Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 Spurningin Hvernig leggst haustiö í þig? Hulda Ósk Traustadóttir nemi: Alveg frábærlega. Sveinn Jónsson vélvirki: Bara mjög vel, gott veður og nóg af gæs. Ingvar Jónsson hljómlistarmað- ur: Hvað veðráttuna snertir þá held ég að það veröi skárra alls staðar annars staðar en í Reykjavík. Ingvaldur Jóhannsson nemi: Þaö leggst bara vel 1 mig. Viktor Ingvarsson kaupmaður: Það leggst bara mjög vel í mig, fint veður og svona. Lesendur Fólksflótti frá Vest- fjörðum brostinn á - þrír trúveröugir tjá sig Vestfirðir Dranga- Bolungarvík • ^ jokul1 Isafjöröur • Patreksfjörður g re i ö a fj 0 öröur —f » V *Á—— Veröur lausn Vestfjaröavandans sífellt háö ríkisaöstoö? Magnús Sigurðsson skrifar: Það þarf kjarkmikla menn og hugumstóra tii að játa frammi fyr- ir byggðarlagi sínu að brestur sé kominn í samfélagið, burðarásar atvinnulífsins séu í uppnámi, fólk sé óánægt og hrætt og lítið annað framundan en brottflutningur frá staðnum. Og þeim alvarlegri eru slíkar yfirlýsingar að þær koma frá ábyrgum mönnum, sem hafa ef til vill meiri innsýn í slagkraft við- komandi byggðarlaga en hinn al- menni ibúi. Nýlega hafa ekki færri en þrír þekktir menn á Vestfjörðum tjáð sig um þann vanda sem steðjar að byggðarlögunum og allir nánast sammála um að fólksflótti og gífur- legir erfiðleikar í atvinnulífi séu viðvarandi. Þannig segir Kristján Jóhannes- son, fyrrverandi sveitarstjóri á Flateyri, sem er að pakka saman og flytja brott, að þar sé enga at- vinnu að fá fyrir sig þrátt fyrir leit og hefur þó búið ásamt fjölskyldu á Flateyri alla tíð. - Þá staðfestir Kristján Þór Júlíussn, bæjarstjóri í ísafjarðarbæ, í viðtali við DV ný- lega að fólksflótti og kreppa sé í ís- lensku atvinnulífi - burðarásar at- vinnulifs séu í uppnámi. Ástandið sé mjög alvarlegt, þótt það þýði ekki að allt sé komið í kaldakol, og nefn- ir þrjú fyrirtæki sem kunni að lofa góðu. - Ög til að kóróna allt saman viðhefur Ásgeir Guðbjartsson, út- gerðarmaður og aflasæÚ skipsfjóri á ísafirði til margra ára, þau ummæli að ástandið nú sé það svartasta sem hann hafi séð á ævinni. Hann sjái ekki annað en þetta svæði sé að fjara út. Ef það er ríkjandi viðhorf hjá ein- hverjum þarna vestra að hiö opin- bera eða stjómvöld verði að „koma að vandanum", eins og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Vestfirðinga lætur hafa eftir sér í nýlegri frétt frá ísafirði, þá er það viðhorf áreiðanlega bundið við þá eina sem þiggja laun frá hinu op- inbera. - Ekki raunverulega at- hafnamenn. Þeir meta ástandið kalt og vita sem er að Vestfirðir era ekki lengur lífvænlegir til búsetu. Verður þáttasala banabiti Stöðvar 3? María skrifar: Ég hefði haldið að eina von Stöðv- ar 3 væri að bæta þá lélegu dagskrá sem nú hefur verið opin í hátt í ár. Nei, stefnan virðist sú að ef Stöð 3 nær samningum um bitastæða kvikmynd eða merkilegan íþrótta- viðburð þá verði áskrifendur að borga aukalega fyrir. Nú spyrja menn hér víða: Fyrir hvað er fólk að greiða mánaðargjaldiö? Sömu lé- legu dagskrána og verið hefur og komi eitthvað af viti sem fólk hefur áhuga á þarf að borga aukalega. Kvikmynd, sem seld er í þátta- sölusjónvarpi, er búin að vera á myndbandaleigum í 6 mánuði. Hún er orðin of gömul á leigunum. Ekki er ólíklegt að leigumar mæti þess- ari samkeppni, t.d. með því að lækka viðkomandi mynd, eða hún yröi fri þá daga sem Stöð 3 ætlar að leigja hana. Ég held að Stöðvar 3- menn ættu að hugsa sinn gang, sér- staklega nú þegar fjölrásaafruglar- inn er úr sögunni, og einbeita sér að því að bæta dagskrána þannig að fólk fái áhugavert efni fyrir áskrift- argjaldið. Annars er verið að plata fólk. Nú heyrast fréttir um aö Stöð 2 ætli að taka upp þáttasölu („pay- per- view“) í nóvember. Þeir viröast hafa smitast af þessum misskilningi að þáttasölusjónvarp sé einhver uppsláttur. Ég ætla að vona að þeir átti sig á því að t.d. margir þeir sem hafa gerst áskrifendur að Sýn und- anfama mánuði horfa ekki á stöð- ina dags daglega heldur greiða mán- aðargjaldið vegna vinsæOa sýninga, svo sem 2-3svar í mánuði. Sérstak- lega á íþróttasviðinu. Ef þeir ætla að fara að rakka mig aukalega fyrir það eina sem ég horfi á þá segi ég stöðinni upp á stundinni og eflaust margir aðrir. - Þeir sem til þekkja segja þáttasölusjónvarp ganga iila í Bandaríkjunum og í Evrópu fari menn sér hægt. Hér á okkar litla markaði er það vonlaust. Skundum á Þingvöll í haustlitunum Einar Á. E. Sæmundsen land- vörður skrifar: í DV þriðjud. 24. september birt- ust hugrenningar Sigríöar Halldórs- dóttur um ýmis málefni líðandi stundar undir heitinu „Skundum á Þingvöll". Þar birtast ýmsar rang- færslur um þjóðgarðinn á Þingvöll- um sem ekki verður hjá komist að leiðrétta. Þar nefnir greinarhöfund- ur m.a. að eftir fyrsta september sé allt harölokað og læst á Þingvöllum. Seinustu ár hefur þjónustumið- stöðin á Þingvöllum verið opin fram eftir hausti og selt kaffi og ýmsar veitingar og veitt upplýsingar um náttúra og sögu Þingvalla. í haust verður verslunin í þjónustumiðstöð- inni opin frá 10 til 18 alla daga í okt- óber en um helgar í nóvember. í vor og í sumar hefur þjónustumiðstöðin verið tekin í gegn að innan sem utan og hafa gestir þjóðgarðsins undantekningarlaust lokið lofsorði á breytingarnar sem þó er ekki að fullu lokiö. Gönguleiöir innan þjóð- garðsins eru velflestar merktar og á stórum skiltum við útsýnisskífu og við þjónustumiðstöðina má sjá ná- kvæmt kort af þjóðgarðinum, gönguleiðum og nánasta umhverfi hans. Einnig er hægt að fá í þjón- ustumiðstöð bækling þar sem er ágrip af sögu staðarins og náttúra lýst og kort af svæðinu sýnt. Varðandi rekstur á Hótel Valhöll má benda á að ríkið á ekki hótelið og hefur reksturinn frá byrjun ald- arinnar verið í höndum einkaaðila. Rekstraraðilar hótelsins í gegnum tíðina hafa líklega ekki talið mikinn grundvöll fyrir því að hafa opið langt fram eftir hausti og því er hót- elinu yfirleitt lokað um miðjan sept- ember. Það er von mín að greinar- höfundur skundi nú á Þingvöll og njóti haustlitanna og fái sér svo kafíi í þjónustumiðstöðinni á Þing- völlum. I>V Er allur ostur hollur? Símon hringdi: Sagt er að mjólkurdrykkja fullorðinna sé vafasöm velgjörö við heilsuna. Mjólk sé fyrst og fremst barnanæring en síðan ekki söguna meir. En osturinn? - Mér hefur verið tjáð, og það af læknislærðum, að harði ostur- inn, þ.e. þessi sem maður sker niður í sneiðar, sé jafn óhollur og önnur hörð fita svo sem smjör og smjörlíki; setjist bara innan á æðarnar. Um lina ostinn, svo sem Camembert, Kastalann og fleiri slíka gegndi allt öðra máli, hann væri jafnframt auðmeltan- legur. - Það er ekki út af engu að siöaðar þjóðir neyta osta helst sem eftirrétta og skera þá rétt smábita af hverri tegund eins og um konfekt eða sælgæti sé að ræða. Happdrætti Háskólans heppnast allra Egill skrifar: Margir furöa sig á fréttinni um að Háskóli íslands hafi sjálf- ur dottið í lukkupottinn í „Heita pottinum" sem dregið var úr nú síðast. Já, vinningshafinn reynd- ist ekki vera neinn annar en Há- skóli íslands sjálfur! Hvílík heppni! Háskólinn vann tæpar 50 milljónir á einu bretti. Fréttin greindi einnig frá þvi að í desem- ber yrði eingöngu dregið úr „seldum miðum“ og þá gangi sá stóri örugglega út. Hefur þá hingað til aðeins verið dregið úr óseldum miðum? Þá er nú ekki að undra ... Klaufaleg tilraun þingforseta Gunnar Gfslason hringdi: Mér finnst þetta brambolt með breytt form á þingsetningu hafa verið með eindæmum klaufalega tihaun til að deyfa sviðsljósið á nýkjörinn forseta. Tilraunin mistókst og allt er óbreytt. Svona eiga reyndir þingskörung- ar eins forseti Alþingis ekki að láta henda sig. Maður minnist nú ekki á tihaun annarra þing- manna til að þagga niður í for- setanum um moldarvegina á Barðaströnd. Svona gera menn einfaldlega ekki. Leifsstöð og Reykjavíkur- flugvöllur Guðjón Magnússon hringdi: Er nú ekki nógu stór biti fyrir ríkið aö veita 650 milljónum króna í stækkun á Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þótt ríkið fari ekki að eyða líka í vonlausar endur- bætur á Reykjavíkurflugvelli? Stækkun flugstöðvarinnar er víst nokkuð sem ekki verður komist hjá og einungis vegna handvammar í upphafi. En þá verður líka flugstöðin tilbúin að taka við öllu okkar flugi frá þétt- býlissvæðinu hér við Faxaflóa. Ríkisrekinn Evrópuprestur Hrönn skrifar: Hvemig dettur nokkrum ráð- herrum í hug að sameinast um að leysa Langholtsdeiluna með því að búa til Evrópuprest á kostnað íslenska ríkisins? Því ekki lækni eða lögfræðing? En í fullri alvöra: Hvemig hefði nú verið að mæta brýnni þörf t.d. Reykvíkinga á aukinni löggæslu með því að veita 5 milljónum í það verkefni? Ráða svo sem 10 viðbótar lögreglumenn til að vera á vakt um helgar, tvo og tvo í hvert hverfi borgarinnar. Þetta er knýjandi. Ekki prestur til Lúxemborgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.