Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 18
krikjunni með messu og prédikun biskupsins yfir Islandi, en
vígslubiskup og prestur staðarins, sr. Sighvatur B. Emilsson
þjónuðu fyrir altari.
Hátalarakerfi var komið fyrir utan kirkju því að aðeins
takmarkaður hluti hátíðargesta komst inn, en þarna mætti
fólk úr öllum landsfjórðungum, ungir og aldnir „Fólkið þusti
heim að Hólum“ rétt eins og Matthías kvað um það er skeði á
dögum Jóns Ögmundssonar biskups. Þarna mættu nú: For-
seti íslands, ráðherrar og þeirra frúr og yfirleitt fólk úr fjöl-
mörgum stéttum þjóðfélagsins.
Eftir að athöfn í kirkju var lokið var stefnt til hátíðarsvæðis
úti, þar sem Jóhannes Sigvaldason, lic. agro. á Akureyri, setti
samkomuna og kynnti dagskrá. Hófust síðan ræðuhöld og
kom þar fyrst í ræðustólinn Vigdís Finnbogadóttir, forseti
þjóðarinnar, þá skólastjóri Bændaskólans, Jón Bjarnason, þá
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra og síðan röð fulltrúa og
forystumanna ýmissa stofnana og starfshópa. Milli atriða
söng skagfirski karlakórinn Heimir.
Fyrirfram gerðri dagskrá var lokið kl. 16.30, en aukalega
bauðst gestum tækifæri til að skoða staðinn og vissa starfs-
þætti tengda honum svo sem laxeldisstöðina Hólalax og
nokkur kynbótahross búsins.
Af þátttöku i kaffiveitingum, að dagskrá lokinni, mátti ráða
að nálægt 2000 manns hafi heimsótt Hólastað við þetta
tækifæri.
Kveðjur úr mörgum áttum streymdu inn og gjafir voru
gefnar, langstærst þeirra var að sjálfsögðu sundlaugin, er for-
maður fjáröflunarnefndar afhenti svo sem frá er sagt. Af öðr-
um gjöfum má nefna: Gestabók glæsilega, litprentaða
Skarðsbók, útskorin nöfn á hurðir heimavistarherbergja, lit-
prentaðar illgresistöflur Korsmos sem kennslutæki, bókagjaf-
ir, pennateikningar o.m.fl.
Þrátt fyrir kalt veður og miður hagstætt þennan dag virtust
allir snúa heim á leið þakklátir í huga og glaðir eftir góðan dag
undir góðri stjórn á virðulegum vettvangi hátíðarhaldsins.
20
-