Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 79
úr eigin búskap og aukin heimaöflun þá allt það, sem unnt er
að nýta betur úr einstökum þáttum hans.
Frumþœttir heimaöflunar eruþrír, þ.e. nýtanlegar náttúruauðlindir á
viðkomandi jörð ásamt því innnuafh og þeirri þekkingu, sem til
► staðar er.
Af ýmsum ástæðum eru því hins vegar oft takmörk sett, að
hve miklu leyti hægt er að nýta verðmæti búsins, án að-
keyptra fanga. Slíkt verður hver og einn að vega og meta í
hverju tilfelli. Dæmi um þetta eru ýmis byggingarefni, vélar,
áburður, kjarnfóður o.fl.
Gildi heimaöflunar felst einkum í því að minnka sveiflur í
afkomu, sem stafa af mistryggum aðkeyptum varningi, að-
föngum, sem æskilegt er því að halda i lágmarki á hverjum
tíma.
Tími --------------►
Á meðfylgjandi mynd gefur að líta hvernig afkoma ein-
stakra búa getur verið háð heimaöflunarstigi þeirra, þ.e.
hversu háð þau eru utanaðkomandi áhrifum eins og veðri og
öðrum náttúruhamförum, viðskiptakjörum, auðlindaþurrð,
styrjöldum eða ófriði o.fl. Mynd þessi getur að sjálfsögðu gilt
um stærri heildir en eitt bú, svo sem landshluta eða landið
allt, en hornsteinninn er þó altént einstök bú. Samanber
bóndi er bústólpi, bú landstólpi.
6
81