Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.2000, Blaðsíða 2
Æja meö eitt verka sinna í Galleríi List í Skipholti.
Morgunblaðið/Kristinn
HIMNASTEF ÆJU
í GALLERÍI LIST
HIMNASTEF er yfirskrift sýningar listakon-
unnar Æju sem opnuð verður í Galleríi List,
Skipholti 50d, í dag, kl. 16. Sýningin er haldin í
minningu góðrar frænku ogvinkonu Æju, Haf-
dísar Halldórsdóttur, og barna hennar, Hall-
dórs Birkis og Steinunnar Katrínar.
„Þetta eru bjartar myndir," segir Æja, „og í
þeim upplifum við eitt andartak í minningunni.
Flestir kannast við það sem börn, að liggja á
mjúkum grasbala og horfa til himins á skýin í
sinni endalausu för um heiminn. Hugsa um
óendanleikann í bláma himinsins eða grábláa
íslenska veðráttu. Fyrir mér að horfa á skýin
og himininn á fullorðinsárum vekur þetta svip-
aðar hugsanir og minningar. Ég hugsa til
ömmu minnar, sem ég var hjá í sveit, finnst að
á næsta andartaki kalli hún á mig og vefji mig
örmum.“
„Hún Margrét amma átti leikfangakíki með
englamyndum,“ heldur Æja áfram, „englarnir
svifu allir á mjúkum skýjum og maður gat séð
niður á jörðina í gegnum skýin. Kannski er í
mér örlítið af fortíðarþrá. Fyrir mér er augna-
blikið dýrmætt, stundum tregablandið, því að
við söknum aðeins þess sem var gott. Því ætt-
um við að reyna að grípa gleðistundimar og
njóta augnabliksins meðan það varir.“
Sýningin er opin virka daga kl. 11-18, laug-
ardaga til kl. 16 og á sunnudögum kl. 14-16 og
lýkur 14. aprfl.
Hárfínir
penslar
UNGVERSKI listamaðurinn Sandor Piko
mótar málningapensla úr sínu eigin hári til að
ná fram þunnu, svo gott sem gagnsæju máln-
ingarlagi. Þannig nær hann að breyta lítillega
litatónum í verkum sínum sem hann vinnur að í
borginni Debrecen, austur af Búdapest. Þunn,
gott sem gagnsæ málningarlög, eru mjög erfið
í framkvæmd og segir Piko fátt duga betur til
þessa en eigið hár.
Nektí n
heillar
London. Morgunblaðið
EFTIRSÓKN eftir miðum
að leikritinu Utskriftin hef-
ur aukist um allan helming
eftir að fréttir bárust af því
að bandaríska leikkonan
Kathleen Tumer kæmi
fram nakin í leikritinu, sem
framsýnt verður í næstu
viku í Gielgud leikhúsinu í
London. Þetta verður í
fyrsta skipti, sem Kathleen
Kathleen Turner Turner leikur á West End.
í fyrra kom Nicole Kid-
man fram nakin í leikritinu
Bláa herbergið, sem Sam
Mendes leikstýrði í London
og seldust miðar á allar sýn-
ingamar upp á tveimur
dögum. Það leikrit var sýnt
í Borgarleikhúsinu í vetur.
Kathleen Tumer, sem er
45 ára, fer með hlutverk frú
Robinson, sem á í ástar-
Anne Bancroft sambandi við ungan náms-
mann, Benjamin Braddock,
sem Matthew Rhys leikur. Anne Bancroft og
Dustin Hoffman fóra með þessi hlutverk í
kvikmyndinni, sem gerð var 1967 og vann til
Óskarsverðlauna, en í henni var m.a. lagið Frú
Robinson, sem Simon og Garfunkel sungu. I
kvikmyndinni var sneitt hjá nektaratriðinu
með klippingum.
Gullverð-
laun á grafík-
sýningu
RAGNHEIÐUR Jónsdóttir, grafík-
listamaður, hlaut gullverðlaun fyrir verk
sín á sýningunni 3rd Egyptian Internation-
al Print Triennale 1999. Verðlaunin voru
10.000 egypsk pund og gullmerki, The
Triennale Prize.
Verkin eru svarthvítar akvatintu æting-
ar. Ragnheiður fókk hugmynd að nýrri
tækni við gerð akvatintu ætinga fyrir
nokkrum árum og hefur sýnt verkin og
kynnt þessa nýju aðferð á alþjóðlegum sýn-
ingum siðustu tvö ár.
Þetta er í sjöunda sinn sem Ragnheiður
hlýtur alþjóðleg verðlaun fyrir grafíkverk
sín.
Ragnheiður Jónsdóttir grafiklistamaður ó vinnustof u sinni.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
IYIYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur - frá
býli til borgar.
Ásmundarsafn: Verk í eigu safnsins.
Höggmyndasýningin Maður um mann.
Til 14. maí.
Bflar og list, Vegamótastíg 3: Lilja
Kristjánsdóttir. Til 29. apr.
Galleri(ffihlemmur.is: Bjargey Ólafs-
dóttir. Til 23. apr.
Gallerí Fold: Sigríður Anna E. Nikulás-
dóttir. Til 16. apr.
Gallerí List, Skipholti 50: Æja. Til 14.
apr.
Gallerí Sævars Karls: íris Elfa Frið-
riksdóttir. Til5. apr.
Gerðarsafn: Islenskar kirkjur í Vestur-
heimi. Til 25. apr.
Gerðuberg: Sjónþing Önnu Líndal. Til
19. apr.
Hallgrímskirkja: Sigurður Örlygsson.
Til 1. júní.
i_8: Ólöf Björnsdóttir. Til 2. apr.
íslensk grafík: Arnannguaq Hoegh. Til
9. apr.
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Úr Kjarvalssafni. Ráðhildur
Ingadóttir. Til 7. apr.
Listasafn Akureyrar: Barnæska í ís-
lenskri myndlist. Til 7. maí.
Listasafn ASÍ: Birgir Andrésson, Björn
Roth, Eggert Einarsson og Ómar
Stefánsson. Til 2. apr.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið lau.
og sunnud. kl. 14-17. Höggmyndagarð-
urinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Svava Björnsdóttir.
Til 2. apr. Cosmos: Jón Gunnar Árna-
son. Til 9. apr. Ásgrímur Jónsson, Jó-
hannes S. Kjarval og Jón Stefánsson. Til
14. apr.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listasalurinn Man: Gunnar Kr. Jónas-
son. Til 4. apr.
Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Sossa
og Gyða L. Jónsd. Til 16. apr.
Listhúsið Laugardal: Átta stórar mynd-
ir Errós. Til 17. apr.
Mokkakaffi: Lárus H. List. Til 8. apr.
Norræna húsið: Terror 2000. Til 14. maí.
Nýlistasafnið: Hvítari en hvítt. Til 16.
apr.
Ofeigur, Skólavörðustíg 5: Harri Syr-
jánen. Til 19. apr.
Safnahús Reykjavíkur: Ungt fólk í
Reykjavík á 20. öld. Til 15. maí.
Slunkariki, ísafirði: Birgir Andrésson.
Til 30. apr.
Stofnun Árna Magnússonar: Handrita-
sýning opin þriðjudaga-föstudaga kl. 14-
16. Til 15. maí.
Stöðlakot: Daði Guðbjörnsson. Til 9.
apr.
Þjóðarbókhlaða: Stefnumót við íslenska
sagnahefð. Til 30. apr.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TONLIST
Laugardagur
Háskólabió: Lúðrasveitin Svanur. Kl.
13.30.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Ásgerður Júníus-
dóttir og Jónas Ingimundarson. Kl.
20.30.
Miðvikudagur
Salurinn, Kópavogi: Vox academica,
kammerkór Háskóla Islands. Kl. 20.30.
Fimmtudagur _
Háskóalbfó: HÍ. Beethoven og Bruckn-
er. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Glanni glæpur, sun. 2.
apr. Krítarhringurinn, lau. 1. apr. Hæg-
an, Elektra, laug. 1., fös 7. apr. Komdu
nær, sun. 2. apr. Vér morðingjar, sun. 2.
apr.
Borgarleikhúsið: Afaspil, sun. 2. apr.
Fegurðardrottningin, sun. 2., fím. 6. apr.
Kysstu mig Kata, laug. 1., fös. 7. apr.
Leitin að vísbendingu, laug. 1., fös. 7.
apr.
íslenski dansflokkurinn: Goðsagnirnar,
sun. 2. apr.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, lau. 1.,
mið. 5. apr. Leikir, hádegisleikhús, lau.
1., mið. 5. apr. Skækjan Rósa, fím. 6.,
föst. 7. apr.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Júlíus _ veru-
leikur, sun. 2. apr. Salka, ástarsaga,
laug. 1., fös. 7. apr.
Loftkastalinn: Panodil, lau. 1„ fös. 7.
apr. Bat Out of Hell, sun. 2. apr.
Islenska óperan: Haukurinn, lau. 1.,
sun. 2., mán. 3. apr.
Möguleikhúsið: Langafi prakkari, lau.
1., sun. 2., mán. 3. apr. miðv. 5. apr.
Draumasmiðjan: Ég sé, sun. 2., þri. 4.
apr.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. APRÍL 2000