Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Blaðsíða 50
J 58
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
Tilvera
jcw
1 í f ið
E F T I P 7 I íi fl IJ
Skartgripir í
Hafnarborg
I dag verður opnuð sýning í Hafn-
arborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, á verkum fimm nor-
rænna skartgripahönnuða.Taru
Harmaala og Inni Parnanen frá
Finnlandi, Agnieszka Knap og Auli
Laitinen frá Svíþjóð og Ásu Gunn-
laugsdóttur. Oftast eru skartgripir
sýndir undir gleri og þannig búið
um hnútana að skoðandinn fær
ekki að snerta þá. Við hönnun sýn-
ingarinnar var hins vegar haft að
leiðarljósi að skoðandinn hefði
möguleika á að snerta og prófa
*' skartgripina.
Kiassík
■ SINFONIUHUOMSVEIT AHUGA-
MANNA I dag kl. 17.00 heldur Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna tón-
leika í Neskirkju. Stjórnandi á tón-
leikunum verður Ingvar Jónsson,
einleikarar á fiðlu Hildur Ársælsdótt-
ir og María Huld Markan Slgfús-
dóttir og einleikari á flautu Ashildur
Haraldsdóttir. Á efnisskránni eru
verk eftir J.S. Bach..
■ TVÍLEIKUR Á SELLÓ OG PÍANÓ
I SALNUM I Salnum í Kópavogi
munu Siguröur Halldórsson, selló,
og Daníel Þorsteinsson, píanó, flytja
allar sónötur Beethovens fyrir selló
og píanó. Tónleikarnir hefjast kl.
15.Miðsala er opin virka daga frá
kl.13.00-18.00 tónleikadaga til kl.
20.00 og um helgar klukkustund fyr-
ir tónleika.
Leikhús
■ SEX I SVEIT I SIÐASTA SINN
Allra síðasta sýning á Sex í sveit í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 19.
■ STORMUR OG ORMUR Barnaein
leikurinn Stormur og Ormur verður
sýndur í Kaffileikhúsinu í dag kl.
15.00. Þetta er 10. sýning einleiks-
ins.
* ■ SHOPPING AND FUCKING EGG-
leikhúsið sýnir í samvinnu viö Leikfé-
lag íslands í Nýlistasafninu verkiö
Shopping and Fucking í kvöld, kl.
20. Þaö eru G-kortin sem blíva í
kvöld.
Opnanir
■ GUÐMUNDUR í STÖDLAKOTI
Guömundur W. Vilhjálmsson opnar
málverkasýningu I Stöðlakoti, Bók-
hlöðustíg 6, í dag. Þetta er fimmta
einkasýning Guömundar. Á sýning-
unni eru vatnslita- og pastelmyndir.
Opiö alla daga frá 14-18. Sýning-
unni lýkur 15. október.
■ MÁLVERK í HAFNARBORG í dag
kl. 16.00 veröur opnuð í Hafnarborg
í Hafnarfirði sýning á málverkum
Þorbjargar Höskuldsdóttur. Sýningin
stendur til 16. október og er opin
alla daga nema þriðjudaga frá 12 til
18.
■ SIGURÐUR ÁRNI HJÁ SÆVARI
Siguröur Ami Sigurðsson opnar sýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls í dag kl.
14. Sýningin verður til 20. október
og er opin á opnunartíma verslunar-
innar.
■ TEIKNINGAR KATRÍNAR BRIEM
í dag kl. 15 veröur opnuö sýning á
teikningum Katrínar Briem í safninu
í kjallara Skálholtsskirkju. Myndirn-
ar eru unnar við sálma og Ijóö Valdi-
mars Briem og birtust þær í nýút-
Jfc. komnu riti Guðfræðistofnunar Há-
skóla íslands.
■ ÁSDÍS í GULA HÚSINU Ásdís
Gunnarsdóttir myndlistarkona opnar
sýningu í Gula (græna) húsinu í
kvöld kl. 20:00. Sýningin er samsett
úr gjörningum sem framkvæmdir
veröa af 10 mynlistarmönnum. Sýn-
ingunni lýkur 15. október. __
1 Sjá nánar: Lífið eftlr vinnu á Vísi.is
Rakel
Henni finnst gaman aö vinna meö
blöðin. Henni finnst skemmtilegast
aö lesa um íþróttir enda æfir hún
sjálf fimleika.
Frikki
Hann er að lesa grein um kvikmynd
og segist ánægöur meö dagblaöa-
verkefniö. Skemmtilegast finnst hon-
um aö lesa teiknimyndasögur, kvik-
myndagagnrýni og íþróttir.
Hörður
Honum finnst gaman aö vinna meö
þlöðin og mest gaman aö lesa um
íþróttir og teiknimyndasögur. Hann
er ánægöur með tilöreytinguna og
finnst skemmtilegast aö lesa DV.
Tveir ungir Kópavogsbúar eru sestir á skólabekk í Stýrimannaskólanum:
Strákar stefna
Veggmynd afhjúpuð í Hólabrekkuskóla:
Tifandi klukkur, rennandi
vatn og lifandi fiskar
Hildur
Henni finnst gaman aö vinna meö
þlöðin, lesa og gera ööruvísi verk-
efni en vanalega. Henni finnst mest
gaman aö lesa iþróttafréttir, mynda-
sögur og stjörnuspá.
Emil
Honum finnst ekkert rosalega gaman
aö vinna meö blöðin. Honum finnst
þetta hálfgert vesen og bara þægi-
legra þegar skólinn er venjulegur.
Myndasögurnar og bíóauglýsingarnar
eru þaö eina sem hann segist iesa.
á pungapróf
veir ungir menn settust á skóla-
bekk í Stýrimannaskólanum nú i
haust. Þeir Teitur Gunnarsson og
Elvar Steinn Þorvaldsson eru 14 og
15 ára hressir strákar úr Kópavog-
inum og hafa stundað þar siglingar
frá því þeir voru litlir. „Okkur lang-
aði að ná okkur i meiri réttindi,"
segir Elvar Steinn. Þeir félagar
stefna á 30 tonna réttindi eða svo-
kallað pungapróf.
Teitur og Elvar Steinn eru í 10.
bekk en segja það ekki mikið mál að
bæta Stýrimannaskólanum við. Þeir
eru í skólanum þijú kvöld í viku frá
kl. 18.00 til 22.30, en námið stendur
fram í nóvember. Námsgreinarnar
eru siglingafræði, stöðugleiki, vél-
fræði, skyndihjálp og fleira. „Við
erum búnir að læra alveg ótrúlega
mikið,“ segir Elvar og sögur herma
að þeir séu afar áhugasamir um
námið. Það er líka hvetjandi fyrir
þá að þeir fá námið metið sem val-
fag í skólanum.
Þótt þeir Teitur og Elvar Steinn
séu óumdeilanlega yngstu nemend-
urnir í hópnum segja þeir aldursbil-
ið breitt. „Þetta er fólk á aldrinum
17 til 70 ára,“ segir Teitur, „og það
eru þrjár konur.“ Þeir segjast þó að-
allega blanda geði við þá yngri.
Strákamir hlakka til að fara að
eiga við meiri báta en þeir eru nú
að sigla í Kópavoginum. „Við stefn-
um hátt,“ segir Teitur. Þeir segjast
þó ekki stefna á sjómennsku heldur
fyrst og fremst að sigla sér til
skemmtunar. „Draumaskipið er
stór og flott skúta sem hægt er að
sigla á um heimsins höf,“ segir Teit-
ur og strákarnir taka alls ekki fyrir
að þeir séu ævintýramenn.
-ss
Með bekkjarfélögunum
Teitur Gunnarsson og Elvar Steinn Þorvaldsson í hópi bekkjarfélaga sinna.
sem raðað er saman á vegg. Það er
unnið úr jámi og gleri og eru tif-
andi klukkur, rennandi vatn og lif-
andi fiskar hlutar af verkinu.
Undirbúningurinn hófst í október
1999 með hugmyndavinnu og ýms-
um æfingum. í byrjun árs 2000 var
byrjað að vinna við verkið sjálft.
Myndimar voru unnar í leir eða
sand og síðan teknar gifsafsteypur.
Af gifsmyndunum voru ýmist tekn-
ar járnafsteypur eða brætt yfir þær
gler. í sumar myndirnar var svo
unnið með olíulitum eða ákveðnir
hlutar þeirra látnir ryðga.
Veggmyndin er verkefni Hóla-
brekkuskóla í tengslum við Reykja-
vík menningarborg Evrópu árið
2000 en þátttaka grunnskóla Reykja-
víkur í menningarárinu fólst í verk-
efninu Listamenn í grunnskólum
sem fólst í að virkja sköpunargáfu
og frumkvæði nemenda undir hand-
leiðslu starfandi listamanna úr öll-
um greinum lista. Verkefnið Lista-
menn í grunnskólum er eitt af
stærri verkefnunum sem Reykjavík
menningarborg Evrópu árið 2000
stendur fyrir. Alls störfuðu 32 lista-
menn í 33 grunnskólum borgarinn-
ar í tengslum við verkefnið.
-ss
í vikunni var afhjúpuð vegg-
myndin Tíminn og vatnið í Hóla-
brekkuskóla. Myndin er unnin af
nemendum í 9. og 10. bekk skólans
út frá ljóðinu Tíminn og yatnið.
Magnús Tómasson myndlistarmað-
ur stýrði vinnu nemendanna.
Verkið er samsett úr einingum
Tíminn og vatniö
Veggmyndin er unnin út frá Ijóðinu Tíminn og vatniö.