Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 28
36 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 Verkafólk mun ekki sætta sig viö ekki neitt í næstu samningum. Það er ekkert gleymt „Menn tala kinnroðalaust um að fara þurfi varlega í kjara- samningum, semja um lítið og helst ekki neitt. Sömu menn tóku við 60 þúsund kr. úr hendi Kjaradóms fyrir nokkrum mán- uðum. Það er ekkert gleymt." Björn Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambands- ins, í DV. Eintómir „Tómasar" „Það er ólíklegt að ekki sé líf á öðrum hnöttum en vísindin eru íhaldssöm. Það eru nánast ein- tómir „Tómasar“ sem verða að þreifa á hlutunum, reikna þá út og sjá með eigin augum til að kveða upp úr um tilvist þeirra." Dr. Þór Jakobsson, í Alþýðu- blaðinu. Ummæli Við eigum samleið „Ég hef þá trú að Kvennalist- inn og þingflokkur jafnaðar- manna eigi samleið." Rannveig Guðmundsdóttir þingmaður, í Alþýðublaðinu Að hlæja að dreifbýlisfólki „Svona la la afþreying fyrir þá sem vilja drepa timann og finnst gaman að hlæja að dreifbýlis- fólki.“ Arnór Benónýsson um leikritið Nanna systir, í Alþýðublaðinu. Allt þetta hvers- dagslega „Ég verð að viðurkenna að ég er hræðilega öfundsjúkur út í fólk sem getur gert alla þessa hversdagslegu hluti hjálparlaust: farið í jakkann, opnað dyrnar, gengið út...“ Christopher Reeve, í viðtali. Stærstu eldfjöllin Stærsta virka eldfjall í heimi er Mauna Loa (Langafjall) á Hawaii. Það er 120 km langt og 103 km breitt og hraun frá því þekja meira en 5180 km2 á eynni. Stærsti gígurinn er toppgígur fjallsins Mokuaweoweo. Er hann rúmir 10 km2 og 159-180 metra djúpur. Fjallið sjálft er 4168 metrar á hæð og hefur gosið að meðaltali á þriggja og hálfs árs fresti síðan 1832. Hæsta eldfjallið sem talið er virkt er Ojos del Salado á landa- mærum Chile og Argentínu. Það er 6885 metra hátt. Blessuð veröldin Stærstu hraun- breiðumar Lengsta hraunbreiða jarðarinn- ar, sem runnið hefur frá því sögur hófust, er Skaftáreldahraun sem rann úr Lakagígum vestan Vatna- jökuls. Gosið hófst 8. júní 1783 og stóð óslitið fram í október sama ár. Gosið úr 25 km langri gossprungu rann austur með Síðuheiðum og niður á láglendi. Það rann lengst um 65-75 km og þekur 565 km2. Stærsta hraun sem vitað er að hafi komið upp í einu gosi er Roza-basalthraúnið í Norð- ur-Ameríku en það er um 15 millj- ón ára gamalt. Það þekur um 40.000 km2. Hlýnandi veður Yfir sunnanverðu Grænlandshafi er heldur vaxandi 975 mb lægð sem hreyfist norðaustur en hæðarhrygg- ur við austurströndina hreyfist austur. Veðrið í dag Um suðvestan- og vestanvert landið gengur fljótlega í suðaustan hvassviðri með rigningu sem berast mun austur yfir landið í dag. Síð- degis snýst vindur til suðvestlægrar áttar um suðvestan- og vestanvert landið með skúrum. Um norðan- og austanvert landið lægir seint í kvöld. Hlýnandi veður. Á höfuðborgarsvæðinu genguf í hvassa suðaustanátt með rigningu en snýst um hádegið í suðvestan- kalda eða stinningskalda með skúr- um. Hiti 8 til 9 stig í dag en 6 til (8 í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 18.53 Sólarupprás á morgun: 7.43 Síðdegisflóð 1 Reykjavík: 22.06. Árdegisflóð á morgun: 10.30 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjaö 5 Akurnes alskýjaö 5 Bergstaöir skýjað 7 Bolungarvík rigning 7 Egilsstaöir hálfskýjaö -1 Keflavíkurflugv. rigning 8 Kirkjubkl. alskýjaó 4 Raufarhöfn skýjaö 5 Reykjavík rigning 8 Stórhöföi rigning 8 Helsinki þokumóöa 9 Kaupmannah. skýjaö 7 Ósló léttskýjaö 2 Stokkhólmur þoka 7 Þórshöfn skýjað 6 Amsterdam léttskýjaö 5 Barcelona léttskýjaö 13 Chicago hálfskýjaö 18 Frankfurt léttskýjaö 8 Glasgow lágþokublettir 3 Hamborg skýjaó 9 London þokumóöa 6 Los Angeles heiöskírt 18 Madrid heiöskírt 5 Malaga heiöskírt 19 Mallorca skúr á síö. kls. 18 París skýjaö 8 Róm skýjaö 18 Valencia léttskýjaö 14 New York heióskírt 17 Nuuk hálfskýjaö 0 Vín skýjaö 16 Washington rigning 17 Winnipeg alskýjaö 1 Veðrið kl. 6 í morgun Sigursteinn Gíslason knattspyrnumaður: Fer í golfið þegar ég hætti í boltanum „Ég spilaði á miðjunni frá 1988 og alveg til ársins 1993, þegar ég fór í bakvarðarstöðuna. Það var því ekkert nýtt fyrir mig að spila þessa stöðu en ég er sammála því að þetta var herbragð hjá Guðjóni að láta mig á miðjuna, KR-ingar höfðu greinilega ekki átt von á því,“ segir Sigursteinn Gíslason. Hann er sá leikmaður Akra- nessliðsins sem mönnum ber sam- an um að hafi staðið sig einna best í úrslitaleiknum en hann var færð- ur úr bakvarðarstöðu sinni á miðj- una og átti frábæran leik og var greinilegt að þessi tilfærsla Guð- jóns hafði áhrif á leik KR. Maður dagsins Sigursteinn segir að hann hafi skemmt sér vel í leiknum: „Þetta var mjög skemmtilegt og við kom- um til leiksins fullir af sigurvilja. Það sama er ekki hægt að segja um KR-inga, mér fannst þeir and- lausir og miða þá við okkur. Ég held að það hafi hjálpaö okkur að við þurftum að vinna, okkur nægði ekki jafntefli eins og KR, þannig að það var sótt frá fyrstu Sigursteinn Gíslason. mínútu." Sigursteinn var mjög hrifinn af þátttöku áhorfenda: „Það var ótrúleg stemning á með- al þeirra enda fjöldinn gífurlegur og stuðningurinn var mikill, þá verður að þakka veðurguðunum einnig, það hafði rignt í mánuð og allt í einu kom sól og blíða daginn sem leikurinn var.“ Sigursteinn ólst upp á Akranesi og byrjaði í boltanum áður en hann gat farið að ganga að eigin sögn. Hefur hann leikið með ÍA alla sína tið ef undanskilin eru tvö ár sem hann lék með KR: „Ég náði að verða íslandsmeistari með KR í 2. flokki árið 1986 og lék nokkra 1. deildar leiki með KR árið 1987 áður en ég fór aftur á Skagann." Sigursteinn segir að stemningin fyrir fótboltanum á Akranesi sé gífurleg: „Það vita allir í bænum hvenær við erum að spila, við hverja og hvar, það má segja að líf- ið hér á Skaganum snúist um fót- boltann." Sigursteinn vinnur hjá Akra- neskaupstað. Á veturna er hann húsvörður í íþróttahúsinu og stjórnar vinnuskóla fyrir unglinga yflr sumartimann. Hann segir að lítið komist annað að þessa stund- ina en fótbolti, en spilar þó golf þegar hann getur: „Ég hef nú ekki farið nema þrisvar í sumar, en það er engin spurning, ég fer í golfið þegar ég hætti í boltanum. Þá er ég mikill spilamaður, við spilum nánast á hverjum degi, ég og félag- ar mínir í ÍA, Haraldur Hinriks- son og Steinar Adolfsson, spil sem heitir gúrka. Eiginkona Sigur- steins heitir Anna Elín Daníels- dóttir og eru þau bamlaus. -HK Slefberi Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi Ólafur Stefánsson, sem hér sést í landsleik gegn Rúmeníu, verð- ur í eldlínunni í kvöld. Ísland-Grikk- land Nú er fótboltinn búinn að syngja sitt síðasta á þessu ári og verður sumarið örugglega mörg- um eftirminnilegt, sérstaklega hvernig íslandsmótinu í 1. deild karla lauk. Þegar fótboltamenn- imir taka sér frí em handbolta- mennirnir komnir á fullt og er þegar hafm keppni í 1. deild karla. íþróttir Fyrsti landsleikurinn á hand- boltavertíðinni verður í kvöld en þá keppa íslendingar við Grikki. Þetta er fyrsti leikurinn í und- ankeppni fyrir heimsmeistara- keppnina. Leikurinn, sem fram fer á Akureyri, hefst kl. 20. Flest- ir af sterkustu leikmönnum okk- ar leika með í kvöld og þar á meðal em fimm sem leika með útlendum liðum. Síðari leikur- inn við Grikki fer fram i Grikk- landi á laugardag. Sigur er nauð- synlegur í báðum þessum leikj- um ætli ísland sér að komast í úrslitakeppni HM á næsta ári. Bridge Á fyrstu árum bridgeíþróttarin- anr var nafn Edwards Frischauers áberandi. Hann fæddist í Vín í Aust- urríki 1895 og gegndi hermennsku í fyrri heimsstyrjöldinni. Eftir þá heimsstyrjöld lærði hann „mann- ganginn" í bridge og varð m.a. heimsmeistari með Austurríkis- mönnum 1937. Ári síðar flúði hann til Bandaríkjanna eftir að Hitler é ÁKD * 109872 * KG 4 942 * 3 V G543 ♦ D976532 4 3 * G10987 * ÁKD Á10 4 Á75 innlimaði Austuríki í Þýskaland og skapaði sér nafn sem spilari vestan- hafs. Spil dagsins er frá tvímenn- ingskeppni í Vín árið 1935. Spila- færni Frischauers var við brugðið og ekki víst að margir sjái lausnina við borðið, horfandi á allar hendur. Samningurinn var 6 spaðar í suður og útspil vesturs var laufþristurinn. Þeim sem vilja spreyta sig á lausn- inni, eru gefnar þær forsendur að útspilið er einspil (austur kom inn í sagnir á laufi) og austur er með 4 spaða og vestur Gxxx í hjarta: Frischauer drap útspilið á laufás, tók þrjá hæstu í spaða, spilaði hjarta heim á ás og tók slag á spaða- gosann. Næsta hjarta sýndi hina slæmu legu í litnum en Frischauer tók þá hjartadrottninguna, svínaði tígulgosa og henti tigulásnum í hjartatíuna! Vestur átti einungis tígul eftir og varð að spila blindan inn á kónginn í litnum. Sagnhafi henti laufi í tígulkónginn og öðru laufl i fimmta hjartaö. Engu máli skiptir hvort vestur setur drottning- una á milli þegar tígli er spilað. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.