Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 5 DV Fréttir Sala Akureyrarbæjar á hlutabréfum I ÚA: Áhrifanna gætir í auknum framkvæmdum strax á næsta ári DV, Akureyri: „Sala hlutabréfa bæjarins í Út- gerðarfélagi Akureyringa leiðir af sér aukið fé til ráðstöfunar og ég tel að það muni sjást á framkvæmdum bæjarins strax á næsta ári,“ segir Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfull- trúi Alþýðuflokksins í meirihluta bæjarstjómar Akureyrar, um sölu bæjarins á hlutabréfum í ÚA að undanfornu. Bærinn seldi hlutabréf í fyrirtæk- inu í sumar en Útgerðarfélagið keypti þá sjálft hlutabréf fyrir rúm- lega 400 milljónir króna. Þá hefúr bæjarstjórn gert samning við Kaup- þing Norðurlands um sölu á hluta- bréfum í fyrirtækinu að nafnvirði 123,2 milljónir króna. í sumar seld- ust bréf í fyrirtækinu á genginu 4,98 og miðað við það mun Kaupþing Norðurlands selja bréf fyrir um 660 milljónir króna. Akureyrarbær fær því um 1,1 milljarða króna fyrir hlutabréf í ÚA, og á eftir sem áður 20% hlut í fyrirtækinu og verður áfram stærsti hluthafinn. Ákveðið er að starfsmenn fyrir- tækisins og aðrir Akureyringar muni hafa forkaupsrétt\ að bréfun- ums sem nú fara í sölu, en ef bréfín seljast ekki upp á þann hátt fara þau á almennan markað. Reiknað er með aö forkaupsréttartími Akureyr- inga nemi þremur vikum og verður hann auglýstur sérstaklega. „Það er ljóst að skuldir verða greiddar niður með þeim peningum sem bærinn er að fá fyrir hlut sinn í ÚA. Hugmyndir bæjarins eru í grófum dráttum þær að greiddar verði allar skuldir framkvæmda- sjóðs bæjarins og að sjóðurinn fái eitthvert fé til sinna nota. Síðan verður greidd veruleg upphæð upp i skuldir bæjarsjóðs. Það er þá loksins að verða að veruleika að framkvæmdasjóður standi undir nafni, og að hann geti ýmist lánað fé til framkvæmda eða veitt styrki til áhugaverðra verk- efna. í smáatriðumn sjáum við þetta mál hins vegar ekki fyrr en við gerð fjárhagsáætlunar, en bara það eitt að greiða niður skuldir þýðir að við höfum meira fé til framkvæmda strax á næsta ári og hleypur sú upp- hæð á einhverjum tugum milljóna," sagði Gísli Bragi Hjartarson. -gk i SBALENO Akureyri: Framkvæmdir hafnar við nýja 25 m sundlaug DV, Akureyri: Framkvæmdir eru hafnar við 2. áfanga í uppbyggingu á sundlaugar- svæðinu á Akureyri. I 1. áfanga, sem lokið hefur verið við, var kom- ið fyrir tveimur vatnsrennslisbraut- um, sólbaðsaðstaða öll endurbætt, umhverfið fegrað og hefur sund- laugarsvæðið þegar tekið algjörum stakkaskiptum. í þeim áfanga, sem framkvæmdir eru nú hafnar við, verður byggð stór 25 metra löng sundlaug við hlið gömlu laugarinnar og kjallari undir búningsklefa og anddyri. Reiknað er með að framkvæmdum við þenn- Fiskverð: Steinbíturinn dýr Mjög hátt verð hefur verið á steinbít, skötusel og flatfiski í sept- ember á fiskmörkuðum og hefur fengist tvöfalt hærra verð fyrir steinbít en venjulega, að því er fram kemur i frétt frá Reiknistofu fisk- markaða hf. Verð sem fengist hefur fyrir sköt- usel er 25% hærra en verið hefur og 35-40% hærra á flatfiski. Þorskverð er sömuleiðis hátt en verð á ýsu hins vegar í meðallagi. Verð á ufsa hefur verið að stíga undanfarna daga eftir að hafa verið í lægð i sumar. -SÁ Frumlegt happdrætti: Tannlæknatímar meðal vinninga DV, Djúpavogi: „Það er svo erfitt fyrir fólk að láta enda ná saman. Þess vegna ákváð- um við að bjóða upp á þessa vinn- inga,“ segir Hafdís Bogadóttir, for- maður foreldraráðs Ungmennafé- lagsins Neista á Djúpavogi, sem ásamt öðrum Neistafélögum stóð fyrir happdrætti í sumar. Þetta væri ekki í frásögur fær- andi ef vinningarnir hefðu ekki ver- ið mjög sérstakir. Meðal vinninga voru tímar hjá tannlækni, birki- plöntur, ljósatimar auk fjölda ann- arra hefðbundinna vinninga. Allir fengu eitthvað því happdrættismið- arnir giltu sem aðgöngumiði að heljarmikilli grillveislu sem Kaup- félag Austur- Skaftfellinga á Djúpa- vogi stóö fyrir. Hafdís segir að mið- arnir hafi selst upp á skömmum tíma. „Ég hefði ekki trúað því hve fólk tók þessu framtaki vel. Við buðum eingöngu miða utan staðarins og þeir runnu út eins og heitar lumm- ur,“ segir Hafdís. -rt an áfanga verði lokið í byrjun júní á næsta ári. Þá fljótlega hefst vinna við 3. áfanga en þar er m.a. um að ræða að ganga frá búningsklefum kvenna og ljúka við byggingu anddyris auk fleiri verkefna. Framkvæmdir á sundlaugarsvæðinu hafa verið og verða næstu árin með fjárfrekustu verkefnum á vegum Akureyrarbæj- ar og þykir hafa tekist einstaklega vel til með þær framkvæmdir sem þegar er lokið. -gk Framkvæmdir eru hafnar viö 2. áfanga við sundlaugina á Akureyri og vinnu- vélar eru þar í notkun vegna jarövegsvinnu. DV-mynd gk Ég skipti líka á Corollunni minni og Baleno SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. Bjami Guðjónsson Komdusjálfum þér oq fjölskyldu þinni á óvart. Prufukeyrðu Baleno ídag!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.