Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 26
34 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 Afmæli__________________ Edda Guðmundsdóttir Edda Guðmundsdóttir læknafull- trúi, Akraseli 4, Reykjavík, er fimm- tug í dag. Starfsferill Edda fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófl í Reykjavik, stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti 1988 og stundar nú nám í Bandaríkjunum. Edda hefur verið læknafulltrúi við Heilsugæsluna í Garðabæ en er nú í námsleyfi. Edda er félagi í Soroptimista- klúbbi Hóla og Fella. Fjölskylda Edda giftist 6.2. 1965 Þorsteini Þorsteinssyni, f. 22.12. 1944, skóla- meistara Fjölbrautaskólans í Garða- bæ. Hann er sonur Þorsteins Ingv- arssonar, bakarameistara í Reykja- vík, og Bergljótar Helgadóttur hús- móður. Börn Eddu og Þorsteins eru Guð- mundur Þorsteinsson, f. 2.8. 1965, skrifstofumaður, kvæntur Anný Kristínu Hermansen ritara; Bergljót Þorsteinsdóttir, f. 15.5. 1967, lyfja- fræðingur, gift Þorsteini Bergmann láekni og eiga þau tvö börn; Þor- steinn Þorsteinsson, f. 9.12. 1968, nemi, og á hann eitt bam; Guðbjörg Þorsteinsdóttir, f. 28.1. 1983, nemi. Hálfsystir Eddu, sam- feðra, er Rut, f. 1940, hús- móðir á Flúðum. Alsystkini Eddu eru Bima Margrét, f. 1943, húsmóðir í Flórída í Bandarikjunum; Stefan- ía, f. 1945, húsmóðir í Reykjavík; María, f. 1948, húsmóðir í Reykjavík og fulltrúi hjá Flugmála- stjóm; ívar, f. 1952, viðskiptafræð- ingur og endurskoðandi í Reykja- vík; Gunnlaugur, f. 1956, flugum- ferðarstjóri í Reykjavík; Auður, f. 1960, húsmóðir og flugfreyja í Reykjavík; Bjöm Valdimar, f. 1966, tölvufræðingur í Reykjavík. Foreldrar Eddu era Guðmundur Ragnar Guðmundsson, f. 13.11.1919, fyrrv. slökkviliðsstjóri á Reykjavík- urflugvelli, og k.h., Elín Guðmunds- dóttir, f. 12.7. 1923, húsmóðir. Ætt Guðmundur er bróðir ívars, blaðamanns og starfsmanns hjá SÞ. Guðmundur er sonur Guðmundar, verkstjóra í Reykjavík, Jónssonar, sjómanns þar, Teitssonar, b. í Götu í Vogum, Jóns- sonar. Móðir Jóns var Amdís Einarsdóttir, b. í Borgarfirði, Einarssonar, b. að Skógum í Reykholts- dal, Auðunssonar Niku- lássonar. Móðir Guðmundar slökkviliðsstjóra var Sesselja, dóttir Stefáns, smiðs og sjómanns, síðast í Keflavík, Hannessonar, b. og smiðs á Brekku á Hvalfjarðar- strönd, Jónssonar, b. á Brekku, Ólafssonar, b. á Snorrastöðum, Þor- kelssonar. Móðir Hannesar var Guðrún Hannesdóttir úr Klaustur- hólasókn. Móðir Stefáns var Ragn- hildur, dóttir Einars, b. á Arnarfelli í Þingvallasveit og hreppstjóra að Litla-Botni í Botnsdal, Ólafssonar, b. á Efri-Brú í Grímsnesi, Jónsson- ar, b. á Búrfelli, Vemharðssonar, lrm. á Búrfelli, Ófeigssonar, lrm. á Reykjum á Skeiðum, Magnússonar. Móðir Einars var Ragnhildur Bein- teinsdóttir, lrm. á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimundarsonar á Hólum Bergssonar, ættföður Bergsættar- innar, Sturlaugssonar. Móðir Sess- elju var Guðrún Matthíasdóttir, b. á Fossá í Kjós, Eyjólfssonar Jónsson- ar, Guðmundssonar, ættföður Kóp- vatnsættarinnar, Þorsteinssonar. Móðir Guðrúnar var Valgerður Ólafsdóttir, Vigfússonar og Guðrún- ar Magnúsdóttur, á írafelli í Kjós, Kortssonar Þorvarðarsonar. Elín er dóttir Guðmundur, b. á Breiðabólstað og í Ólafsey, Halldórs- sonar, b. á Fáskrúðarbakka og víðar í Miklaholtshreppi, Guðmundsson- ar, b. á Stóruþúfu, Litluþúfu, Gröf og Miðhrauni í Miklaholtshreppi, Þórðarsonar, ættfoður Hjarðarfells- ættarinnar, Jónssonar, b. á Höm- rum, Jónssonar. Móðir Þórðar var Guðný Halldórsdóttir, úr Eyrar- sveit, Bárðarsonar. Móðir Guð- mundar veu Ingibjörg Sigurðardótt- ir, b. á Eiði, bróður Jóns á Hömmm. Móðir Halldórs var Þóra Þórðar- dóttir, frá Borgarholti, Þórðarsonar. Móðir Guðmundar á Breiðabólstað var Elín Bárðardóttir, b. á Flesju- stöðum í Kolbeinsstaðahreppi, Sig- urðssonar. Edda Guðmunds- dóttir. Kjartan Björnsson Kjartan Björnsson verktaki, Akrakoti, Innri- Akraneshreppi, er fertug- ur í dag. Starfsferill Kjartan fæddist á Akra- nesi og ólst upp í Akra- koti. Hann lauk almennu bamaskólanámi og stund- aði síðan nám við Gagn- fræðaskóla Akraness. Kjartan fór ungur til sjós og stundaði sjó- mennsku í fimmtán ár. Þá kom hann í land og fór að starfa við vinnuvélar. Hann starfrækir nú verktakafyrirtækið Neista ehf. Fjölskylda Systkini Kjartans em Ása María, f. 8.12. 1957, fiskverkunarkona á Akranesi; Ólafur Rúnar, f. 8.1. 1959, sjómaður á Akranesi; Ellert, f. 1.2. 1961, iðnverkamaður, bú- settur í Innri-Akranes- hreppi; Bjöm, f. 5.4.1962, verktaki á Akranesi; Guðrún, f. 11.9. 1963, sjúkraliði, búsett í Innri- Akraneshreppi; Ólafia Guðrún, f. 24.2. 1965, húsmóðir í Innri-Akraneshreppi; Hjördís, f. 31.7.1974, fiskverkunarkona á Akra- nesi. Foreldrar Kjartans: Björn Ellerts- son, f. 17.6. 1929, d. 4.11. 1984, bóndi í Akrakoti, og Guðrún Kjartansdótt- ir, f. 10.5. 1938, ræstitæknir. Ætt Bjöm var sonur Ellerts, b. í Akra- koti, Jónssonar, b. á Vatnshömmm, Guðmundssonar, b. á Auðsstöðum, Sigurðssonar, b. á Augastöðum, Bjarnasonar. Móðir Ellerts var Sig- ríður Ijósmóðir Þorsteinsdóttir, b. á Sigmundarstöðum, Árnasonar. Móðir Bjöms Ellertssonar var Ól- afia Guðrún frá Reyni, Bjömsdóttir (Vindheima-Bjöms), Guðmundsson- ar, í Laxholti, Benjamínssonar. Móðir Ólafiu var Sigríður Árnadótt- ir, í Skógum og Áskoti, Jónssonar, af ætt Hallgríms Péturssonar akálds. Guðrún var dóttir Kjartans, b. í Birnuhöfða og víðar, Þorkelssonar, b. á Varmá á Kjalarnesi, Ásmunds- sonar, Þórhallssonar og Svanborgar Oddsdóttur. Móðir Guðrúnar var Ása María, dóttir Björns Ásgrímssonar og Önnu LUju Sigurðardóttur, sem voru síðustu ábúendur í Héðins- firði. Kjartan tekur á móti gestum- í fé- lagsheimilinu Miðgarði laugardag- inn 5.10. nk. kl. 20.30. Kjartan Björnsson. Guðmimdui Ingi Ingason Guðmundur Ingi Ingason aðstoð- arlögregluvarðstjóri, Kögunarhæð 1, Garðabæ, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavogi. Hann lauk prófum frá Lögregluskóla ríkisins. Guðmundur hóf störf hjá Lögregl- unni í Kópavogi 1976 og hefur starf- að þar siðan. Guðmundur situr í stjóm Islands- deildar IPA (alþjóðlegs félags lög- reglumanna), hefur verið fulltrúi á landssambandsþingi lögreglu- manna, varaformaður Lögreglufé- lags Kópavogs og syngur í Lögreglu- kór Reykjavíkur. Þá situr hann í stjórn bókhaldsstofnunarinnar Talnaberg ehf. Fjölskylda Sambýliskona Guðmundar er Þóra Þorvarðardóttir, f. 8.6. 1957, viðskiptafræðingur. Hún er dóttir Þorvarðar Magnússonar, húsa- smíðameistara í Hafnarfirði, og Ás- laugar Einarsdóttur saumakonu. Synir Guðmundar frá fyrrv. hjónabandi em Kjartan Valur, f. 30.3. 1983, nemi i Kópavogsskóla; Halldór Öm, f. 4.12. 1987, nemi í Kópavogsskóla. Börn Þóru eru Ólafur Þór, f. 22.1. 1976, nemi við VÍ; Árni Heimir, f. 21.12. 1981, nemi í Garðaskóla; Helga, f. 7.12. 1985, nemi í Hofsstaðaskóla. Hálfsystkini Guðmund- ar, sammæðra eru Lilja Gunnarsdóttir, f. 13.10. 1969, verslunarmaður í Reykjavik; Rósa Gunnars- dóttir, f. 13.6. 1969, kenn- ari í Reykjavík; Högni Gunnarsson, f. 12.12. 1973, vagnstjóri í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, Guömundur Ingi Ingason. sam- gestum inn 5.10. feðra, eru Ragnheiður Ingadóttir, f. 9.1. 1959, starfsmaður við Öldutúnsskóla í Hafnar- firði; Ingi Ólafur Inga- son, f. 28.1. 1963, rafvirki í Hafnarfirði. Foreldrar Guðmundar: Ingi Ó. Guðmundsson, f. 9.8.1938, d. 1962, verslun- armaður í Hafnarfirði, og Kristín Kjartansdótt- ir, f. 31.12. 1936, starfs- maður Húsasmiðjunnar. Guðmimdur tekur á móti að heimili sínu laugardag- . nk. frá kl. 17.00-19.00. DV Hl hamingju með afmælið 2. október 85 ára Sigvaldína Jensen, Hraftiistu, Reykjavík. 80 ára Friðrika Guðjónsdóttir, Dverghömrum 8, Reykjavík. 75 ára Guðrún Jakobsdóttir, Grund, Svínavatnshreppi. Garðar Jóhannesson, Dalbæ, Dalvík. Halldór Bachmann, Grænumörk 5, Selfossi. 70 ára Hermann Hermanns- son, Munaðar- hóli 20, Hellissandi. Hann er að heiman í dag. Kristjana Valgerður Jóns- dóttir, Dalseli 15, Reykjavík. Einar M. Kristjánsson, Markholti 13, Mosfellsbæ. 60 ára Fjóla Bótólfsdóttir, SléttEihrauni 25, Hafnarfirði. Árni Helgason, Skaftafelli 1, Seltjarnarnesi. 50 ára Laufey Barðadóttir, Kirkjubraut 21, Seltjamar- nesi. Sigrún Sveinsdóttir, Marbakkabraut 30, Kópavogi. Stefán Þór Jónsson, Höskuldsstöðum, Reykdæla- hreppi. Jónas Þór Steinarsson, Dalseli 14, Reykjavík. 40 ára Jón Herbertsson, Leifsgötu 11, Reykjavík. Hlöðver Þorsteinsson, Meistaravöllum 7, Reykjavík. Guðbjöm Sigurmundsson, Hjarðarhaga 48, Reykjavík. Björg Guðrún Gísladóttir, Jörfabakka 14, Reykjavík. Hörður Gunnarsson, Löngmnýri 33, Garðabæ. Fréttir Tíu ár frá leiðtogafundinum í Höfða: Fundarins minnst með málþingi í tilefni af 10 ára afmæli leiðtoga- fundar Ronalds Reagans og Mik- .hails Gorbatsjovs í Reykjavík í októ- ber 1986 hafa Davíð Oddsson forsæt- isráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ákveðið að halda tveggja daga málþing á Grand Hotel dagana 2. til 3. október. Yfir- skrift fyrri dags málþingsins er „Leiðtogafundurinn í Reykjavík 1986 - tíu áram síðar.“ Seinni dag- inn verður síðan fjallað um sam- skipti Bandaríkjanna og Rússlands og áhrif þeirra á þróun heimsmála. í fréttatilkynningu segir: „Þátt- takendur á málþinginu verða bandarískir og rússneskir fræði- og, embættismenn, auk fulltrúa í sendi- nefndum stórveldanna í Reykjavík 1986. Maureen E. Reagan, dóttir Ronalds Reagan, fyrrum forseta, verður sérlegur fulltrúi föður sins. Tilgangur málþingsins er að minn- ast fundarins í Höfða sem stærsta alþjóðlega viðburðarins sem tengist nafni Reykjavíkur og íslands. Leið- togafundurinn skipaði Reykjavík sess í alþjóðamálum og markaði upphafið að endalokum kalda stríðsins. Meðal þátttakenda verða menn sem vora í hinum opinberu við- ræðunefndum stórveldanna, en þeir era Bandaríkjamennimir Donald T. Regan, sem var starfsmannastjóri Hvíta hússins, og Max M. Kampel- man, fyrram sendiherra, sem var einn helsti samningamaðurinn og dr. Evgeni Velikhov, sérlegur ráð- gjafi Gorbatsjovs i afvopnunarmál- um. Opinber fulltrúi bandarískra stjómvalda verður Robert G. Bell, sérlegur ráðgjafi Bills Clintons for- seta í varnarmálum, en hann á sæti í Öryggisráði Hvíta hússins. Allir þátttakendur era virtir og vel þekkt- ir sérfræðingar á þessu sviði. Hinir opinbera gestir munu sitja boð borgarstjóra i Höfða. Auk þess sitja þeir kvöldverðarboð forsætis- ráðherra þar sem Maureen E. Reag- an flytur erindi og kveðjur frá föður sínum. Erlendu gestimir hitta einnig forseta íslands á Bessastöð- um. Mikhail Gorbatsjov, fyrrum for- seti Sovétríkjanna, sem ætlaði að koma á málþingið en varð að hætta viö af persónulegum ástæðum, hef- ur sent kveðju til fundarins."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.