Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 1
65. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 19. MARS 2002
SJÖ manns fórust og 50 slösuðust í
gær þegar ítalskur flutningabíll fór
út af akrein sinni á hraðbraut í
norðausturhluta Frakklands og ók
á rútu með hollenska ferðamenn.
Fjórir farþegar rútunnar, bílstjóri
hennar og tveir Ítalir í flutn-
ingabílnum létu lífið. Þrír farþega
rútunnar voru enn í lífshættu í gær-
kvöldi.
Talið var slysið hefði orðið vegna
þess að ökumaður flutningabílsins
hefði annaðhvort sofnað eða veikst
skyndilega. Franskir slökkviliðs-
menn eru hér að störfum við flak
rútunnar.
Reuters
Mannskæður árekstur
ÍTÖLSK her- og varðskip drógu
flutningaskip með nær 1.000 flótta-
menn til hafnar á Sikiley í gær eftir
að flóttafólkið hafði hótað að kasta
börnum sínum fyrir borð fengi
skipið ekki að koma að landi. Koma
skipsins varð til þess að ítalska rík-
isstjórnin lýsti yfir neyðarástandi á
Sikiley vegna straums flóttafólks til
eyjunnar síðustu mánuði.
Í skipinu voru 360 börn og nær
400 konur. Fólkið var flutt á
íþróttaleikvang í hafnarborginni
Cataníu. Fyrir komu skipsins fór
læknir um borð til að aðstoða konu
í barnsnauð.
Átta manna áhöfn skipsins hafði
eyðilagt vélar þess og reynt að fela
sig meðal flóttafólksins. Fimm skip-
verjanna voru handteknir.
Flestir flóttamannanna eru sýr-
lenskir Kúrdar og ætluðu að fara til
ættingja sinna í Þýskalandi.
Skip flótta-
fólks dregið
til hafnar
Reuters
TOMMY Franks hershöfðingi, yfir-
maður bandarísku hersveitanna í
Afganistan, lýsti því yfir í gær að
hernaðaraðgerðirnar í fjöllum við
Shah-e-Kot-dal í austurhluta lands-
ins hefðu „heppnast algjörlega“.
Afganskir herforingjar, sem börðust
með bandarísku hermönnunum,
sögðu hins vegar að flestir taliban-
arnir og liðsmenn al-Qaeda í fjöllun-
um hefðu komist undan.
Hernaðaraðgerðunum í Shah-e-
Kot í Paktíahéraði, sem nefndar voru
Anaconda, átti að ljúka í gær, að
sögn Franks. Hann bætti þó við að
því færi fjarri að stríðinu gegn
hermdarverkamönnum í Afganistan
væri lokið.
Embættismaður í Washington
sagði að bandarískir hermenn hefðu
ráðist á þrjá bíla sem talið væri að
hefðu flutt liðsmenn al-Qaeda af
átakasvæðinu. Hann sagði að sextán
al-Qaeda-liðar hefðu fallið og einn
hefði særst og verið tekinn til fanga.
Enginn Bandaríkjamaður særðist í
árásinni sem var gerð á sunnudag.
Bretar senda herlið
til Afganistans
Hernaðaraðgerðirnar í Shah-e-
Kot hófust 2. mars og bandarísku
hermennirnir náðu óvinavígjunum á
sitt vald í vikunni sem leið. Nokkrir
afganskir herforingjar sögðu þó að
flestir talibanarnir og al-Qaeda-lið-
arnir hefðu komist undan.
„Bandaríkjamennirnir hlusta ekki
á neinn,“ sagði einn þeirra. „Þeir
gera það sem þeim sýnist. Flestir
mannanna sluppu. Það er ekki hægt
að kalla þetta góðan árangur.“
Breska stjórnin tilkynnti í gær að
hún hygðist senda allt að 1.700 her-
menn til Afganistans að beiðni
Bandaríkjastjórnar. Verður þetta
fjölmennasta herlið sem Bretar beita
í hernaðaraðgerðum frá Persaflóa-
stríðinu árið 1991.
Deilt um
árangur
árásanna
Bagram. AP.
Afganistan
Sósíaldemókrataflokkurinn í Portú-
gal, sem er hægriflokkur, fór með
sigur af hólmi í þingkosningunum á
sunnudag og velti ríkisstjórn sósí-
alista úr sessi. Sósíaldemókrata-
flokkurinn fékk þó ekki hreinan
meirihluta á þinginu og þarf því að
mynda samsteypustjórn.
Flokkurinn fékk 40,12% at-
kvæðanna og 102 þingsæti af 230.
Líklegt er að Jose Manuel Durao
Barroso, leiðtogi flokksins, reyni að
mynda stjórn með öðrum hægri-
flokki, Þjóðarflokknum, sem fékk
14 þingsæti og 8,75% atkvæðanna.
Stjórnmálaskýrendur efast þó um
að Þjóðarflokkurinn geti starfað
með sósíaldemókrötum þar sem
mikill rígur hefur verið milli leið-
toga flokkanna.
Sósíalistar, sem höfðu verið við
völd í tæp sjö ár, fengu 37,85% at-
kvæðanna og 95 þingsæti. Þeir töp-
uðu 20 sætum en sósíaldemókratar
bættu við sig 19.
Boða skattalækkanir
og minni ríkisútgjöld
Sósíaldemókratar hafa lofað að
lækka skatta á fyrirtæki, minnka
ríkisútgjöld, selja nokkur ríkisfyr-
irtæki og koma á umbótum í
mennta- og heilbrigðiskerfinu.
Eduardo Ferro Rodrigues, nýr
leiðtogi sósíalista, hét því að berj-
ast gegn því að sósíaldemókratar
skæru niður útgjöldin til velferð-
arkerfisins.
Sameinaða lýðræðisfylkingin,
CDU, bandalag Kommúnistaflokks-
ins og græningja, fékk um 7% at-
kvæðanna og kommúnistar í
Vinstrihreyfingunni, BE, fengu að-
eins 2%.
Stjórn sósíalista
í Portúgal féll
Lissabon. AFP, AP.
HÁTTSETTIR embættismenn Ísr-
aela og Palestínumanna héldu áfram
viðræðum fyrir milligöngu Banda-
ríkjamanna í gær og sögðu að þokast
hefði í átt að samkomulagi um
vopnahlé. Ísraelar hófu brottflutn-
ing hermanna frá bæjunum Betle-
hem og Beit Jala á Vesturbakkanum
í gærkvöldi eftir að hafa samþykkt
að fela heimastjórn Palestínumanna
umsjón öryggismála að nýju á sjálf-
stjórnarsvæðum þeirra.
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, fór til Ísraels til að taka
þátt í friðarumleitunum Anthonys
Zinnis, sendimanns Bandaríkja-
stjórnar, og þeir ræddu við Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels.
Ekkert lát var þó á átökunum í
gær. Ísraelskir hermenn skutu til
bana Palestínumann, sem var með
sprengju innanklæða, á vegi milli
Ísraels og Gaza-svæðisins. Palest-
ínumenn skutu einnig tveimur flug-
skeytum á Ísrael frá Gaza-svæðinu.
Fimm Palestínumenn særðust í árás
skriðdreka sem sendir voru inn í pal-
estínskt þorp á Gaza-svæðinu í gær-
kvöldi eftir flugskeytaárásirnar.
Jarðýtur Ísraelshers eyðilögðu tvö
hús í árásinni.
Ísraelskir hermenn skutu einnig
22 ára Palestínumann til bana inni í
verslun hans nálægt bænum Hebron
á Vesturbakkanum.
Embættismenn Ísraela og Palest-
ínumanna komu þrisvar sinnum
saman á einum sólarhring. „Ísraelar
hafa skuldbundið sig til að flytja her-
lið sitt frá öllum svæðum Palestínu-
manna á Vesturbakkanum,“ sagði
Jibril Rajoub, einn palestínsku emb-
ættismannanna.
Brottflutningi herliðsins átti að
ljúka í gærkvöldi eða í nótt, að sögn
ísraelska varnarmálaráðuneytisins.
Ísraelskir hermenn voru sendir
inn í sex palestínska bæi á Vestur-
bakkanum í mánuðinum til að leita
að herskáum Palestínumönnum.
Þeir höfðu farið frá öllum bæjunum
nema Betlehem og Beit Jala fyrir
viðræðurnar í gær.
Ekki var ljóst hvort Ísraelar
myndu einnig draga herlið sitt frá
nokkrum stöðum sem þeir hafa her-
numið á Gaza-svæðinu.
Palestínumenn hafa lagt megin-
áherslu á þá kröfu að Ísraelar kalli
herlið sitt frá palestínsku svæðun-
um. Þótt Ísraelar verði við kröfunni
gætu friðarumleitanirnar farið út um
þúfur ef ekkert lát verður á árásum
Palestínumanna.
Hóta að sniðganga Cheney
ræði hann ekki við Arafat
Cheney sagði áður en hann ræddi
við Sharon að Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, og stjórn Ísraels
þyrftu að gera ráðstafanir til að
binda enda á átökin.
Aðstoðarmenn Cheneys sögðu að
hann hefði í hyggju að ræða við pal-
estínska embættismenn þótt engir
slíkir fundir hefðu verið ákveðnir. Til
greina kæmi að hann ræddi við Ara-
fat. Ahmed Qureia, forseti palest-
ínska þingsins, sagði að ef Cheney
vildi ekki fund með Arafat myndu
aðrir palestínskir embættismenn
neita að ræða við varaforsetann.
Ísraelar flytja her-
lið sitt frá Betlehem
Jerúsalem. AP, AFP.
Þokast í átt að vopna-
hléssamkomulagi
BRESKA þingið samþykkti
með miklum meirihluta atkvæða
í gærkvöldi tillögu um algjört
bann við veiðum með hundum.
Þingið greiddi atkvæði um
þrjá kosti – að veiðarnar yrðu
bannaðar, að eftirlitið yrði hert
eða að lögunum yrði ekki breytt.
Síðarnefndu kostunum var
hafnað og bannið var samþykkt
með 386 atkvæðum gegn 175.
Fyrir atkvæðagreiðsluna
skýrði talsmaður Tonys Blairs
frá því að forsætisráðherrann
væri hlynntur banni við veiðum
með hundum. Talið var þó að
margir ráðherra hans hefðu
stutt málamiðlunartillögu um
hert eftirlit með veiðunum.
Veiðar með
hundum
bannaðar
London. AFP.