Morgunblaðið - 04.12.2001, Qupperneq 1
278. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 4. DESEMBER 2001
BANDARÍSKUR uppfinninga-
maður, Dean Kamen að nafni,
kynnti í gær nýjan fararskjóta sem
hann kallar Segway, en tækisins
hefur verið beðið með eftirvænt-
ingu. Um er að ræða tveggja hjóla
tæki, sem líkist helst hlaupahjóli
eða sláttuvél í útliti. Tækið gengur
fyrir rafhlöðum, er nær hljóðlaust
og ætlað fyrir einn farþega.
„Þú hugsar með þér að þú viljir
fara fram á við, og þá fer tækið
fram á við. Viljirðu fara aftur á
bak, þá fer tækið aftur á bak,“
sagði Kamen þegar hann útskýrði
fyrir áhorfendum ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar hvernig tækið virkaði.
Mikið írafár varð í tækniheim-
inum bandaríska í upphafi ársins
þegar fréttist um uppfinninguna.
Kamen sagði að líklega yrðu ein-
hverjir fyrir vonbrigðum. „Tækið
mun ekki senda menn með geisla
upp til Mars eða breyta vatni í vín.“
Hann stóð þó fast á því að tækið
ætti að reynast vel í stórborgunum.
„Það er fínt að eiga bíl til að geta
keyrt lengri vegalengdir,“ sagði
hann. „En það er ekkert vit í því að
íbúar stórborganna noti tvö þúsund
kílógramma járnhrúgur til að kom-
ast styttri vegalengdir.“
Kemst í um 20 km
hraða á klukkustund
Segway, sem áður gekk undir
bráðabirgðaheitinu „Ginger“, er
útbúið fíngerðum snúðbúnaði sem
tryggir jafnvægi, og veldur því að
tækið skynjar hvert farþeginn vill
fara – og verður við óskum hans
þar að lútandi. Tækið líður áfram
eins og draumur og tryggir jafn-
framt fullkomið jafnvægi – farþeg-
inn þarf ekki að hafa áhyggjur af
því að detta.
Segway kemst í um tuttugu km
hraða á klst. og er ekki útbúið
bremsum. Það er jafnframt gíra-
laust en hver hleðsla dugar til 27
km aksturs. Ferð þess stjórnast ein-
göngu af hreyfingum og þyngdar-
jafnvægi farþegans, auk þess sem á
því er handstýri svipað og á reið-
hjóli. Hjólin tvö sinna síðan í reynd
þeim verkefnum sem tveir jafn-
fljótir alla jafna sinna fyrir gang-
andi vegfaranda.
Hulunni svipt af
undrafararskjóta
New York. AFP.
AP
Uppfinningamaðurinn Dean
Kamen með tæki sitt í New York.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, segir að beitt verði öllum
ráðum sem ríkið ræður yfir til þess
að stöðva hryðjuverkamenn en liðs-
menn Hamas-samtakanna urðu alls
25 óbreyttum borgurum að bana í
sjálfsmorðsárásum um helgina.
Svöruðu Ísraelar með því að gera í
gær árásir með þyrlum og F-16-orr-
ustuþotum á nokkrar stöðvar palest-
ínskra stjórnvalda. Í gærkvöldi réð-
ust skriðdrekar svo inn á alþjóða-
flugvöllinn á Gaza og jarðýtur hófu
að tæta upp flugbrautina. Palest-
ínskir varðmenn voru á staðnum en
munu ekki hafa reynt að stöðva
ísraelska hermenn sem hertóku flug-
stöðvarbygginguna.
Sharon lýsti í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar yfir „stríði gegn hryðju-
verkum“. Sagði hann Ísraela og
Bandaríkjamenn standa saman og
líkti aðgerðum gegn sjálfsvígssveit-
um Palestínumanna við hernaðinn
gegn Osama bin Laden og al-Qaeda-
samtökunum í Afganistan.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, fordæmdi hryðjuverkin um
helgina og lýsti yfir neyðarástandi á
svæðum Palestínustjórnar en Shar-
on sagði leiðtogann bera ábyrgð á of-
beldinu gagnvart Ísraelum. „Arafat
hefur tekið ákvörðun og valið leið
hermdarverkanna, valið að reyna að
ná pólitískum markmiðum sínum
með morðum á saklausum borgur-
um,“ sagði Sharon í ávarpi sínu.
Sharon ræddi á sunnudag við
George W. Bush Bandaríkjaforseta í
Washington og sagði engan ágrein-
ing hafa verið í viðræðum þeirra.
Bush fordæmdi sjálfsmorðsárásirn-
ar um helgina og lýsti talsmaður
hans efasemdum forsetans um að
Arafat legði sig fram um að láta
handsama hryðjuverkamenn. Tals-
maðurinn, Ari Fleischer, sagði Ara-
fat verða að sýna í verki andstöðu
sína við hryðjuverk og bætti við að
Ísraelar hefðu rétt til sjálfsvarnar.
Viðvörun til Arafats
Ísraelar skutu í gær að minnsta
kosti tíu flugskeytum á bækistöð
Arafats í Gazaborg, þrem þyrlum
leiðtogans var grandað og mikill
eldur kom upp í eldsneytisbirgða-
stöð. Arafat var sjálfur staddur í
borginni Ramallah á Vestur-
bakkanum. 17 manns særðust lítil-
lega í Gaza eða urðu fyrir reyk-
eitrun. Einnig voru gerðar árásir á
lögreglustöð Palestínumanna í borg-
inni Jenin á Vesturbakkanum. Bin-
yamin Eliezer, varnarmálaráðherra
Ísraels, sagði að ekki væri stefnt að
því að kollvarpa stjórn Arafats með
aðgerðunum í gær. „Markmiðið er
að gefa Arafat til kynna að hann beri
ábyrgð á hryðjuverkunum sem við
höfum orðið vitni að. Ísraelar eru að
segja að þolinmæðin sé þrotin.“
Arafat bað í gær furstann í Persa-
flóaríkinu Katar um að kalla saman
bráðafund Samtaka íslamskra ríkja
vegna árása Ísraela. Palestínustjórn
lét í gær handtaka yfir hundrað liðs-
manna Hamas og fleiri samtaka en
Ísraelar segja að ekki sé nóg að gert.
Ísraelar hefna fyrir hryðjuverk Hamas með loftárásum á stöðvar palestínskra stjórnvalda
Segja Arafat
bera ábyrgð
á tilræðum
Reuters
Palestínumenn reyna að slökkva elda í þyrlum Yassers Arafats Palestínuleiðtoga eftir loftárásir Ísraela á Gaza.
Jerúsalem, Damaskus, Washington, Doha. AP, AFP.
Sprengjuárásir/28
Sharon líkir aðgerðum sínum við
stríðið gegn bin Laden og al-Qaeda
FULLTRÚI Bandaríkjastjórnar,
James Dobbins, sakaði í gær Norður-
bandalagið um að tefja fyrir niður-
stöðum í samningaviðræðunum um
myndun stjórnar í Afganistan en þær
fara fram í Þýskalandi. Til umræðu á
fundunum eru tillögur Sameinuðu
þjóðanna í níu liðum um myndun
bráðabirgðastjórnar og frið. Er meðal
annars kveðið á um að Kabúl verði
herlaus borg og jafnframt að ný
stjórn muni biðja öryggisráð SÞ um
að íhuga heimild til að sent verði frið-
argæslulið til landsins. Þar sem
gæsluliðið tekur sér stöðu skuli allir
herir deiluaðila hafa sig á brott.
Norðurbandalag birtir
nafnalista
Margar þjóðir og þjóðarbrot
byggja Afganistan og því er flókið að
sætta sjónarmiðin eftir áratuga styrj-
öld. Eining mun vera á fundunum í
Þýskalandi um að fyrrverandi kon-
ungur landsins, Zahir Shah, sem er 87
ára gamall og Pastúni, verði samein-
ingartákn en án mikilla valda. Norð-
urbandalagið tilnefndi loks í gær fjóra
menn sem gætu farið fyrir stjórninni,
þ. á m. Abdul Sattar Sirat sem er
fulltrúi konungs í viðræðunum og
Úsbeki. Hinir eru Pastúnarnir Hamid
Karzai, Sibghatullah Mujadidid, sem
var forseti um skeið árið 1992, og loks
trúarleiðtoginn Pir Sayed Ahmad
Gailani. Karzai er meðal þeirra sem
stjórna nú atlögunni gegn vígi talib-
ana í Kandahar. Nokkru eftir að loft-
árásir bandamanna hófust í október
fór hann með leynd til Afganistans og
reyndi að fá Pastúna í suðurhlutanum
til þess að rísa upp gegn talibönum.
Margir Afganar eru sagðir efast
um að Sirat, sem er virtur guðfræð-
ingur og hefur verið í útlegð eins og
konungurinn, hafi nægilega innsýn í
málefni landsins.
Deilt er um skipan ráðherraemb-
ætta innbyrðis í Norðurbandalaginu
sem er samband sjö fylkinga. Auk
þrýstingsins frá Dobbins hringdi
embættismaður í Hvíta húsinu,
Zalmay Khalilzad, í leiðtoga banda-
lagsins, Burhanuddin Rabbani, í Kab-
úl til þess að fá hann til að sætta sig
við lista sem samningamenn banda-
lagsins á fundunum í Þýskalandi hafa
birt yfir menn sem gætu tekið að sér
embætti forsætisráðherra.
Rabbani lét að lokum undan í gær
og hét að staðfesta listann. Hann var
útlægur forseti Afganistans meðan
talibanar réðu öllu landinu og gegnir
enn stöðunni að nafninu til.
Kabúl verði
herlaus borg
Eining talin vera að nást um
hugmyndir Sameinuðu þjóðanna í
viðræðunum í Þýskalandi
Königswinter, Bonn, Kabúl. AP, AFP.
Lokaorrustan/26