Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 124
Búnaðarsamband V.-Hún.:
Aðalbjörn Benediktsson,
Gunnar Sæmundsson.
Ævifélagadeild:
Björn Þórðarson,
Þorsteinn Davíðsson.
Or stjórn Rfl. Nl.:
Helgi Jónasson,
Ævarr Hjartarson.
Alls 17 fulltrúar með atkvæðisrétt.
Auk framantaldra voru mættir Halldór Pálsson fyrrverandi búnað-
armálastjóri, Ólafur Dýrmundsson landnýtingarráðunautur B.I., Jón
Arnason tilraunastjóri og Þórður Sigurjónsson bústjóri á Möðruvöll-
um, Jón Bjarnason skólastjóri ásamt kennaraliði Hólaskóla. Þá voru
allmargir ráðunautar mættir til fundar.
3. Þórarinn Lárusson, framkvæmdastjóri Ræktunarfélags Norðurlands,
flutti skýrslu um störf sín og félagsins sl. ár. Skýrsla þessi lá einnig
frammi i fjölriti og mun prentuð í Arsriti félagsins.
Bjami Guðleifsson flutti greinargóða skýrslu um störf sín. Sú skýrsla
var einnig lögð fram fjölrituð.
Jón Árnason tilraunastjóri á Möðruvöllum. Drap hann á ýmsa þætti
tilraunastarfsins. Má þar nefna leit að þolgóðum grösum, tilraun með
að bera búfjáráburð undir grasrót, lengingu beitartíma að hausti, m.a.
með beit mjólkurkúa í huga, kornrækt og vatnsúðun á kartöflur til
vaxtarauka og frostvarnar. Af búfjárræktartilraunum var helst unnið
að tilraunum með fóðrun með heykögglum.
Einar Gíslason formaður „heimaöflunarnefndar“ greindi lítillega frá
fyrsta fundi nýkjörinnar nefndar.
Þórarinn Lárusson skýrði framlagða reikninga félagsins fyrir 1981 í
fjarveru Jóhannesar Sigvaldasonar, sem undirritaði þá. Niðurstöðu-
tölur á rekstursreikningi eru kr. 633.462,77 og af efnahagsreikningi kr.
183.277,29. Reksturshalli 1981varkr. 20.310,77. Hrein eign 1/1 1982 er
kr. 29.331,94. Þá lágu einnig frammi reikningar Styrktarsjóðs Rækt-
unarfélags Norðurlands og útgáfu Berghlaups. Allir þessir reikningar
endurskoðaðir.
Teitur Björnsson hóf umræðu um ársskýrslur og reikninga. Þakkaði
hann stjórn og starfsmönnum vel unnin verk. Vænti góðs af starfi
heimaöflunarnefndar. Haukur Steindórsson gerði athugasemd við
reikninga Ræktunarfélags Norðurlands og taldi niðurstöður rannsókna
oft vera of lengi á leið til bænda. Þórarinn Lárusson svaraði fram-
komnum athugasemdum.
Reikningarnir bornir upp og samþykktir samhljóða.
Matarhlé.
126