nefnt eða vill hann aðeins fá styrkleikann sinn? Og hver ætli verðmunur- inn sé svo á þessu tvennu? Þegar neytandinn er farinn að velta þessum spurningum fyrir sér, á hann þá ekki rétt á því að geta spurt fagmann ráða og tekið í framhaldi af því ákvörðun um hvað hentar sér, eins og í raun kveður á um i íslenskum lögum? Eða nægir íslenskum neytendum ráðgjöf frá reynslulausum og ófaglærðum sölumönnum? Að mínu mati hafa sjóntækjafræð- ingar hér á landi staðið sig vel á þessu sviði og hræðast hvergi verðsamanburð, með þeim fyrir- vara þó að ekki sé verið að bera saman verð á hágæða-glemm og lakari glemm eða verð á hátísku gæðaumgjörðum og fjöldafram- leiddum og stöðluðum umgjörð- um. -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.