Morgunblaðið - 04.12.2001, Qupperneq 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 23
TALSMENN viðskiptabankanna og
sparisjóðanna eru almennt þeirrar
skoðunar að sú gagnrýni, sem sett
hefur verið fram um að eiginfjárhlut-
fall banka hér á landi sé of lágt, eigi
ekki við um sín fyrirtæki. Í skýrslu
bandaríska hagfræðingsins Joseph
Stiglitz, sem rituð var fyrir Seðla-
banka Íslands, segir að hraður vöxtur
útlána, eins og verið hefur hér á landi
á undanförnum misserum, virðist oft
hafa verið ein af meginorsökum fjár-
málakreppu á síðari árum.
Guðmundur Magnússon prófessor
lýsti nýlega þeirri skoðun sinni að
ástæða væri til að ætla að æskilegt sé
að eiginfjárhlutfall banka hér á landi
sé yfir því lágmarki sem lög kveða á
um, en samkvæmt lögum skal eigin-
fjárhlutfall banka, svokallað CAD-
hlutfall, vera 8% hið minnsta.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, hefur ítrekað
greint frá áhyggjum Fjármálaeftir-
litsins af því að eiginfjárhlutfall lána-
stofnana sé of lágt hér á landi. Þetta
kom meðal annars fram í ræðu hans á
ársfundi Fjármálaeftirlitsins í októ-
ber síðastliðnum. Þar sagði Páll
Gunnar að Fjármálaeftirlitið hefði
lagt áherslu á hækkun eiginfjárhlut-
falls lánastofnana og lýst þeirri skoð-
un sinni að stærstu lánastofnanir með
virka áhættustýringu og innra eftirlit
skuli stefna að því að eiginfjárhlutfall
sé á hverjum tíma að lágmarki 10% í
stað 8% lögbundins eiginfjárhlutfalls.
Jafnframt væri ljóst að margar lána-
stofnanir þyrftu að setja sér enn
hærri markmið um eigið fé í samræmi
við áhættu í starfsemi þeirra.
Þá lýsti Seðlabanki Íslands þeirri
skoðun sinni í Peningamálum í maí
síðastliðnum að brýnt væri að lána-
stofnanir hækkuðu eiginfjárhlutfall
sitt, en það hefði lækkað á síðasta ári,
og svipuð sjónarmið komu fram í
skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um
mitt þetta ár.
Vega þarf saman arðsemi og öryggi
„Eiginfjárhlutfall samstæðu
Landsbankans hefur verið að styrkj-
ast á þessu ári og við höfum náð því
marki sem við höfum sett okkur, að
vera með rúmlega 10% CAD-hlutfall.
Eftir sölu á eignarhlut í Lýsingu í
nóvember er áætlað hlutfall nú
10,5%,“ segir Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbanka Íslands, og
bætir því við að CAD-hlutfallið hafi
ekki verið hærra frá því að bankinn
var skráður á Verðbréfaþingi haustið
1998.
„Það er þekkt erlendis að gerðar
séu mismunandi eiginfjárkröfur til
banka eftir stærð og áhættustigi,“
segir Halldór, „og sú viðmiðun sem
Fjármálaeftirlitið hér heima hefur
sett fram, um að stærstu og fjölþætt-
ustu bankarnir eigi að hafa CAD-
hlutfall upp á 10%, er í samræmi við
okkar stefnu.“ Halldór segir útlán
Landsbankans hafa vaxið minnst
allra banka á þessu ári en innlán auk-
ist mest, þannig að bæði lausafjár-
staða og eiginfjárstaða bankans sé
með besta móti um þessar mundir.
Fjárhagsstaða Landsbankans sé því
afar traust og eigi eftir að styrkjast
enn með fyrirhuguðum breytingum á
eignaraðild að Vátryggingafélagi Ís-
lands. Halldór bendir einnig á að hafa
verði í huga í þessu sambandi að
bankar verði að stýra eigin fé sínu
rétt. Það sé ekki eðlilegt með tilliti til
arðsemiskröfu að hafa of hátt eigið fé,
sérstaklega í banka með alhliða
áhættudreifinu og traust innlán eins
og sé hjá Landsbankanum. Líta verði
bæði til arðsemissjónarmiða og ör-
yggissjónarmiða.
Villandi að alhæfa
um eiginfjárhlutfall
„Það er að mínu mati mjög villandi
að alhæfa um að eiginfjárhlutfall ís-
lenskra banka sé of lágt. Það kann að
vera að það eigi við um einhverjar
lánastofnanir, en það á ekki við um Ís-
landsbanka, stærsta bankann í land-
inu,“ segir Valur Valsson, forstjóri Ís-
landsbanka. „Samkvæmt lögum er
lágmarkseiginfjárhlutfall 8% og Fjár-
málaeftirlitið hefur mælt með að við
núverandi aðstæður sé það ekki undir
10%. Í Íslandsbanka er eiginfjárhlut-
fallið 11,9% eða nær 50% hærra en
lögboðið lágmark, og hlutfallið hefur
farið hækkandi undanfarin misseri.
Íslandsbanki er einnig með hæsta
eiginfjárhlutfall allra helstu banka
Norðurlanda. Nordea, stærsti banki
Norðurlanda, er með 9,3% hlutfall,
Danske Bank er með 9,4%, SEB
10,4% og sá sem kemur næst okkur er
Den Norske Bank með 11,1%.“
Valur bætir því við að gagnrýni um
of lágt eiginfjárhlutfall lánastofnana
geti ekki átt við um Íslandsbanka og
þeir sem haldi fram þessari gagnrýni
verði að útskýra um hvaða lánastofn-
anir þeir séu að tala.
Stefnt að 10% eiginfjárhlutfalli
„Búnaðarbankinn hefur verið með
eiginfjárhlutfall á bilinu 9–10% og
núna er það um 9,5%. Við höfum lýst
því yfir að við vildum gjarnan vera
nær 10% og höfum stefnt að því,“ seg-
ir Árni Tómasson, bankastjóri Bún-
aðarbanka Íslands. Hann bætti því
við að þegar hægðist á efnahagslífinu
væri að öðru jöfnu betra að bankar
hefðu hærra eiginfjárhlutfall en þeg-
ar betur áraði.
Spurður að því hvort útlit sé fyrir
að markmið um 10% eiginfjárhlutfall
náist í lok þessa árs segir Árni að það
mótist af afkomu síðustu mánaða árs-
ins og afkoma nóvember liggi ekki
endanlega fyrir. Áætlanir geri þó ráð
fyrir að bankinn verði farinn að nálg-
ast þetta mark mjög í árslok.
„Eiginfjárstaða sparisjóðanna hef-
ur almennt verið að styrkjast svo þeir
eru með hærra eiginfjárhlutfall nú en
undanfarin ár,“ segir Guðmundur
Hauksson, formaður Sambands ís-
lenskra sparisjóða. „Hlutfallið hafði
farið lækkandi vegna þess að spari-
sjóðirnir hafa stækkað mikið, en hins
vegar hafa þeir myndað verulegan
hagnað á undanförnum árum og við
það hefur eiginfjárstaða þeirra
styrkst mikið.“
Guðmundur segir að eiginfjárstaða
sparisjóðanna í heild hafi verið yfir
12% og þótt staðan sé misjöfn milli
sjóða standi þeir almennt vel að þessu
leyti. Þar að auki eigi þeir miklar
duldar eignir í dótturfélögum og séu
því í ágætri aðstöðu til að styrkja
hlutfallið enn frekar.
Talsmenn innlánsstofnana ekki sammála gagnrýni um lágt eiginfjárhlutfall
Eiginfjárhlutfall
að styrkjast
Morgunblaðið/Kristinn
Eiginfjárhlutfall íslenskra banka hefur farið hækkandi.