Morgunblaðið - 04.12.2001, Page 28
ERLENT
28 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRYGGISSVEITIR palestínsku
heimastjórnarinnar handtóku 110
félaga í íslömsku hreyfingunum
Hamas og Jihad í fyrrinótt eftir
sprengjutilræði í Ísrael um helgina
sem kostuðu 25 manns lífið. Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
ræddi við helstu ráðherra sína
hvort Yassar Arafat, leiðtogi Pal-
estínumanna, hefði gert nóg til að
hindra hryðjuverk palestínskra
hreyfinga og hvernig bregðast ætti
við sprengjutilræðunum.
Margir hægrisinnaðir stuðnings-
menn Sharons lögðu fast að honum
að vísa Arafat á brott frá palest-
ínsku heimastjórnarsvæðunum.
Tíu Ísraelar á unglingssaldri biðu
bana í sjálfsvígsárás tveggja Palest-
ínumanna í miðborg Jerúsalem
seint á laugardagskvöld og fimmtán
manns létu lífið í öðru sprengju-
tilræði í strætisvagni í borginni
Haifa tólf klukkustundum síðar.
Ísraeli beið einnig bana í skotárás
tveggja Palestínumanna á Gaza-
svæðinu á sunnudag.
Hamas lýsti tilræðunum á hend-
ur sér og hótaði fleiri hryðjuverk-
um í Ísrael.
Sharon var í heimsókn í Banda-
ríkjunum um helgina og flýtti heim-
för sinni vegna sprengjutilræðanna.
Fundur hans með George W. Bush
Bandaríkjaforseta, sem átti að vera
í gær, var haldinn á sunnudag til að
Sharon gæti farið til Ísraels. Hátt-
settur ísraelskur embættismaður
sagði að ekki hefði komið upp
„minnsti ágreiningur“ milli leiðtog-
anna á fundinum og Bush hefði
ekki reynt að fá Sharon til að forð-
ast harkalegar aðgerðir.
„Arafat verður að gera allt sem í
hans valdi stendur til að hafa hend-
ur í hári þeirra sem myrtu saklausa
Ísraela og færa þá fyrir rétt,“ sagði
Bush eftir fundinn.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að „stund
sannleikans“ væri runnin upp og
Arafat yrði að binda enda á hryðju-
verkin.
Leiðtogar margra ríkja heims
fordæmdu sprengjutilræðin og
skoruðu á Arafat að skera upp her-
ör gegn hryðjuverkahreyfingum.
Arafat sakaður um
„sýndarmennsku“
Arafat lýsti yfir neyðarástandi og
tók sér vald til að láta handtaka
Palestínumenn sem berjast gegn
því að samið verði um vopnahlé við
Ísraela.
Palestínskir embættismenn
sögðu að 110 félagar í Hamas og
Jihad hefðu verið handteknir á
Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu
í fyrrinótt. Andlegur leiðtogi Ham-
as, Ahmed Yassin, hefði verið sett-
ur í stofufangelsi og fengið fyr-
irmæli um að ræða ekki við
fréttamenn.
Öryggissveitunum hefur einnig
verið sagt að gera ólögleg vopn
upptæk.
Háttsettur herforingi í Ísrael
lýsti þessum aðgerðum sem „sýnd-
armennsku“ og sagði að markmiðið
með þeim væri „aðeins að sefa
Bandaríkjamenn og Evrópubúa“
sem hafa hvatt Arafat til aðgerða
gegn hryðjuverkamönnum. Palest-
ínumenn hefðu ekki handtekið
neinn sem tengdist hryðjuverkun-
um um helgina og engan þeirra tíu
Palestínumanna sem Ísraelar legðu
mesta áherslu á að handtaka.
Ágreiningur í
stjórn Sharons
Lögreglan í Ísrael var með há-
marksviðbúnað og þúsundir lög-
reglumanna voru á verði við fjöl-
farnar götur og verslunarmiðstöðv-
ar.
„Stríð er hafið,“ sagði í flennifyr-
irsögn á forsíðu ísraelska dagblaðs-
ins Yediot Ahronot með myndum af
fórnarlömbum sprengjutilræðanna.
/ 0
,-./012
3415*674,
1
6& +&
+# 8 ( 9 +
!%+ +9:
8'8 8
;+)+#%<$%
&$%!8+ +
<'%8 :
# + =1=*-1::*1647
:*1647
2 , 34
5
6
78
97
$:
5
>6''
3+
;<
4* * 8 + ".
"
9
.. "
,
;%
* 8 1 % "
/@# 8
7 8 ?5= %
" >& .
" " % @
+ "& @ %
"
& 0&0& "
3 A B %& "A& "
& " @ " & 1 %@
) % . % !
;%
Sprengjuárásir Hamas
kosta 25 Ísraela lífið
Fast lagt að Sharon að steypa
palestínsku heimastjórninni
ReutersBjörgunarmenn að störfum við strætisvagn sem eyðilagðist í sprengjutilræði í borginni Haifa á sunnudag.
Jerúsalem. AFP, AP.
YASSER Arafat, leiðtogi sjálf-
stjórnar Palestínumanna, er milli
steins og sleggju eftir hinar mann-
skæðu sprengjuárásir helgarinnar
og hefur staða hans sennilega
aldrei verið ótryggari.
Arafat á aðeins tvo kosti í stöð-
unni. Annarsvegar að bregðast
skjótt við og grípa til harðra að-
gerða gegn herskáum sveitum Pal-
estínumanna, sem hefur vaxið
mjög ásmegin síðan átökin á sjálf-
stjórnarsvæðunum hófust fyrir 14
mánuðum. Ef hann gerir það ekki,
eða ekki eins rösklega og Ísr-
aelsstjórn krefst, má hann búast
við að Ísraelar svari af fullum
þunga. Staða hans sem leiðtogi
palestínsku heimastjórnarinnar
virðist í hættu á hvorn veginn sem
er.
Háværar kröfur um aðgerðir
Eftir blóðbaðið um helgina eru
uppi háværar kröfur í Ísrael um
að gripið verði til harðra aðgerða
gegn Palestínumönnum. Fullyrt er
að Arafat og embættismenn
heimastjórnar Palestínumanna
beri ábyrgðina á ódæðunum, þrátt
fyrir að meðlimir óskyldra öfga-
hreyfinga hafi framið þau. Talað
hefur verið um að hendur Arafats
séu „ataðar blóði“ og því verði að
víkja honum úr leiðtogaembættinu
eða jafnvel að heimastjórnin, sem
komið var á í kjölfar friðarsam-
komulagsins 1993, verði leyst upp.
Meira að segja hófsamir menn á
ísraelska þinginu tala um að nú
hafi orðið „vatnaskil“.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem birtar voru í
gær í hinu víðlesna dagblaði Yed-
ioth Aharonot eru 37% Ísraela
hlynnt því að Arafat verði vikið úr
embætti og heimastjórnin leyst
upp. 18% taka undir þá skoðun
harðlínumanna að Ísraelar eigi að
hertaka sjálfstjórnarsvæðin á ný,
en 32% telja hins vegar að for-
sætisráðherrann Ariel Sharon eigi
að láta af þeirri hörðu stefnu sinni
að neita að ræða við Palestínu-
menn fyrr en átakalaust hafi verið
í Ísrael og á sjálfstjórnarsvæðun-
um í sjö daga.
Almennt hefur þó staða Sharons
styrkst eftir atburði helgarinnar,
enda eykst jafnan stuðningur við
harðlínumenn í Ísrael eftir mann-
skæð tilræði.
Ljóst er að palestínska heima-
stjórnin verður að grípa til veru-
lega róttækra aðgerða til að svara
kröfum Ísraela. Handtaka þyrfti
hundruð eða þúsundir meðlima
samtaka á borð við Hamas og
Jihad, en slíkar aðgerðir gætu leitt
til alvarlegs klofnings meðal Pal-
estínumanna. Til átaka gæti komið
milli hófsamra hreyfinga og her-
skárri afla, og jafnvel innan sam-
taka Arafats sjálfs, Fatah.
Öryggissveitir palestínsku
heimastjórnarinnar hafa þegar
handtekið yfir hundrað félaga í
Hamas og Jihad eftir árásir helg-
arinnar. Ýmsir Ísraelar segja ekki
nóg að gert og fullyrða að þeir
sem stóðu að ódæðunum hafi ekki
verið meðal hinna handteknu. Her-
skárri samtök Palestínumanna
gagnrýndu hins vegar handtökurn-
ar á öðrum forsendum.
Forystumenn Hamas fordæmdu
aðgerðirnar í gær og sökuðu Ara-
fat og stjórn hans um undanláts-
semi við Ísraela. „Það er ljóst að
heimastjórnin hefur látið undan
þrýstingi Ísraela og Bandaríkja-
manna um að grípa til kúgandi og
ólöglegra aðgerða gegn meðlimum
Hamas og Jihad,“ sagði varafor-
seti stjórnmálaarms Hamas,
Mussa Abu Marzuk, í samtali við
AFP-fréttastofuna í gær. „Palest-
ínska heimastjórnin hefur gerst
verndari Ísraels,“ bætti hann við.
Marzuk fullyrti að öryggisveitir
Palestínumanna hefðu tekið upp
sömu aðferðir og Ísraelsher beitti
áður en heimastjórnin var sett á
fót. „Þeir berja að dyrum að nóttu
til, hrella konur og börn og nema
fólk á brott af heimilum sínum,
rétt eins og Ísrelar gerðu.“ Slík
viðhorf njóta æ meiri hljómgrunns
á sjálfstjórnarsvæðunum, en
heimastjórnin hefur einnig legið
undir ámæli fyrir spillingu og
óstjórn.
Gjörólíkt sjónarhorn
Spjótin standa því á Arafat úr
báðum áttum, af hálfu Ísraela og
róttækra Palestínumanna. Staða
hans hefur vafalaust aldrei verið
ótryggari og mikil óvissa ríkir um
hvað taki við, verði honum bolað
úr forystusætinu.
Margir stjórnmálaskýrendur á
Vesturlöndum óttast að endanlega
verði úti um friðarferlið í Mið-
Austurlöndum ef Arafat verður
velt úr sessi og Palestínumenn
velja herskárri leiðtoga til forystu.
Í rauninni er þó vandséð að nokk-
ur leiðtogi Palestínumanna eða
Ísraela geti leitt þessar þjóðir til
friðar á meðan skilningur stórs
hluta þeirra á ástandinu er svo
gjörólíkur sem raun er á. Meiri-
hluti Ísraela lítur svo á að aðgerðir
Ísraelshers séu réttmæt viðbrögð
við hryðjuverkum, á meðan flestir
Palestínumenn álíta ofbeldisverkin
á undangengnum mánuðum ekkert
annað en óhjákvæmilega afleið-
ingu af 34 ára hersetu Ísraela á
palestínsku landi á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu.
Yasser Arafat milli
steins og sleggju
Jerúsalem. AFP, AP, The Washington Post.
’ Meira að segjahófsamir menn á ísr-
aelska þinginu tala
um að nú hafi orðið
„vatnaskil“ ‘