Morgunblaðið - 19.03.2002, Qupperneq 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 15
SLEÐADAGAR
af fatnaði og fylgihlutum
15-50%
afsláttur
Sími: 594 6000
Toppgrindurnar frá Mont Blanc eru flægilegar
og einfalt a› setja flær á bílinn. A›eins einn
smellur...og skí›aboginn er kominn á.
Skíðabogar
Farangursbox
Fyrir skí›in e›a fyrir fer›alagi› í sumar.
Boxin eru létt, au›velt a› setja flau á
toppinn og allar festingar einfaldar.30%
Tilbúin á toppinn
Borgartúni, Reykjavík.
Bíldshöfða, Reykjavík.
Bæjarhrauni, Hafnarfir›i.
Hrísmýri, Selfossi.
Dalbraut, Akureyri.
Grófinni, Keflavík.
Lyngási, Egilsstö›um.
Álaugarvegi, Hornafir›i. www.bilanaust.is
Sími 535 9000
afsláttur
fram a›
páskum
Bílanaust er opið:
Mán. til fös. kl. 8 - 18.
Einnig opi› í Borgartúni
á laugardögum kl. 10 - 14.
lekavandamál sem er vegna þess
hvernig þakið hefur litið út,“ segir
Ingi.
Með þessu bætast um 250 fer-
metrar við bókasafn skólans sem í
dag hefur um eina stofu til umráða að
sögn Inga. Heildarstækkun fjórðu
hæðarinnar er 353,2 fermetrar sam-
kvæmt bréfi byggingarfulltrúa. Seg-
ir Ingi um óverulegar breytingar að
STEFNT er að því að hefja fram-
kvæmdir við stækkun Verslunar-
skóla Íslands í sumar en skipulags-
og byggingarnefnd Reykjavíkur hef-
ur samþykkt breytingu á deiliskipu-
lagi lóðarinnar vegna stækkunar
fjórðu hæðar skólans. Áður hefur
verið gefið byggingarleyfi fyrir fjög-
urra hæða viðbyggingu sem koma
mun við skólann í átt að Háskóla
Reykjavíkur.
Viðbyggingin verður alls rúmlega
2.000 fermetrar að stærð. Að sögn
Inga Ólafssonar, aðstoðarskólastjóra
Verslunarskólans, mun hún rúma tvo
fyrirlestrasali og tekur annar þeirra
um 100 manns í sæti. Hinn salurinn
er minni og uppbyggður á annan hátt
og tekur um 70 manns í sæti.
Nemendum fjölgi um 200
Auk fyrirlestrarsalanna bætast
við tæpar 20 kennslustofur að sögn
Inga. „Það er reiknað með því að
skólinn stækki eftir eitt eða tvö ár,
þannig að við erum ekki aðeins að
stækka húsnæðið sem slíkt með
þessu heldur ætlum við að fjölga
nemendum. Við höfum áhuga á að
fjölga þeim sem nemur um 200 í
heildina með því að taka inn tvo nýja
bekki á hverju ári.“ Hann undirstrik-
ar þó að nemendafjöldinn sé ekki
endanlega ákveðinn enda hafi fjöldi
nemenda á þessum aldri í landinu
þar áhrif á. „Þetta er í mikilli lægð
núna en fer fjölgandi á næstu árum,“
segir hann.
Viðbyggingin er ekki einu viðbæt-
urnar sem fyrirhugaðar eru við skól-
ann því skipulagsnefnd gaf á síðasta
fundi sínum grænt ljós á stækkun
fjórðu hæðar skólans þar sem bóka-
safn hans er. Skólinn er í dag að
stærstum hluta fjórar hæðir en að
hluta til aðeins þrjár og þar verður
byggt ofan á. „Við erum með mjög
stórt og opið rými í miðju húsinu og
lyftum þakinu. Þetta hjálpar okkur
líka mikið við að koma í veg fyrir
ræða í útliti skólans sem sjáist nán-
ast ekkert utan frá.
Þjónustusamningur
ekki frágenginn
Hönnuðir viðbygginganna eru
Hrafnkell Thorlacius arkitekt og
Arkitektastofan Ormar Þór Guð-
mundsson og Örnólfur Hall. Ekki er
búið að tímasetja framkvæmdir ná-
kvæmlega. „Við vonumst til að við
getum ráðist í að stækka bókasafnið í
sumar en viðbyggingin hangir saman
við samninga sem er verið að gera
við menntamálaráðuneytið,“ segir
Ingi. „Við vorum að vonast til þess að
geta byrjað á þessu á þessu ári en
það er ekki frágengið ennþá.“
Samningarnir sem um ræðir
tengjast fjármögnun fram-
kvæmdanna en að sögn Inga mun
skólinn sjálfur fjármagna viðbygg-
inguna. Á móti kemur þjónustu-
samningur við menntamálaráðu-
neytið sem mun tryggja skólanum
tekjur en þær ráðast af því hversu
mikið nemendum í skólanum fjölgar
með stækkun húsnæðisins. Skólinn
fjármagnar hins vegar alfarið stækk-
un bókasafnsins að sögn Inga.
Verslun-
arskólinn
stækkar
Háaleitishverfi