Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Page 3
Bólgueyðandi og verkjastillandi
Notkunarsvið: íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi og verkjastillandi lyf. Lyfið er notað við liðagigt, slitgigt,
tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig má nota það sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir, t.d. tanndrátt. Varúðarreglur:
Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða er með skerta lifrarstarfsemi má ekki nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftirtöku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja (annarra en barkstera) ætti ekki
að nota lyfið. Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað
vanfærum konum. Aukaverkanir: íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. ofnæmi (útbrot) og meltingaróþægindum.
Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um skömmtun fýlgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega
leiðbeiningarsem fylgja lyfinu. 01.09.01.
LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI
www.delta.is