Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.2000, Blaðsíða 19
Grund Kanada er elsta íslenska kirkjan í Kanada.
Llósmynd/Guömundur Vioarsson
ISLENSKAR kirkjur í Vesturheimi nefnist
ljósmynda- og sögusýning sem nú stendur
yfír í Gerðarsafni í Kópavogi.
Þetta er í fyrsta sinn sem skipulega hef-
ur verið unnið að því að safna uppýsingum um
kirkjubyggingar íslensku landnemanna í Kan-
ada og Bandaríkjunum.
Guðmundur Viðarsson ljósmyndari, höfund-
ur sýningarinnar, hefur lagt á sig mikla vinnu
og löng ferðalög við að afla myndefnis og upp-
lýsinga um íslenskar kirkjur í Vesturheimi.
Ferðalag til Dakota
Guðmundur Viðarsson sagði að sýninguna
mætti rekja til þess þegar hann var við starfs-
nám í Bandaríkjunum með styrk frá Fulbrig-
htstofnuninni á íslandi árið 1994. Þar kynntist
hann hjónunum John Rutford, þriðjukynslóð-
ar íslendingi, og konu hans Donnu Rutford.
Ásamt þeim fór hann í ferðalag til Norður-
Dakota, sá íslenskar kirkjur og byrjaði að
mynda.
Hann myndaði líka í Kanada. Uppistand-
andi íslenskar kirkjur eru nú 44. Margar
þeirra eru ekki notaðar og sumar í niður-
níðslu. Aðrar eru í fullri notkun eða að hluta.
Inni í kirkjunum er allt á íslensku.
Tilgangurinn var að komast að þvi hvað
væri hefðbundin íslensk sveitakirkja. Fundust
þær?
„Ég sá þær nokkrar. Deilur urðu milli ís-
lenska kirkjufélagsins, lútersku kirkjunnar,
og íslensks kirkjusambands únítara, en trú
hinna síðarnefndu er með öðru sniði. Annars
eru þeir mjög svipaðir. Það sem þeir eiga sam-
eiginlegt er að byggðar voru kirkjur, enda
voru margir smiðir meðal hvorra tveggja."
Langsterkasta þjóðernisaflið
í kynningarbæklingi skrifar Guðmundur:
„Kirkjur sem byggðar voru af íslenskum
söfnuðum og tengdust íslenska kirkjufélaginu
og íslensku kirkjusambandi Únítara eru skil-
greindar sem íslenskar kirkjur. Söfnuðirnii-
sem byggðu kirkjurnar innihéldu að öllu eða
einhverju leyti íslenska innflytjendur eða af-
komendur þeirra. Þær kirkjur sem nú eru í
eigu annarra aðila en íslenskra eru taldar
með, þar sem þær uppfylla fyrsta skilyrðið, að
vera upphaflega byggðar af íslenskum söfnuð-
um. Frávik frá þessari skilgreiningu má finna
í nokkrum kirkjum og eru þau skýrð í texta á
sýningarspjaldi með hverri kirkju fyrir sig.
Frá upphafi byggðar í Vesturheimi voru
trúin og kirkjumálefnin langsterkasta þjóð-
ernisaflið. Hvar sem íslendingar komu saman
var komið á guðsþjónustum og fenginn prest-
ur til að flytja guðs orð. Eru kirkjubygging-
arnar góður vitnisburður um þessa trúfestu og
mikilvægi ræktarseminnar við hana.“
Guðmundur sagði að verkefnið sem Kirkju-
hátíðarnefnd styrkti ríflega hefði verið mjög
áhrifaríkt og skemmtilegt. Hann vildi einkum
þakka John Rutford sem er maður fróður um
efnið og hefur mikinn ættfæðiáhuga. Hann
vann mikið við kirkjuverkefnið, einkum að
heimildaöflun og skipulagningu verkefnisins í
Bandaríkjunum, og skrifaði hann m.a. allan
sýningartextann.
Nú er Rutford á íslandi, m.a. í þeim tilgangi
að afla sér vitneskju um uppruna sinn og ætt-
ir.
Sýningin í Gerðarsafni stendur til 25. apríl.
Ljosmynd/kjuömundur Viöarsson
Markerville-kirkjan er þar sem Stephan G. Stephansson dvaldi mestan part ævi sinnar.
LEIÐRETTING
LÍTIL athugasemd varðandi greinina
„Myrkrahöfðingjar fyrr og nú“ eftir
Margréti Þorvaldsdóttir, en hún birtist í
Lesbók Mbl. 18.3. sl.
Greinin er ágætlega fræðandi um svokallað-
ar „ergoteitranir" og ofskynjanir fyrr á tímum.
Ergot er að finna í svokölluðum korndrjólum
eða sveppum sem vaxið geta á vissum kornteg-
undum. Undirritaður kom inn á þetta mál 8.9.
’99 undir yfirskriftinni „Náttúran læknar“ í
DV. Margrét segir í umræddri grein sinni að
eiturefnið LSD sé að finna í umræddum kornd-
rjóla. Það er ekki rétt en lýsergsýra er þar til
staðar, aðallega í amíðformi með svokölluðum
ergotbösum, en þeir eru í.þ.m. 15 og skiptast í
ergotamín-, ergotoxín- og ergóbasínhópa. Með
efnafræðilegum aðferðum má kljúfa lýsergsýr-
una frá bösunum og einangi’a hana. Síðan má
tengja haná diethylamíni með aðferðum líf-
rænnar efnafræði en þá fæst amíðið LSD, þ.e.
lýsergsýrudiethylamíð, en það er mörgum tug-
um eða hundruðum sinnum öflugra ofskynjun-
arefni en strípuð lýsergsýran sjálf. Kjarni
þessa máls er sá, að notað er efni sem fmnst í
náttúrunni og því umbreytt efnafræðilega.
Þannig er einnig farið með heróín, en það er
umbreytt morfín, þ.e. diacetyl-morfín. Þetta
kom fram í kvikmyndinni „The French conn-
ection", þar var morfíni breytt í heróín í litlum
efnaverksmiðjum í Marseilles.
Því eru nánast lítil takmörk sett hversu líf-
ræn efnasmíð getur verið mannvonskuleg og
hræðileg.
Dr. Jónas Bjarnason, Chem. Eng.
Ljósmynd/Guðmundur Viðarsson
Vikurkirkjan í Mountain, Norður Dakota, er elsta íslenska kirkjan í Nordur-Ameríku.
TRU OG ÞJOÐRÆKNI
í VESTURHEIMI
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. APRÍL 2000 1 9
i