Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 11
I MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 11 DV Fréttir Guðmundur Valgeir Jóhannesson, vistmaður á elliheimilinu Sólborg, ásamt Jakobínu Jakobsdóttur sem einnig er vistmaður. Þau eru bæði himinlifandi yfir nýju aðstöðunni sem Guðmundur safnaði fyrir. DV-mynd BG Elliheimilið Sólborg á Flateyri: Níræður vistmaður safnaði milljón fyrir nýjum svölum DV, Flateyri: „Ég taldi ekki vera búandi hér nema hafa svalir á húsinu. Þess | vegna fór ég þess á leit við spari- sjóðinn, Lionsklúbbinn og fleiri að- ila að þeir gæfu peninga til þess að reisa mætti svalir á húsið,“ segir Guðmundur Valgeir Jóhannesson, níræður vistmaður á elliheimilinu Sólborg á Flateyri, sem gekk í það i verk að láta reisa svalir utan á vist- heimilið sem er á annarri hæð. Hann gekk á fund fyrirtækja og samtaka í þorpinu og óskaði eftir fjárframlögum til verksins sem nú er orðið að veruleika. Alls kostuð svalirnar tæplega milljón krónur og segist Guðmundur vera kominn langleiðma með að safna þeirri upp- hæð. „Ég taldi nauðsynlegt að komast út í góða veðrið og komast út ef kviknaði í húsinu. Þessari málaleit- an minni var tekið vel. Ég byrjaði á því að leggja sjálfur fram 100 þús- und krónur og leitaði síðan til ann- arra. Þessari málaleitan var tekið mjög vel og nú eru svalirnar komn- ar,“ segir Guðmundur Valgeir. -rt Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og eiginkona hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, voru heiðursgestir á leik Keflvíkinga og Hauka í meistarakeppni í körfuknattleik sem haldinn var í Grindavik á sunnudagskvöldið. Með for- setahjónunum á myndinni er Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleikssambands Islands. Akureyri: Knattspyrnu- hús í útboð á næstunni? DV, Aknreyri: „Það liggur fyrir fundinum að taka ákvörðun um að beina því til framkvæmdanefndar að leita til- boða í knattspyrnuhús," segir Þór- armn E. Sveinsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Akureyr- arbæjar, en ráðið mun koma saman til fundar á morgun. Hugmyndin um byggingu yfir- byggðs knattspyrnuvallar á Akur- eyri er ekki ný af nálinni en sam- kvæmt heimildum DV hefur verið unnið nokkuð vel að undirbúningi þess máls upp á síðkastið. Nokkrar tegundir slíkra húsa munu vera á markaðnum en Akureyringar munu hafa staðnæmst við svokallað C-hús sem er 40x60 metrar að flatarmáli með 5 metra lofthæð út við veggi en 10 metra lofthæð þar sem hún er mest. Staðsetning hússins hefur ekki verið endanlega ákveðin en þó er aðallega rætt um svæðið norðan við félagsheimili Þórs en þar sjá menn þann möguleika að tengja húsið við félagsheimilið og samnýta þannig búningsaðstöðu og fleira. Kostnaðurinn veltur einnig á hvaða leið verður valin og hver staðsetningin verður. Þó er talið að fá megi hús fyrir 60-70 milljónir á hafnarbakkann utanlands frá ef sú leið verður farin að tengja það við félagsheimili Þórs. Önnur hugmynd er að hafa húsið á öðrum stað á svæði Þórs en það myndi þá sam- kvæmt heimildum DV hafa í fór með sér umtalsverðan aukakostnað. SVARTI SVANURINN 10ÁRA AFMÆLISTILBOÐ: Pylsa + Súperdós Coke/Pepsi 175 kr. SVARTl SVANURINN Hoppkastali Hoppkastali til leigu t.d. í afmæli og fleiri tækifæri. Verð frá kr. 4.000 á dag (án vsk.) Tjaldaleigan Skemmtilegt hf Krókhálsi 3 - sími 587 6777 Góð fjárfesting í Reykjavík Margir sem eru búsettir úti á landi hafa keypt íbúð í Reykjavík til að fjárfesta og leigja hana síðan út. Vil selja verslunarpláss sem er 104 m2 á tveimur hæðum og er leigt út á kr. 70.000 pr. mán. (helmingi hærra en íbúð) og með 10 ára leigusamningi. Eignin hefur verið verðmetin á kr. 6,3 millj. og er skuldlaus, í verslunarmiðstöð á mjög góðum stað í borginni. Nánari upplýsingar gefnar upp í síma 554 2248 eftir kl. 19 á kvöldin. Vissir þú... □ að ui af langmerkilegustu sönnunum sálarrannsóknanna eru 1 líkamningar sem náðst hafa fram? En á líkamningamiðilsfundum nást hinir ffamliðnu fram holdi klæddir í eigin persónu og eru snertanlegir og áþreifanlegir öllum viðstöddum, O að í Sálarrannsóknarskólanum er hægt að fá vandaða kennslu af hendi margra lærðustu manna hér á landi um þessi sem ótrúlega mörg önnur afar merkileg fyrirbæri í spíritismanum, s.s. hvemig miðlar starfa, hættur í andlegum málum, hvað raunverulega er vitað um álfa og huldufólk o.fl. ofl., - í bráðskemmtilegum skóla eitt kvöld í viku eða eitt laugardags- síðdegi í viku fyrir hófleg skólagjöld? SíSasti bekkur ársins byrjar á morgun, Hringdit og fáðu allar upplýsingar um skólann og skemmtilega námið í honum nú á haustönninni. Svarað er í síma skólans alla daga vikunnarfrá kl, 14-19. Sálarrannsóknarskólinn - skemmtilegasti skólinn i bænum - Vegmúla 2 s. 561 9015 & 588 6050 DV-mynd Ægir Már

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.