Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 24
32 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 Sviðsljós Dæmd til að skipta fénu Gleðikonan Divine Brown hef- ur verið dæmd til að láta fyrrum hórmangara sinn fá einn þriðja af þeim 15 milljónum króna sem hún þénaði á kynnum sínum við kvikmyndaleikarann Hugh Grant. Réttarhöldin fóru reyndar fram í sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum þar sem Divine kvaðst aldrei hafa hitt hórmangarann Rock Lomas. Dómari komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að hún hefði gert samning við hann. En Lomas fær að sjálfsögöu ekki krónu þar sem vændi er ólöglegt, að því er dómarinn benti á. Andre og Brooke í hjónasængina Tennissljaman Andre Agassi og leikkonan Brooke Shields ganga í hjónaband í næstu viku, að því er vinir þeirra greina frá. Ekki er von á litlum Agassi í bráð því að leikkonan hefur lofað vinnuveitendum sínum að verða ekki barnshafandi næstu tvö árin að minnsta kosti. Heitt í kolunum hjá Strandvörðum: Pamela afbrýðisöm út af brjóstum nýrrar stjörnu Strandvarðagellan Pamela Ander- brúnhærða Natalie Jay, hefur unnið son er núna æf yfir því að nýja stirn- hug og hjarta leikarans Scotts Baios, ið í þáttaröðinni, hin breskættaða og fyrrum ástmanns hennar. Og ástæð- Natalie Jay, nýja stjarnan í Strandvöröum, er með ekta brjóst. an fyrir hrifningu Scotts eru stór brjóst Natalie sem eru ekta. Pamela er hins vegar heimsfræg fyrir gervi- tútturnar sínar. „Gervikonan" er sögð hafa orðið æf af afbrýðisemi þegar hún komst að því að Scott leist vel á þrýstin brjóst Natalie. „Pamela veit að brjóstin mín eru ekta og henni finnst sér ógnað þess vegna. Hún þolir ekki að einhver annar njóti ef til vill meiri aðdáunar,“ er haft eft- ir Natalie í einu bresku slúðurblað- anna. Pamela lætm- sem hún sjái ekki Natalie í vinnunni og að sögn Natalie vill hún ekki hafa vel útlít- andi stúlkur of nálægt sér séu þær í sömu senu og hún. Scott hefur boðið Natalie út en hún hefur enn sem komið er ekki þegið boð hans. Hún er samt sem áður ánægð með athyglina sem hún fær. Að sögn eins meðleikenda stúlkn- anna þykir Pamelu sem hún hail enn eitthvað yflr Scott að segja þó þau hafl hætt að vera saman fyrir nokkrum árum. Pamela, sem nú er gift rokkaranum Tommy Lee, hitti Scott fyrst í Playboy partíi. Hann gaf henni trúlofunarhring með dem- anti en leiðir þeirra skildu í kjölfar rifrildis um brúðkaupið. Það var David Hasselhoff sem valdi Natalie í hlutverk í Strand- vörðum. Natalie er hins vegar að velta því fyrir sér að hætta í þátta- röðinni því henni er stöðugt veitt eftirför af einhveijum brjálæðingi. Sá hringir í hana og biður hana um ástaratlot og hann hefur einnig hót- að að drepa sig. „Líf mitt er ömurlegt eins og stendur en David og meðleikari minn, Yasmine Bleeth, eru góðir vinir mínir. Ég er viss um að ég kemst í gegnum hvaða kreppu sem er með þeirra stuðningi,“ segir Natalie. Bob Geldof fær for- ræöi yfir dætrunum Hungurpopparinn Bob Geldof hef- ur fengið tímabundið forræði yfir þremur dætrum sínum og ljóskunn- ar Paulu Yates eftir að lögregla fann mikið af ópíum í skókassa undir rúmi Paulu og kærastans hennar, ástralska INXS-popparans Michaels Hutchences. Bob gerir sér vonir um að fá fullt forræði yfir dætrunum innan skamms. Bob var farinn að hafa svo mikl- ar áhyggjur af dætrunum að hann réð einkaspæjara til að fylgjast með ferðum og framferði Paulu og Michaels. Skötuhjúin búa í glæsi- húsinu sem þau Bob og Paula deildu á meðan þau voru gift. „Bob hafði hræðilegar áhyggjur af bömunum, einkum vegna þess hvemig Paula og Michael haga sér. í fyrstu töldu lögfræðingar að Bob ætti erfitt með að fá forræðið en óp- Paula og Michael. íumfundurinn breytir öllu,“ segir náinn vinur Bobs. Paula og Michael verða yfirheyrð af lögreglunni þegar þau koma úr fríi í næstu viku. 7 Aukablaö AMERISKIR Miðvikudaginn 9. okt. mun aukablað um ameríska daga fylgja DV. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. AuJcablað þetta verður helgað Ameríku og amerísku atvinnu- og mannUfi. Auk þess verður fjallað um það sem í boði verður á ,Amerískum dögum“ í Kringhmni og víðar. Umsjón efiiis hefur Svanur Valgeirsson blaðamaður í sima 550-5814. Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlegast hafi samband við Guðna Geir Einarsson í sima 550-5722 hið fyrsta. Vinsamlega athugið að síðasti skUadagur auglýsinga er fimmtudagurinn 3. október. Tékkneska fyrirsætan Eva Herzigova klæddist þessum hálfgagnsæja kjól frá tískufyrirtækinu Swish Jeans á mikilli sýningu í Mílanó á mánudag. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.