Morgunblaðið - 04.12.2001, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
EKKI vantar snjóinn þessa dagana eins og sjá
má af þessari mynd sem tekin var á Hellisheiði í
gær. Þó að greiðfært hafi verið á þessum slóðum
er víða um land þungfært eða vegir lokaðir
vegna snjóa. Ekkert lát virðist á ofankomunni
því Veðurstofan spáir snjó- eða slydduéljum
sunnan- og vestantil á landinu næstu daga og
skiptir þá litlu hvort menn eru staddir til fjalla
eða í byggð.
Morgunblaðið/RAX
Vetrarríki á hálendi og láglendi
NÁÐST hefur samkomulag innan
ríkisstjórnarinnar um niðurskurðar-
og sparnaðaraðgerðir í ríkisfjármál-
um vegna fjárlaga næsta árs. Tillög-
urnar fela í sér rúmlega þriggja
milljarða kr. niðurskurð á ýmsum
rekstrarliðum, frestun framkvæmda
og frestun á ýmsum nýjum verkefn-
um frá því sem gert hafði verið ráð
fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Einnig
eru gerðar tillögur um aukna tekju-
öflun með hækkun gjalda. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er þar einkum um að ræða hækkun á
komugjöldum í heilbrigðisþjónust-
unni, m.a. á komugjöld til sérfræði-
lækna, sem ekki hafa hækkað í takt
við verðlagsþróun á undanförnum
misserum.
Þá hefur verið ákveðið að skerða
ekki fæðingarorlof feðra, en við und-
irbúning aðgerðanna var til umræðu
að fresta gildistöku ákvæða um auk-
inn rétt feðra til fæðingarorlofs.
Tekjur minnka um 900–1.000
milljónir frá fyrri áætlun
Skv. fjárlagafrumvapinu hefur
verið stefnt að 3,1 milljarðs kr.
tekjuafgangi á næsta ári. Aðstæður
hafa hins vegar breyst frá því frum-
varpið var lagt fram og jukust út-
gjöldin um 2,1 milljarð við aðra um-
ræðu á þinginu. Að sögn Geirs H.
Haarde fjármálaráðherra er einnig
útlit fyrir að tekjur ríkissjóðs muni
minnka um 900–1.000 milljónir kr.
frá því sem gert var ráð fyrir í for-
sendum fjárlagafrumvarpsins. Geir
sagði að með þessum tillögum væri
hins vegar reynt að tryggja að upp-
haflegt markmið um tekjuafgang
fjárlaga á næsta ári myndi nást.
,,Það er alveg ljóst að þarna er um
stórt verkefni að ræða ef menn vilja
halda sig við um það bil þriggja millj-
arða króna tekjuafgang, sem er það
sem við erum að reyna að gera,“
sagði Geir.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að reynt hafi verið að
hlífa viðkvæmum þáttum í velferð-
arkerfinu, eftir því sem kostur er, við
frágang tillagnanna. Hann sagði um
þá ákvörðun að hrófla ekki við fæð-
ingarorlofinu að þar væri um mik-
ilvægt réttindamál launafólks að
ræða ,,og alveg ljóst að slík aðgerð
skapaði ekki rétt andrúmsloft í
þeirri viðkvæmu stöðu sem nú er á
vinnumarkaðinum“, sagði hann.
Megin útlínurnar á sparnaðartil-
lögunum voru kynntar á þingflokks-
fundum ríkisstjórnarflokkanna í gær
og lagðar fram fullbúnar í fjárlaga-
nefnd í kvöld eða á morgun.
Ráðherrar ganga frá rúmlega þriggja milljarða króna sparnaðartillögum
Komugjöld hækka en
fæðingarorlof óbreytt
Fresta framkvæmdum/12
GRUNNVATN landsmanna er að
mati Jóns Gunnars Ottóssonar, for-
stjóra Náttúruverndar ríkisins,
munaðarlaust í ríkiskerfinu. Hann
segir brýnt að koma þessari verð-
mætu auðlind landsmanna undir
stjórn umhverfisráðuneytisins og
telur að Náttúrufræðistofnun og
Hollustuvernd, sem heyra til ráð-
neytinu, ættu að sameinast um að sjá
um þessi málefni.
„Það er enginn ákveðinn aðili sem
sér um rannsóknir eða vaktar grunn-
vatnið og það er hvergi vistað undir
formlegum lögum,“ sagði Jón Gunn-
ar í samtali. Hann sagði ýmsa ein-
staklinga hafa tekið grunnvatn og
neysluvatn uppá arma sína, nánast
dundað við það í frístundum sínum.
Nefndi hann Freystein Sigurðsson,
jarðfræðing hjá Orkustofnun, sem
hefði sinnt rannsóknum og fengið til
þess aðstöðu hjá stofnuninni af því
að hann hefði sérstakan áhuga á því.
Jón Gunnar sagði að áður en kæmi
til notkunar grunnvatns yrði að meta
ástand þess og fylgjast síðan með
því. Hefðu sveitarfélög gert það í
tengslum við vatnsveitur.
Ingimar Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, sagði
að gert væri ráð fyrir að Íslendingar
innleiddu svokallaða vatnatilskipun
Evrópusambandsins á næstunni.
Væri grunnvatn tengt tilskipuninni
og mætti taka á þessum þætti í fram-
kvæmd hennar. Voru þeir sammála
um að þannig væri hægt að færa það
undir hatt umhverfisráðuneytis.
Grunnvatn-
ið hornreka
í kerfinu
Á STOFNFUNDI Félags um lýð-
heilsu í gær sagði Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra að í undirbún-
ingi væri að koma upp forvarnamið-
stöð. Forvarnir væru lykill að
heilsugæslu og fagnaði ráðherra
stofnun hins nýja félags. Sagði hann
að mesta byltingin væri sú að vita
hversu mikið menn geta sjálfir lagt
af mörkum sér til heilsuverndar.
Jón Kristjánsson sagði í ávarpi á
fundinum að mikilvægt væri að
koma upp forvarnamiðstöð sem hef-
ur hlutverki að gegna á ýmsum
sviðum. Brýnt væri að samræma
sem mest forvarnastarf í heilbrigð-
ismálum en mörg ráð stýrðu nú
hvers kyns forvörnum. Hann sagði
unnið að stefnumótun í ráðuneytinu
fyrir slíka forvarnamiðstöð og að
huga yrði að ýmsum lagabreyting-
um í því sambandi. Ekki væri gert
ráð fyrir fjárframlagi til forvarna-
miðstöðvar á næsta ári en unnið
yrði að lagabreytingum og frum-
vörp trúlega lögð fram á yfirstand-
andi þingi.
Fyrsti formaður félagsins var
kjörinn Geir Gunnlaugsson, yfir-
læknir heilsuverndar barna í
Reykjavík.
Stofnun forvarnamið-
stöðvar undirbúin
Félag fagmanna/6
BRÆÐURNIR Hrannar Tumi og
Sigurbjörn Hrafn Hrannarssynir
voru að leika sér í snjónum þegar
þeir fundu eðlu í kjallaratröpp-
unum fyrir utan blokkina heima hjá
sér í Breiðholtinu í gær.
Hrannari Tuma þótti full ástæða
til að sýna móður sinni, Margréti
Sigurjónsdóttur, eðluna og fór jafn-
framt fram á að hún léti Morgun-
blaðið vita af fundinum sem hún og
gerði. Þau höfðu líka samband við
Náttúrufræðistofnun sem bað þau
um að koma með eðluna. Ekki lá þó
fyrir í gær um hvaða tegund væri
að ræða.
Fjölskyldan bjó um tíma í Kali-
forníu þar sem eðlur eru eðlilegur
hluti af lífríkinu og er Hrannar
Tumi því vanur að sjá slík dýr.
Hann var því ánægður með fundinn
og hafði á orði að eðlur væru bara
komnar til Íslands.
Morgunblaðið/Sverrir
Hrannar Tumi Hrannarsson, sjö
ára, og bróðir hans Sigurjón
Hrafn, fjögurra ára, með eðluna
sem var frosin við snjóinn.
Fundu eðlu
í snjónum