Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 65
gaf af sér 1,6 FE á dag eða um 1,6 kg í kjarnfóðurígildi.
Samkvæmt áðursögðu samsvarar þetta um þriggja vikna
seinkun á slætti eða tilsvarandi tapi í verkun. Má þvi segja að
viku dráttur á slætti krefjist rúmlega 0,5 kg kjarnfóðurs fyrir
mjólkurkýr og þá trúlega samsvarandi fyrir ær um og eftir
burð og lembda gemlinga, einkum seinni hluta vetrar og vor.
Af ýmsum tilraunum má ætla að hér sé alveg um lág-
marksmun að ræða. Má í þessu sambandi vitna í tilraun í
Laugardælum (4), þar sem hey, sem slegið var rétt fyrir skrið
nægði eitt saman til þess að framleiða 13,5 1. af mjólk auk
viðhalds (8 FE/dag), en slegið þrem vikum síðar, einungis til
framleiðslu 2,51. mjólkur auk viðhalds. Þarna er um mun upp
á 3,5 FE, eða 3,5 kg af kjarnfóðurígildi að ræða eða u.þ.b. 1,2
kg kjarnfóðurs á viku.
Mismunur á niðurstöðum þessara tveggja rannsókna getur
m.a. stafað af þeim fóðurgildismun sem um er að ræða og
þeirri framleiðslu, sem kúnum er haldið í, í hvoru tilfelli, en í
Eyjafjarðarrannsókninni var um kýr að ræða, sem þörfnuðust
allmikils kjarnfóðurs með báðum heygæðum. —Ut frá þeirri
staðreynd, að gróffóðurát minnkar meira fyrir hvert viðbót-
arkjarnfóðurkíló sem heyið er betra, verður munur á kjarn-
fóðurþörf á milli heygerða minni, en þegar ekkert kjarnfóður
er gefið og nytin samsvarar þeirri gjöf.
í grófum dráttum er því hægt að segja að vikudráttur á
slætti getur þýtt um 0,5-1,0 kg af kjarnfóðri á kú á dag og
50-100 g á kind um og eftir burð og handa lembdum
gemlingum mikinn hluta vetrar nema þá að heyið sé því
betra.
Á 25 kúa búi getur þetta því þýtt 3-6 tonn af kjarnfóðri fyrir
hverja viku, sem slætti er seinkað miðað við 250 daga inni-
stöðu ef halda á uppi sömu nyt. Rétt er þó að minna á það hér
að kjarnfóðurgjöf getur ekki bætt upp lélegt gróffóður að fullu
(5).
Þar eð margt bendir til þess að hægt sé að fóðra fullorðið fé
án teljandi kjarnfóðurs, jafnvel þó heyin séu ekki sérstök að
gæðum, má ætla að misjöfn hey séu ekki nærri eins afdrifarík
fyrir sauðfjárræktina, svo fremi að þau étist vel og rétt sé að
67