Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 116
Þykir því einsýnt að á þeim málum verði tekið fljótlega í
leiðbeiningastarfinu í mun ríkari mæli en hingað til.
Rannsóknir.
Heldur hefur farið lítið fyrir rannsóknarstörfum af minni
hálfu sl. starfsár. Uppgjöri selen-rannsókna þeirra, sem í gangi
hafa verið, er nú að mestu lokið og hefur mestum hluta þeirra
nú þegar verið komið á framfæri á selenráðstefnu, sem haldin
var á Laugarvatni í vor. I ráði er að þær birtist í heild sinni í
fjölritaröð BRT í vetur.
Þá stóð ég ásamt Jóni Árnasyni tilraunastjóra á Möðru-
völlum, fyrir tilraunum með átgetu sauðfjár og kúa á hey-
kögglum, samanborið við hey óunnið síðastliðið vor.
Þá var unnin rannsókn ásamt Jóni Árnasyni og Guðmundi
Steindórssyni um kjarnfóðurgjöf, heygæði og afurðasemi
mjólkurkúa í Eyjafirði.
Fundir og ferðalög.
Erindi flutt á fundi á vegum Ræktunarfélags Norðurlands á
Akureyri í nóvember 1981 um nýjungar í leiðbeiningarþjón-
ustu. Sat aðalfundi BSE, BSSÞ og BSVH. Sótti ráðunauta-
fund BÍ og RALA í febrúar 1982 og flutti þar erindi um
áðurnefnda rannsókn okkar Jóns og Guðmundar.
Var fenginn til að flytja erindi um heyköggla sem fóður í A-
og V-Húnavatnssýslum. Var auk þess fenginn til að flytja
erindi um heykögglagerð ásamt fóðrun og heimaöflunarmál
utan svæðis Ræktunarfélagsins, sl. vor, nánar tiltekið á Snæ-
fellsnesi, Dalasýslu og austur á Egilsstöðum.
Tók á móti bændafólki frá Suðurlandi, Snæfellsnesi, Döl-
um og Hólahreppi í Skagafirði og var í fylgdarliðum þeirra
um Eyjafjörð og nágrannabyggðir sl. vor.
Þá var farin sérstök ferð norður í Arneshrepp sl. vor að,
beðni heimamanna, til að reyna að varpa ljósi á ófrjósemi
gemlinga þar i sveit. 1 ferðinni voru einnig Sveinn Hall-
grímsson sauðfjárræktarráðunautur og Sigurður Sigurðsson
dýralæknir ásamt Brynjólfi Sæmundssyni ráðunaut þeirra
Strandamanna.
118