Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Blaðsíða 28
28
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
Helgarblað__________________x>V
Þjóðhetjurnar
okkar þrjár
- íslenska afreksfólkið í Sydney segir frá sorgum og sigrum, vináttu, vonbrigðum og framtíðinni
Nú er gaman að vera íslend-
ingur. Hjarta okkar er fúllt af
þjóöarstolti því aldrei áður
hafa íþróttahetjur okkar sýnt eins
glæsilegan árangur og á Ólympíuleik-
unum í Sydney sem nú eru senn að
baki. Árangur Völu Flosadóttur, Amar
Amarsonar og Guðrúnar Amardóttur
er hjá hverju og einu besti árangur
sem íslendingur hefur náð í sinni
grein.
Það má segja að við höfum fengið
forsmekkinn af nokkurs konar sigur-
vímu þegar öm Amarson varð í fjórða
sæti í sundkeppni og þjóðinni fannst
eins og draumur hefði ræst. Síðan
stökk Vala Flosadóttir eins og ekkert
væri upp í þriðja sæti í stangarstökki
og fyrsta medalían, siðan Bjami Frið-
riksson júdókappi jarðvarpaði mönn-
um fyrir 16 árum, var staðreynd. Guð-
rún Amardóttir lauk síðan glæsilegum
hlaupaferli sínum með því að þjóta í
sjöunda sætiö í úrslitum í grinda-
hlaupi og verður þannig fyrst Islend-
inga tii að komast í úrslit í hlaupa-
greinum á leikum sem þessum.
Þessar þrjár þjóðhetjur era því
staddar á ólíkum stað á sínum íþrótta-
ferli. Vala og Öm era bæði ung og hafa
þegar skipað sér í fremstu röð og af
þeim má vænta frekari afreka þar sem
þau munu án efa keppa á fleiri Ólymp-
íuleikum en þessum. Guðrún er hins
vegar að ljúka sínum ferli.
Blaðamaður DV í Sydney myndaði
þjóðhetjumar þijár og spjailaði við
þær Guðrúnu Amardóttur og Völu
Flosadóttur um sigurinn og framtíð-
ina.
Völu dreymdi um verölaun
Árangur Völu hefur vakið gríðar-
lega athygli í Ástralíu og fjöldi fólks
sér ástæðu til að stoppa hana á götum
úti og óska henni tU hamingju og varð
blaðamaður vitni að nokkrum slíkum
tUvikum.
Gastu fyrir fram gert þér í hugar-
lund eitthvað þessu likt sem raunin er
orðm nú?
Öm Arnarson synti í Qórða sæti í
sinni grein
Örn hefur buslaö í laug frá því
hann var ungbarn, afkomandi
sundgarpa í þrjár kynslóöir. Hann
á eftir aö kepþa á 2-3 Ólymþíu-
leikum ef vel gengur. Hann er
íþróttamaöur sem á mikiö eftir
enn en sagöi í samtali viö DV aö
hann vildi eiga líf eftir sundiö.
DV-MYNDIR PJÉTUR
Guörún Arnardóttir svífur yfir grindurnar í sínu síöasta hlaupi
„Þaö kom mér alls ekki spánskt fyrir sjónir að fá bréf frá Vésteini þar sem voru ieiðbeiningar um það hvernig þeir keppendur sem
unnu til verðlauna ættu aö haga sér viö verölaunaafhendingu."
„Nei, en þaö var draumurinn að
standa á verðlaunapaUi. Ég kom hing-
að með því hugarfari að gera mitt
besta og tókst það svo sannarlega. Ég
hugsa hins vegar ekki þannig fyrir
fram að ég ætli mér að ná einhveiju
ákveðnu sæti en að sjálfsögðu er það
frábært að standa á verðlaunapaUi fyr-
ir framan 112 þúsund manns.“
Nú hefur ykkur Guðrúnu gengið
mjög vel og eftir því tekið en það gekk
ekki eins vel hjá sumum öðrum. Hafa
áfóU annarra áhrif á keppni þeirra
sem á eftir koma?
Engimi veit hve álagiö er mikiö
„Það besta við þennan hóp er hvaö
andinn í honum er góður og við sýn-
um hvert öðra mikinn og góðan stuðn-
ing, sama hvemig gengið hefur. Þetta
sýnir að íþróttimar era eins og lífið
sjáUt, það gengur upp og niður. Stund-
um gengur manni vel og stundum ekki
og lífið er ekki aUtaf eins og maður viU
hafa það. Það er afrek að komast á
Ólympíuleika og aUir hafa lagt gríðar-
lega mikið á sig tU að komast hingað.
SkyndUega rennur siðan upp sú
stund að maður þarf að framkvæma og
þá má ekki mikið út af bera. Ég held
að fólk geri sér almennt ekki grein fyr-
ir því hvað þetta er mikið álag og hvað
það er mikið sem þarf að smeila sam-
an á réttri stundu.“
Vala segir að hún hafi heldur betur
þurft að sæta áfóUum á sínum ferU.
„Það er kannski mest þá sem maður
þarf á stuðningi að halda.“
Á hvaða tímapunkti fmnur þú mest
fyrir þessu álagi?
„Það er oftast rétt fyrir keppnina
þar sem maður er að bíða eftir að hún
hefjist, en þegar í keppnina er komið
Örn Arnarson í sjöunda himni eftir sundiö
Fyrir fram var Örn gagnrýndur fyrir aö vera aöallega „25 metra maöur” og
heföi aldrei náö árangri í 50 metra laug. Örn þaggaöi eftirminnilega niöur
í þessum gagnrýnisröddum og segist eiga góöa möguleika á að keppa á
tvennum Ólympíuleikum í viöbót.
breytist það aðeins. Þá er maður kom-
inn á staðinn og hefur möguleika tU
þess að breyta hlutunum og bregðast
við aðstæðum."
Var Vala aö ganga af göfluiv
um?
Þeir sem fylgdust með úrslitakeppn-
inni í stangarstökkinu hefðu margir
getað spurt sig hvort Vala Flosadóttir
væri að ganga af göflunum. Þú gekkst
um syngjandi og traUandi:
„Ég held að stelpumar sem vora að
keppa með mér hafi verið famar að
halda það,“ segir Vala og hlær. „Þetta
var bara svo rosalega gaman og ég
naut þess að vera inni á vellinum við
þessar aðstæður. Það var dúndrandi
tónlist í hátölurum og mér fannst það
sjálfsagt mál að syngja með tU að kýla
upp stemninguna hjá mér.“
Ekki bara innanhúss
Nú hefur þú verið gagnrýnd dálítið
fyrir það að þú haflr kannski aðeins
staðið þig vel á innanhússmótum en
nú nærð þú í verðlaun á Ólympíuleik-
um sem era stærsta utanhússmót í
fijálsum íþróttum.
„Ég hef heyrt þessa gagnrýni og hef
sjálf leitt hugann að þessu líka. Það
var staðreynd fram að þessu að ég hef
náð miklu betri og jafnari árangri inn-
anhúss. Aðstæður innanhúss era aUtaf
eins og auðveldara að halda stöðugu
jafhvægi í stökkunum. Mér þótti mjög
gott að geta sýnt það nú að ég get þetta
líka utanhúss."
Hvemig tekur þú gagnrýni?
„Það er aUtaf gott að fá gagnrýni á
meðan hún er uppbyggjandi og maður
þarf á henni að halda tU að geta bætt
sig og breytt hlutunum. Maður getur
hins vegar ekki verið að velta fyrir sér
ósanngjamri gagnrýni. Ég tek eftir
henni en ég velti mér aUs ekki upp úr
henni."
Ltfið er stangarstökk
Snýst líf þitt aðeins um stangar-
stökk?
„Já, þaö hefúr gert það. Þetta er sól-
arhringsstarf en ég hef þó reynt að
stunda nám með. Ég hef samt ekki get-
að sinnt því að fúUu og hef því aðeins
verið í hálfu námi og mun halda því
áfram.“
Nú hafa heyrst raddir þess efúis að
þú sért á leið tU Bandaríkjanna tU að
setjast þar tU æfrnga?
„Það hefúr ekkert verið ákveðið um
framhaldið á þeim nótum. Nú er ég í
minni hvUd og leyfi hlutunum að
malla og er ekkgrt að stressa mig neitt
yfir því. Ég hef ekkert spáð í það hvaða
tíma ég ætla mínum ferli. Það fer bara
eftir því hvað líkaminn og hugurinn
komast áfram. Meðan þetta er gaman
held ég áfram."
Hvemig heldurðu að það verði að
keppa á mótum hér eftir þar sem era
ekki 112 þúsund manns á veUinum og
tónlistin ekki eins hávær og hér var?
„Það verður eflaust góð tUfinning
líka en hún verður öðravísi. Þetta þarf
ekki aUtaf að vera eins og það sé ekk-
ert gaman nema hlutimir séu dálítið
frábrugðnir."
Hvaö segir Vala um Guðrúnu,
vinkonu sína?
Það hefur verið tekið eftir því i
kringum Ólympíuleikana að myndast