Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Side 19
Úr öllum röðum heimamanna og gesta voru heillaóskir
tjáðar og horft hátt til hækkandi stjörnu á heiðum himni
Bændaskólans á Hólum, er lýsa megi björt um komandi tíma.
Um þátt Bændaskólans á Hólum í íslensku þjóðfélagi
mætti sitthvað rekja, en hér skal staðar numið.
Skólinn hefur alla tíð mótað störf sín í þágu bændastéttar-
innar sem aðal-atvinnuvegar þjóðarinnar. Hinsvegar er ekki
því að leyna að hópurinn, sem útskrifast hefur að loknu námi
þar, hefur dreifst inn á margar leiðir hlutverka, lífs og starfa.
Á heilli öld hefur nemendafjöldinn skiptst eftir aldarfjórð-
ungum þannig:
1882-1907 .......................... 233 nemendur
1907-1932 .......................... 354 nemendur
1932-1957 .......................... 604 nemendur
1957-1982 .......................... 434 nemendur
Samtals:.......................... 1.625 nemendur
Svo kann einhverjum að sýnast, að 1625 nemendur á heilli
öld sé ekki há tala, en þess ber um leið að minnast, að lang-
flestir hafa dvalið þar um tveggja ára skeið og í öðru lagi má
minnast þess, að fyrstu árin voru nemendur aðeins örfáir.
Hér skal engin viðleitni sýnd til þess að vega manngildi
hópsins, það má að sjálfsögðu meta á ýmsa vegu, en vert er þó
að geta þess, að í hópnum hafa verið aðilar af ýmsum gerðum,
starfandi þjóðfélagsþegnar, er vítt um land og utanlands hafa
rækt ævistörf þjóð sinni og öðrum til vegs og virðingar, sumir
í hópi öndvegisaðila í orði og á borði. Þær óskir skulu svo
fylgja skóla og Hólastað, að þar megi blómgun og blessun
ríkja um alla framtíð, þá mun þar öllum vel vegna.