Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1986, Page 71
LANDSBÓKASAFNIÐ 1984
71
AÐSÓKN
takenda.
Flokkur
Hér fer á eftir skýrla um notkun bóka og
handrita, um lesendaQölda og tölu lán-
1984
000 ................................. 10835
100 ................................... 283
200 ................................... 178
300 .................................. 1701
400 ................................... 451
500 ................................... 716
600 ................................... 506
700 ................................... 274
800 .................................. 2140
900 .................................. 2709
Samtals bindi_________________________19794
Handrit léð á lestrarsali______________2272
Lesendur í lestrarsölum________________2485
Útlán bóka og handrita_______________1471
Lántakendur_____________________________270
FUNDIR OG FERÐIR Undirritaður sat dagana 3.-6. apríl sam-
eiginlegan fund brezkra og norrænna
þjóð- og háskólabókavarða í háskólanum í Sussex í Falmer á Suður-
Englandi og flutti þar erindi um ástand og horfur í málefnum
íslenzkra rannsóknarbókasafna.
Mánuði síðar fór hann snögga ferð til íþöku í New York ríki í boði
bókasafns Cornellháskóla til viðræðna við forstöðumenn þess um
Fiskesafnið svonefnda, sem er eins og kunnugt er mesta safn rita um
íslenzk og norræn fræði í Norður-Ameríku. Aðalumsjón með safni
þessu hefur allt frá því er Willard Fiske arfleiddi Cornellháskóla að
því 1904 verið að ráði hans í höndum íslenzkra manna, fyrst og lengst
Halldórs Hermannssonar, en síðan hvers af öðrum, Kristjáns Karls-
sonar, Jóhanns S. Hannessonar og Vilhjálms Bjarnar.
Við lát A'ilhjálms haustið 1983 varð þó sú breyting á, að stjórn
Háskólabókasafnsins fól amerískum manni, fræðimanni á vora grein