Morgunblaðið - 04.12.2001, Síða 46
MINNINGAR
46 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nú, þegar ég kveð
frænku mína og
nöfnu, Ingibjörgu
Bjarnadóttur, standa
mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um heimsóknirnar að Eyjólfsstöð-
um í Vatnsdal. Vatnsdalurinn var
sveitin hennar mömmu og það var
alltaf sérstakt tilhlökkunarefni að
fara þangað í heimsókn. Kannski
INGIBJÖRG
BJARNADÓTTIR
✝ IngibjörgBjarnadóttir
fæddist á Breiðaból-
stað í Vatnsdal 8.
júní 1923. Hún and-
aðist á Heilbrigðis-
stofnun Blönduóss
19. nóvember síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Blönduóskirkju 1.
desember
var tilhlökkunin enn
meiri fyrir það að
þangað var ekki farið
á hverju sumri, hvað
þá oft á sumri eins og
í sveitina hans pabba
austur í Flóa. Þessar
tvær sveitir bernsku
minnar voru svo ólíkar
að ætla mætti að þær
tilheyrðu ekki sama
landi eða sama menn-
ingarsvæði. Landslag-
ið var ólíkt, bygging-
arnar, búskaparhætt-
irnir, umgengnin, tals-
mátinn og fólkið. Báð-
ar höfðu margt sér til ágætis –
bara hvor á sinn máta.
Á Eyjólfsstöðum var myndar-
skapur og hlýleiki í hávegum hafð-
ur. Það var sama hvert litið var –
hvort það var hliðið heim að bæn-
um, þrílyft íbúðarhúsið, trjágarð-
urinn, heimilishaldið eða samskipti
fólksins – allt bar þess vott að þar
bar heimilisfólkið virðingu hvað
fyrir öðru og umhverfi sínu. Mér er
í barnsminni hvað frænkur mínar á
Eyjólfsstöðum, Jenný, ömmusystir
mín, og dætur hennar, Lillý og
Hanna, tóku vel á móti okkur í
hvert sinn sem við komum í heim-
sókn. Þær voru svo hlýjar, fallegar
og gestrisnar og allt var svo fínt í
kringum þær. Þær töluðu fallega
um fólk og við fólk og fóru mildum
höndum bæði um menn og málleys-
ingja. Þær voru örlátar á athygli
sína og umhyggju og gerðu börn-
um ekki síður hátt undir höfði en
fullorðnum. Þótt ég væri ekki há í
loftinu fannst ég alltaf svolítið
merkilegri manneskja þegar ég fór
þaðan en þegar ég kom þangað.
Mér fannst ég líka óskaplega hepp-
in að eiga hlutdeild í svona fallegri
sveit og góðu fólki.
Í minningunni skipar húsið á
Eyjólfsstöðum alveg sérstakan
sess því þar var allt með meiri
höfðingjabrag en maður átti að
venjast. Daglega var gengið um
kjallarann og þar var eldhús, búr
og borðstofa þar sem þær systur
réðu ríkjum og töfruðu fram hverja
tertuna á fætur annarri þegar
komið var í heimsókn. Uppi á hæð-
inni voru stofurnar – stásslegar og
fínar og báru menningu og hand-
bragði fólksins fagurt vitni. Það er
eins og mig minni að ég hafi ein-
hvern tímann gist í þessum stofum
og þá stolist til að taka kettlinga
með mér upp í rúm. Sjálfsagt hef
ég kjassað þá og kreist af fullmik-
illi áfergju því ekki vildi betur til
en svo að einn þeirra skeit í rúmið.
Var ég hálfvandræðaleg yfir uppá-
komunni en frænkur mínar hlógu
bara að þessu, klöppuðu mér í bak
og fyrir og gerðu gott úr öllu sam-
an.
Á milli mömmu og systranna á
Eyjólfsstöðum var sérstakur þráð-
ur sem spunninn var þegar í barn-
æsku. Þær voru systradætur en þó
kannski nær því að vera eins og
systur enda ólust þær upp saman
að talsverðu leyti. Aldursmunurinn
á þeim nöfnum, mömmu og Lillý,
var ekki nema fimm ár og hafa þær
án efa átt margar góðar stundir
saman sem ungar stúlkur norður í
Vatnsdal. Það var auðvelt að láta
sér þykja vænt um Lillý og ég veit
að margir sakna góðrar vinkonu.
Mestur er þó söknuður Doja,
Hönnu og barna Lillýjar og ég
votta þeim öllum mína dýpstu sam-
úð. Missir þeirra er mikill en ég
veit að þau geta sótt huggun í
drjúgan sjóð minninga um góðan
lífsförunaut, systur og móður.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning-
@mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
) ).,
! ' BE
"
/ )
0 $1
!' ) #
) #
) 5
3!'2= + &
;.
,8 ./ 3> C@+ !(& C99C
*2
!
3 &
4 *
" ) & 4
!' 6
7
) # 4
!'
6& 6# 3 6# +
'
5,
? ;, " & BC
#=2! 4&2
+.
5 ,
"
0 , ,
$
) * 3
4# 5#!3 '3 FG&
) * '3 4#
33& "!' 4# +
'
)/
3 )' 4' & %!
,
2
$ 5
6&
" * 7"
# $%
!' 4#
!'
% 2
,= 6#
'3 6#
6#
5 ( 6# +
"H
? 6 ,
3 5#
5# 9 #3
+.
!
( "
8 $%
. (
' #
'
'
'+
9
: &
4
-
,4,
-
D ". 8/ # E0
#3 +
(:
,"-
,
*
,
,
= 3!'2= +
9
::4
-
,4,
-
).I . + 5.
// & 9A
#=2! 4&2+
( : $$'
*
;
)*
,&
7
( 3 ( 3
5 ( 3
5# ( 3 ( "+ 5
!'
( 3 ( 3 5#3 6
# 3 ( 3 ?& /& "!
'
'+
,? ". ?' & 2
,*
+.
"
<
-"
# $%
,= 5+ #3 .J
#
#3 ) & % !
3!'2= +
'
", ", #= 4 CC
%G 4
" ;
)*
.# ,&
#
? )
,4
5!'# 3 +
"
: &
4
-
,4,
-
".. 5., 4 # 5&
.2 #= +
(: ,
*
7
" 4 # "! =
?#=# "!
!'
"! "! ?&
"! #
) & "! 3 5 2 &
& ) & "!
# "! % & 5
'
'+