Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu MMC Pajero GLS 3.2
diesel, f. skrd. 16.06. 2000, ek.
43 þ. km., 5 d., sjálfsk., leður,
sóll., varadekkshl. o.fl. Verð
4.250.000.
Nánari upplýsingar hjá
Bílaþingi.
Opnunartímar: Mánud.-föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
ÖRYRKJABANDALAG Íslands,
ÖBÍ, hefur fengið í arf allar eigur
Ólafs Gísla Björnssonar innheimtu-
manns, sem lést í Reykjavík 15. jan-
úar sl. Um er að ræða 36 milljónir
króna í reiðufé, auk þriggja lítilla
íbúða. Erfðaskrá Ólafs er dagsett 5.
mars árið 1969. Í tilkynningu frá
ÖBÍ kemur fram að gjöf Ólafs Gísla
megi meta til nærri 60 milljóna
króna.
Garðar Sverrisson, formaður
ÖBÍ, segir í samtali við Morgun-
blaðið að þetta séu slík tíðindi að sig
skorti í raun orð til að tjá tilfinn-
ingar þeirra sem að bandalaginu
koma og lýsa þeim hug sem að baki
gjöfinni bjó.
„Þegar við greindum frá þessu á
aðalstjórnarfundi í síðustu viku setti
menn í byrjun algerlega hljóða. Til-
urð þessarar gjafar er á allan hátt
svo einstök að mér er til efs að hún
geti átt sér nokkra hliðstæðu. Þeir
sem þekktu Ólaf vissu að hann átti
við erfiða fötlun að stríða og þurfti
að beita sig hörðu til að afkasta sínu
dagsverki. Hitt mun einungis hafa
verið á vitorði örfárra að allt hans
ævistarf skuli hafa beinst að því að
efla baráttu Öryrkjabandalags Ís-
lands,“ segir Garðar.
„Sá til þess að við
fengjum ekkert að vita“
Hann segir að allt fram á síðasta
ár hafi komið fyrir að Ólafur hafi
hringt á skrifstofu bandalagsins og
brýnt það í baráttunni.
„En aldrei gerði hann svo mikið
sem að gefa í skyn hvernig hann
sjálfur hefði í kyrrþey lagt sitt
þunga lóð á vogarskálarnar. Hann
sá til þess að við fengjum ekkert af
þessu að vita fyrr en hann væri all-
ur. Þetta er á allan hátt eitthvað svo
óraunverulegt að mér er hreinlega
um megn að gera grein fyrir þeim
margvíslegu hugrenningum sem
þessi viðburður hefur vakið. Ég get
aðeins sagt að ég er, eins og við öll,
bæði hrærður og þakklátur. En
andspænis svona tíðindum verða öll
orð máttlaus og merkingarlítil,“
segir Garðar.
Lýður Björnsson sagnfræðingur,
bróðir Ólafs Gísla, segir í samtali við
Morgunblaðið að þau systkinin hafi
vitað af ráðagerð hans í meira en 30
ár og ekki gert neinar athugasemd-
ir. Hins vegar hafi þeim komið
skemmtilega á óvart að vita hve
miklar eigurnar hafi verið.
Spurður um mögulega ástæðu
þess að arfleiða Öryrkjabandalagið
að öllum eigum sínum segir Lýður
að Ólafi hafi fundist hann tilheyra
þeim hópi, eins og réttilega hafi ver-
ið. Hann hafi einfaldlega viljað gera
sitt til að styrkja bandalagið.
Íbúðirnar sem Ólafur Gísli átti
eru allar í Reykjavík. Að sögn Lýðs
bjó bróðir hans í einni þeirra en hin-
ar tvær voru leigðar út á almennum
markaði. „Við vonum bara að þessar
eigur komi Öryrkjabandalaginu að
góðum notum, og vitum að svo verð-
ur,“ segir Lýður.
Í fyrsta skipti
borð fyrir báru
Garðar segir að í gegnum tíðina
hafi Öryrkjabandalagið látið mest-
allar tekjur sínar renna til hússjóðs
bandalagsins, sem er sjálfseignar-
félag, og styrkja til aðildarfélaga að
mestu leyti.
„Minnstur hlutinn hefur farið
beint í rekstur bandalagsins. Fyrir
bragðið hefur Öryrkjabandalagið
sjálft ekki byggt upp neinar eignir
og ekki einu sinni gætt þess að eiga
einhvern varasjóð. Af þessu höfum
við raunar haft nokkrar áhyggjur.
En með tilkomu þess mikla fjár sem
hér um ræðir er ljóst að nú er í
fyrsta skipti borð fyrir báru. Við
munum fyrst um sinn varðveita
þetta fé sem varasjóð og grípa til
þess ef með þarf í baráttuna. En til
þess var gjöfin ætluð,“ segir Garðar
að endingu.
Öryrkjabandalagið erfir 36 milljónir og þrjár íbúðir frá Ólafi G. Björnssyni
Systkini Ólafs færa Öryrkjabandalaginu að gjöf innheimtutöskuna sem bróðir þeirra notaði alla tíð. Frá vinstri
eru það Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, Sigurbjörg Björnsdóttir, Lýður Björnsson og
Örn Grundfjörð. Á myndina vantar Elínborgu Björnsdóttur. Töskunni, ásamt mynd af Ólafi, verður komið fyrir
í glerskáp á áberandi stað í húsakynnum ÖBÍ.
„Tilurð gjafarinnar er
á allan hátt einstök“
ÓLAFUR Gísli Björnsson fæddist
í Bakkaseli í Bæjarhreppi í
Strandasýslu 14. október árið
1934.
Tíu ára að
aldri fékk hann
skarlatssótt og
í framhaldi
hennar heila-
himnubólgu
sem leiddi til
verulegrar löm-
unar og floga-
veiki. Hann átti
lengi við veik-
indi að stríða, fyrst í heimahúsum
en síðar á Landspítalanum. Lækn-
ingatilraunir báru takmarkaðan
árangur. Eftir að hann kom heim
af sjúkrahúsinu lagði hann búi
foreldranna allt það lið sem hann
mátti og féll sjaldan verk úr
hendi.
Árið 1959 fluttist hann til
Reykjavíkur ásamt foreldrum sín-
um og systkinum. Með lyfjum
tókst að halda flogunum í skefjum
en lömunin háði honum alla tíð.
Í Reykjavík vann hann framan
af í prentsmiðjunni Gutenberg og
sem starfsmaður Kópavogshælis.
Hann tók brátt að bera út blöð og
innheimta gjöld fyrir ýmis félög
og varð það hans aðalstarf síð-
ustu þrjá áratugina. Hann fór
allra sinna ferða gangandi eða
með strætisvagni, hvernig sem
viðraði. Oft hlaut hann slæmar
byltur á veturna og var stundum
frá vinnu vegna afleiðinga þeirra.
Undir lok síðasta áratugar dró
hann nokkuð saman seglin vegna
veikinda og þess að aðrar inn-
heimtuaðferðir höfðu leyst hinar
hefðbundnu af hólmi.
Í tilkynningu frá ÖBÍ segir að
Ólafur Gísli hafi sett eft-
irminnilegan svip á borgarlífið.
Fjölmargir Reykvíkingar hafi
kannast við „þennan glaðbeitta
mann sem gekk um með litla
brúna innheimtutösku sem hann
reyrði gjarnan fremur þétt að
sér. Hann var mikill bar-
áttumaður fyrir jafnrétti og fé-
lagslegum jöfnuði, tók virkan þátt
í stjórnmálastarfi og lét skoðanir
sínar á þjóðmálum óspart í ljós.“
Ólafur Gísli
Björnsson
Bar út blöð og innheimti
gjöld fyrir ýmis félög
GEIR A. Gunnlaugsson, stjórnarfor-
maður Reyðaráls, segir að ekki hafi
verið boðað til fundar með stjórnend-
um Norsk Hydro en það sé reiknað
með að málið muni skýrast á næstu
dögum, meira sé ekki hægt að segja
að svo stöddu.
Jon-Harald Nielsen, forstjóri
Hydro Aluminium, Norsk Hydro,
segir í viðtali við norska dagblaðið
Aftenposten að Norsk Hydro hafi
ekki áhuga á frekari kaupum (opp-
kjöp) í áliðnaði á meðan verið er að
samhæfa rekstur Hydro og þýska ál-
framleiðandans VAW. Blaðamaður
Aftenposten sagði í samtali við Morg-
unblaðið að spurt hefði verið um
möguleg kaup á starfandi fyrirtækj-
um í áliðnaði en ekki hefði verið rætt
um nýfjárfestingar í viðtalinu.
Jon-Harald segir í Aftenposten að
enn sé ekki komin nein niðurstaða í
deilunni um valsafyrirtækið Alu-Norf
sem er í helmingseigu VAW og Alcan
en stjórnendur Alcan telja sig eiga
forkaupsrétt að bréfum VAW í Alu-
Norf og hafa höfðað mál fyrir þýsk-
um dómstólum. Jon-Harald segist
öruggur um að Norsk Hydro muni
halda sínum hlut í Alu-Norf en vonast
jafnframt til þess að ná samkomulagi
við Alcan áður en málið kemur til
kasta þýskra dómstóla.
Reiknuð heildarfjárfesting 273
milljarðar íslenskra króna
Nokkuð misjafnar upphæðir hafa
verið nefndar í fjölmiðlum um fjár-
festingu Norsk Hydro vegna yfirtök-
unnar á VAW. Eins og áður hefur
komið fram í Morgunblaðinu nemur
reiknað kaupverð (próforma verð) á
hlutabréfum Hydro í VAW, miðað við
að kaupin eigi sér stað í upphafi árs-
ins, 166,6 milljörðum íslenskra króna,
þá yfirtekur Hydro skuldir að upp-
hæð 66,8 milljarða króna og lífeyr-
isskuldbindingar að upphæð 39,7
milljarða en samtals gera þetta því
um 273 milljarða íslenskra króna.
Kanadíska álfyrirtækið Alcan er
næststærsti álframleiðandi í heimin-
um, á undan Norsk Hydro, en banda-
ríska fyrirtækið Alcoa er stærsti ál-
framleiðandinn. Töluvert hefur verið
rætt um möguleg kaup álrisa á
smærri álfyrirtækjum í fjölmiðlum.
Má í því sambandi benda á að Alcoa á
40% hlut í norska félaginu Elkem,
sem á Íslenska járnblendifélagið, og
er talið að stjórnendur Alcoa hafi enn
hug á að eignast meirihlutann í félag-
inu en Alcoa gerði yfirtökutilboð í
janúar og bauð þá 155 norskar krón-
ur á hlut en sérfræðingar töldu eðli-
legt verð vera nær 200 krónum á hlut.
Norsk Hydro og álver á Reyðarfirði
Enginn fundur boðaður
ÖLVAÐUR maður beit lögreglu-
mann og skallaði annan í andlitið á
lögreglustöðinni á Ísafirði aðfara-
nótt sunnudags.
Maðurinn hafði ásamt þremur fé-
lögum sínum verið færður á lög-
reglustöðina vegna gruns um ölvun-
arakstur og sýndi mikla mótspyrnu
þegar taka átti úr honum blóðsýni.
Að sögn Rósamundu Baldursdóttur,
varðstjóra lögreglunnar á Ísafirði,
beit maðurinn annan lögreglumann-
inn í handlegginn til blóðs og skallaði
annan þannig að gleraugu hans
brotnuðu og hann marðist nokkuð í
andliti. Meiðsli þeirra eru ekki alvar-
leg og eru þeir báðir vinnufærir.
Lögreglan kom að bíl mannanna á
fjórða tímanum. Mennirnir, sem eru
fæddir á árunum 1979–1985, voru
allir undir áhrifum áfengis en enginn
þeirra vildi kannast við að hafa ekið
bifreiðinni. Þeir voru því færðir á
lögreglustöð til yfirheyrslu og til
þess að taka mætti úr þeim blóðsýni.
Skömmu áður en læknir hugðist
draga blóð úr manninum brást hann
hinn versti við og réðst að lögreglu-
mönnunum. Hann var hafður undir
og mátti líkt og félagar hans, dúsa
fangageymslu fram eftir sunnudeg-
inu. Málið er í rannsókn.
Réðst á lög-
reglumenn
inni á stöðinni
ENGINN annar hefur verið hand-
tekinn eða yfirheyrður sem grunað-
ur vegna rannsóknar lögreglunnar í
Reykjavík á morði við Víðimel 18.
febrúar sl.
Maður, sem handtekinn var sam-
dægurs, hefur játað á sig morðið og
að hafa skömmu áður brotist inn á á
hjólbarðaverkstæði í vesturbænum.
Hæstiréttur hafnaði nýlega kröfu
mannsins um að fá heimsóknir og
fylgjast með fjölmiðlum. Var þar
með úrskurður Héraðsdóms Reykja-
víkur staðfestur en þar segir að lög-
regla sé að fylgja eftir vísbendingum
um að fleiri hafi tekið þátt í afbrot-
unum. Þá sé aðdragandi þeirra ekki
fullskýrður. Maðurinn hefur þó
fengið heimsóknir frá nánustu ætt-
mennum sínum, foreldrum og barns-
móður. Þá fær hann að lesa póst sem
lögregla opnar og les yfir.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
segir að ýmislegt sé óskýrt í málinu
og meðan svo sé telji lögregla
ástæðu til að halda manninum í ein-
angrun. Aðspurður hvort lögregla
telji að fleiri tengist málinu segir
hann ekki útiloki að fleiri hafi komið
við sögu, jafnt að manndrápinu sem
innbrotinu. Enginn hefur þó verið
handtekinn eða yfirheyrður með
réttarstöðu grunaðs manns.
Ýmislegt óskýrt
varðandi morð-
ið á Víðimel
♦ ♦ ♦