Morgunblaðið - 04.12.2001, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 59
Kynnum í
Lyf og heilsu Melhaga í dag, þriðjudag, kl. 13-17,
Lyf og heilsu Glæsibæ miðvikudag 5. des. kl. 13-17,
Lyf og heilsu Kringlu föstudag 7. des. kl. 14-18.
oroblu@sokkar.is
skrefi framar
20% afsláttur
af öllum sokkum og sokkabuxum.
Ef keypt er tvennt frá fylgir kaupauki.
Yfir 21 milljón afgreiðslustaða um allan heim
Tískulitir!
ÞRÍR aðilar fengu Múrbrjótinn,
viðurkenningu Landssamtakanna
Þroskahjálpar. Er hann veittur
þeim sem þykja hafa skarað fram-
úr í að ryðja fötluðum nýjar
brautir í átt til jafnréttis.
Viðurkenningar hlutu Karl Lúð-
víksson fyrir uppbyggingu sum-
ardvalar á Löngumýri og starfa
sinna að kennslumálum, Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
fyrir uppbyggingu á fjögurra ára
námi fyrir ungmenni með þroska-
hömlun við almenna framhalds-
skóla og Átak, félag fólks með
þroskahömlun, vegna baráttu fé-
lagsins fyrir réttindum félags-
manna sinna.
Halldór Gunnarsson, formaður
Þroskahjálpar, kynnti verðlauna-
hafana og rök Þroskahjálpar fyrir
valinu. Voru Múrbrjótarnir af-
hentir um leið og opnuð var sögu-
sýning Þroskahjálpar í Ráðhúsinu
í Reykjavík síðastliðinn laugar-
dag. Viðurkenningin er jafnan
veitt á alþjóðadegi fatlaðra sem
var í gær, 3. desember.
Þrír fengu
Múrbrjót
Þroskahjálpar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhendir hér Karli Lúðvíks-
syni einn Múrbrjótanna. Fjær má sjá Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra og Ínu Valsdóttur, formann Átaks, sem einnig fengu Múrbrjót.
VIÐURKENNINGAR Sjálfsbjargar til þeirra stofnana
og fyrirtækja sem hafa gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða
að húsakynnum sínum voru veittar í gær á alþjóðadegi
fatlaðra. Viðurkenningarnar eru af tvennum toga, annars
vegar fyrir nýtt eða nýlegt húsnæði sem uppfyllir ýtrustu
kröfur byggingareglugerðar og hins vegar fyrir eldri
byggingar sem bættar eru verulega með tilliti til fatlaðra.
Að þessu sinni hlutu þrjár þjónustustofnanir á höf-
uðborgarsvæðinu viðurkenningar en það voru Höfða-
borg í Borgartúni 21, Listasafn Kópavogs og Þjónustu-
miðstöð Esso á Ártúnshöfða.
Þá veitti Sjálfsbjörg í A-Húnavatnssýslu viðurkenn-
ingar í sinni heimabyggð. Þau hlutu fyrirtækin Kaup-
félag Húnvetninga, aðalverslun og byggingavörudeild á
Blönduósi, og Héraðsbókasafn og skjalasafn A-Hún-
vetninga, sömuleiðis á Blönduósi.
Viðurkenning fyrir gott aðgengi
Morgunblaðið/Sverrir
F.v. Þórir Karl Jónasson, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Pétur Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Eyktar, eiganda Höfðaborgar, Theodór Sólonsson, stjórnarformaður Eyktar, Guðni Stefánsson, stjórn-
arformaður Listasafns Kópavogs – Gerðarsafns, Jón Pétursson, stöðvarstjóri þjónustumiðstöðvar Esso á Ár-
túnshöfða, og Hannes Stefánsson, skrifstofustjóri Sjálfsbjargar.