Morgunblaðið - 04.12.2001, Síða 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 55
Sendibílstjórar
Til sölu er Búslóðageymsla Olivers sem er 12 ára gamalt fyrirtæki
í fullum rekstri og með stöðuga vinnu fyrir duglega menn. Sækir
allar vörur sjálfur til geymslu. Mikil keyrsla fylgir þessu. Mjög gott
starf fyrir þá sem eru vanir sendibílum. Örugg geymsla fyrir búslóð-
irnar. Húsnæði er einnig til sölu ef vill eða langur húsaleigusamn-
ingur. Tryggur atvinnuvegur sem gefur góðar tekjur til framtíðar.
Sami eigandi frá upphafi.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Íslenska járnblendifélagið hf.
sala hlutafjár til hluthafa að nafnverði 650 milljónir króna
Hlutafjárútboð
Á fundi sínum 27. nóvember 2001 ákvað stjórn Íslenska járnblendifélagsins hf. að nýta heimild,
samkvæmt 3. mgr. 5. gr. samþykkta félagsins, til aukningar á hlutafé í félaginu um 650 milljónir
króna að nafnverði.
Hið nýja hlutafé verður boðið hluthöfum í félaginu til kaups og verður tekið á móti áskriftum á
tímabilinu 10. – 17. desember 2001 á sérstökum áskriftarblöðum, sem send verða hluthöfum sem
skráðir voru í hlutaskrá félagsins í lok viðskiptadags 26. nóvember 2001.
Áskriftum skal skilað fyrir kl. 16.00 mánudaginn 17. desember 2001 til:
• Verðbréfastofunnar hf., Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík eða
• Íslenska járnblendifélagsins hf., Grundartanga, Skilmannahreppi, 301 Akranesi.
Gengi
Hlutabréfin verða boðin til sölu á genginu 1,0.
Sölutrygging
Hlutabréfin verða ekki boðin almennum fjárfestum til kaups en skrifi hluthafar sig ekki fyrir öllu útboðnu
hlutafé mun Elkem ASA, stærsti hluthafi í Íslenska járnblendifélaginu hf., kaupa þau hlutabréf sem eftir
standa, á útboðsgenginu.
Skráning
Öll þegar útgefin hlutabréf félagsins hafa verið skráð á Verðbréfaþingi Íslands hf. (VÞÍ) síðan 18. maí
1998, undir auðkenninu ISJA. Hlutabréfin sem seld eru í útboðinu verða einnig skráð á þingið, enda
verði öll skilyrði skráningar uppfyllt. Áætlað er að hlutabréfin verði skráð í lok desember 2001.
Niðurstöður útboðsins verða sendar VÞÍ að áskriftartímabilinu loknu.
Upplýsingar og skjöl
Unnt er að nálgast útboðs- og skráningarlýsingu hjá umsjónaraðila útboðsins, Verðbréfastofunni hf.,
og Íslenska járnblendifélaginu hf. Einnig er hægt að nálgast útboðs- og skráningarlýsingu á vefsíðu
Verðbréfastofunnar hf. www.vbs.is og Íslenska járnblendifélagsins hf. www.jarnblendi.is.
ÁSTA Möller alþing-
ismaður tekur sér fyrir
hendur að túlka stefnu
Sjálfstæðisflokksins
varðandi einkarekstur í
heilbrigðiskerfinu í
Morgunblaðinu 17.11.
sl. Að sjálfsögðu leiðir
það til þess að hún ger-
ist ákafur talsmaður
einkavæðingar í heil-
brigðisþjóustu. Hún
telur þó að sú þjónusta
„eigi að mestu að vera
greidd úr sameiginleg-
um sjóðum lands-
manna“. Þetta á sem
sagt að vera einka-
rekstur á opinberu
framfæri. Ástæðan fyrir því að Ásta
vill einkavæða heilbrigðiskerfið, er
m.a. sú, að við núverandi skipan
mála eru stjórnvöld að hennar sögn í
fjórföldu hlutverki, þ.e. annast skil-
greiningu þjónustunnar, sjá um
rekstur hennar, fjármagna hana, og
annast gæðaeftirlit. Þetta segir hún
að geti leitt til þess að stjórnvöld
lendi í „siðferðilegri klemmu, þegar
þau vilji mæta kröfum um bætta og
aukna þjónustu, en þurfa jafnframt
að halda kostnaði í skefjum“. Og hún
hyggst losa stjórnvöld úr þessari sið-
ferðilegu klemmu með því að láta
einkaaðila sjá um reksturinn með
fjármagni frá ríkinu. En er það nú al-
veg öruggt að stjórnvöld losni úr sið-
ferðilegu klemmunni þó að einkaað-
ilar taki að sér reksturinn? Ásta
telur að ríkisvaldið muni áfram
„bera ábyrgð á fjármögnun heil-
brigðisþjónustunnar“ og það á einn-
ig að bera ábyrgð á gæðum hennar.
Það kemur því eftir sem áður í hlut
ríkisins að taka ákvarðanir um
aukna og bætta þjónustu, ef með
þarf, og það kemur einnig í hlut rík-
isins að greiða kostnaðinn af þeim
ákvörðunum. Hin siðferðilega
klemma er sem sagt á sínum stað
eftir sem áður. Á meðan á ríkisvald-
inu hvílir sú skylda að tryggja þegn-
unum „fullkomnustu heilbrigðis-
þjónustu, sem á hverjum tíma eru
tök á að veita“ losna stjórnvöld ekki
við að axla þá siðferðilegu ábyrgð
sem því fylgir. Þau
losna aldrei við að bera
ábyrgð á gæðum þjón-
ustunnar og jafnframt
fjármögun hennar, þar
með „halda kostnaði í
skefjum“ ef með þarf.
Ásta virðist gefa sér
að einkaaðilar fari bet-
ur með fé en hið opin-
bera og að þjónusta
þeirra sé ódýrari en
þjónusta á vegum hins
opinbera. Þessi fullyrð-
ing virðist stangast á
við veruleikann bæði
hér á landi og annars
staðar. Það sýnir m.a.
nýlegt dæmi úr einka-
væðingarsögu núverandi ríkisstjórn-
ar. Á sl. ári gerði heilbrigðisráðu-
neytið samning við hlutafélagið
Frumafl um byggingu og rekstur
öldrunarheimilis. Þegar í upphafi
samdist svo um að þjónusta þessarar
stofnunar skyldi vera 14–15% dýrari
en þjónusta sambærilegra stofnana
á vegum hins opinbera eða sjálfs-
eignarstofnana. Sumir sögðu að
þessi aukagreiðsla ætti að dekka
arðgreiðslur til hluthafa. Ef sú til-
gáta er rétt ætti það að gefa bend-
ingu um að hlutafélagsformið sé ekki
ódýrasta rekstrarformið fyrir heil-
brigðisstofnanir.
Ásta segir að nú sé „kjöraðstaða
til breytinga“ í þessum efnum.
Sennilega hefur hún þar rétt fyrir
sér. Flokkur hennar hefur leikið
heilbrigðiskerfið svo grátt með nið-
urskurði og fjársvelti að málsvarar
einkavæðingarinnar virðast orðið
eiga auðveldan leik að benda á van-
hæfni opinbera kerfisins. En þá
mega menn ekki gleyma því að það
er ekki sama hver stjórnar þar ferð-
inni. Ef þau öfl, sem stjórna fjár-
streyminu til hins opinbera heil-
brigðiskerfis, eiga þá ósk heitasta að
kollvarpa því og einkavæða heil-
brigðisþjónustuna, er ekki von á
góðu. Það er ekki talið skynsamlegt
að láta refinn passa lömbin. Það er
ekki heldur talið heillavænlegt að
treysta þeim til forystu í opinberri
þjónustu sem vilja hana feiga. Þeir
munu áður en lýkur lenda í þeirri
siðferðilegu klemmu sem getur orðið
örlagarík fyrir samfélagið.
Hin siðferði-
lega klemma
Guðmundur
Helgi Þórðarson
Höfundur er fyrrverandi
heilsugæslulæknir.
Heilbrigðisþjónusta
Það er ekki talið
skynsamlegt, segir
Guðmundur Helgi
Þórðarson, að láta
refinn passa lömbin.
GLEÐIGJAFINN sí-
ungi, Jón Boði Björns-
son (Boði), mat-
reiðslumeistari og
bryti, frá Sjónarhóli í
Hafnarfirði, nú að
Löngufit 24 í Garðabæ
er 70 ára í dag, þriðju-
daginn 4. desember
2001.
Boði fæddist að
Sjónarhóli í Hafnar-
firði og ólst þar upp.
Hann fór fyrst til sjós
þrettán ára og var á
bátum, togurum og á
Gullfossi. Hann hóf
síðan nám við Matreiðslu- og
brytaskólann í Danmörku 1952 og
lauk þaðan prófi.
Að námi loknu var Boði á milli-
landaskipum SÍS, starfaði í Naust-
inu og á Hótel Borg þar sem hann
var yfirmatreiðslumeistari. Jón
Boði gerðist kaupmaður á Sjón-
arhóli í Hafnarfirði 1959 og starf-
rækti þar verslun til 1971. Á þeim
árum var hann með tvo kjörbúð-
arbíla sem þjónuðu bæði Garðabæ
og nokkrum hverfum í Hafnarfirði
en það var þá nýjung í verslunar-
rekstri. Eftir að Boði hætti versl-
unarrekstri hefur hann starfað við
matreiðslu, m.a. hjá Álverinu, var í
nokkur ár yfirmatreiðslumaður hjá
hernum á Keflavíkurflugvelli og
var bryti hjá Áburðarverksmiðju
ríkisins. Í dag starfar Boði hjá líf-
tæknifyrirtækinu Prokaría.
Boði fór snemma að stunda
íþróttir, var í fimleikum og hand-
bolta í FH og hefur verið í ýmsum
störfum og nefndum fyrir FH og í
stjórn Stjörnunnar í Garðabæ og
formaður Stjörnunnar um skeið.
Þá hefur hann verið formaður
skemmtiklúbbsins Kátt fólk í 15 ár
og setið þar í stjórn samfleytt í 18
ár, einnig sat Boði í safnaðarstjórn
Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Eiginkona Boða er Erna Sigur-
björg Ragnarsdóttir hárgreiðslu-
meistari, f. 28. maí 1929. Hún er
dóttir Jóns Ragnars Jónassonar
skipasmiðs í Reykjavík og Jóhönnu
Eiríksdóttur verslunarmanns.
Börn Boða og Ernu Sigurbjargar
eru Gréta hárkollu- og förðunar-
meistari, f. 3.10. 1953, gift Gauki
Jónssyni og eiga þau þrjú börn,
Boða, f. 1980, Bylgju, f. 1984, og
Hrönn, f. 1986; Guðbjörg sölumað-
ur, f. 12.2. 1958, hún á tvo syni,
Arnar, f. 1982, og Jón Fannar, f.
1984, sambýlismaður Guðbjargar
er Þröstur Gestsson útvarpsmað-
ur; Hafdís danskennari, f. 6.11.
1961, gift Birni Leifssyni fram-
kvæmdastjóra og eiga þau tvö
börn, Birgittu Líf, f. 1992, og
Björn Boða, f. 1999; Jóhanna, f.
7.9. 1966, gift Guðmundi Bergman
Jónssyni, eiga þau tvö börn, Andr-
eu Bergman, f. 1993 og Ian Berg-
man, f. 1999, fjölskyldan er búsett
í Denver í Colorado. Jóhanna
starfar sem verkefnastjóri hjá ráð-
gjafafyrirtæki í hugbúnaðargerð
og Guðmundur eiginmaður hennar
starfar sem sjálfstæður arkitekt.
Foreldrar Boða voru Björn Ei-
ríksson, skipstjóri og bifreiðastjóri
á Sjónarhóli í Hafnarfirði, f. 9.9.
1894, d. 1983, og kona hans, Guð-
björg Jónsdóttir, húsmóðir og
verslunareigandi, f. 20.10. 1894, d.
21.11. 1993. Björn var sonur Eiríks
Jónssonar á Halldórsstöðum á
Vatnsleysuströnd og konu hans,
Sólveigar Benjamínsdóttur. Guð-
björg var dóttir Jóns Magnússonar
og Guðlaugar Jónsdóttur frá Báru-
gerði á Miðnesi.
Systkini Boða eru; Bjarni Vest-
mar bifreiðastjóri, f. 14.11. 1925,
d.1986; Bára húsmóðir og versl-
unarmaður, f. 16.5. 1927, gift
Magnúsi Þórðarsyni og eiga þau
fjögur börn; Bragi Vestmar, skip-
stjóri og sölumaður, f. 18.6. 1929,
var kvæntur Ernu Guðmundsdótt-
ur, f. 5.6. 1930, d. 12.6. 1996, eiga
þau sex börn; Birgir, vélstjóri og
framkvæmdastjóri, f. 22.2. 1935,
kvæntur Ingu Magnúsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Guðlaug Berg-
lind verslunareigandi, f. 21.2. 1937,
gift Halli Ólafssyni og eiga þau tvö
börn.
Við fjölskyldan, frændur og vinir
Ernu og Boða, ætlum að fagna
með þeim sameiginlegu 142 ára af-
mæli laugardaginn 8. desember en
Erna varð 70 ára hinn 28. maí
1999. Við ætlum að koma saman í
félagsheimilinu Ásgarði í Glæsibæ,
mætum stundvíslega á milli kl. 19
og 19.30.
Klukkan 20 verður hátíðin sett
og gengið til skemmtidagskrár.
Byrjað verður á marseringu að
hætti Boða, naglasúpan marg-
fræga verður á sínum stað og svo
dönsum við, syngjum og gleðjumst
saman til kl. 24. Erna og Boði af-
þakka gjafir, blóm og kransa en
sparibaukur verður staðsettur við
hljómsveitarpallinn og eru framlög
vel þegin og munu þau renna til
samtaka Parkinson-sjúklinga.
Fjölskylda, frændur og vinir.
JÓN BOÐI
BJÖRNSSON
Allt til jólanna
í Hólagarði
AFMÆLI