Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
Tveir tvöfaldir
Til sölu tvær sportvörubúðir á besta stað í höfuðborginni, meðal-
stórar. Mjög þekktar með góð merki og sambönd. Tilvalið fyrir dug-
legan aðila eða íþróttafélag, sem vill hafa góðar og stöðugar tekjur
til fjáröflunar (ekki veitir af). Seljast saman eða í sitt hvoru lagi.
Einnig til sölu tvö lítil kaffihús á frábærum stöðum. Vínveitingar-
leyfi á öðru þeirra. Sami eigandi. Seljast saman eða í sitt hvoru
lagi. Það eru margir sem eru að bíða eftir svona skemmtilegu
tækifæri.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
EINAR ÖRN REYNISSON, LÖGG. FASTEIGNASALI.
NÝLEGA var stofnað á Davík fé-
lag sem sótt hefur um aðild að
samtökunum Landsbyggðin lifi
(LBL), en þau voru stofnuð á síð-
asta ári af áhugafólki um velferð
byggðanna. Sambærileg samtök
eru starfandi á hinum Norðurlönd-
unum.
Markmið LBL og aðildarfélag-
anna/deildanna er að byggja á
frumkvæði fólksins á svæðinu með
umræðu, stefnumörkun og lýðræði,
þ.e. áhugasamir íbúar koma saman
og ræða málin og velja þau verk-
efni sem varða velferð sinnar
heimabyggðar og samstaða næst
um að vinna að. Síðan er leitað
leiða við að leysa þau á farsælan
hátt á jafnræðisgrundvelli sér og
öðrum til ánægju og uppbyggingar.
Meðal verkefna í fremstu röð má
nefna: Þróun atvinnumála og
tæknilegar nýjungar, sérstaklega á
sviði tölvu- og fjarskipta, fyrir
heimabyggðina, verndun náttúru
og sögulegra minja og annarra
menningarverðmæta, umhverfis-
mál og annað það sem betur má
fara á svæðinu.
Landsbyggðin lifi hefur einnig
það að markmiði að styðja við bak-
ið á starfandi, óháðum félagasam-
tökum og stuðla að starfsemi fé-
laga og félagasamtaka við að auka
fjölbreytileika og rétta hag hinna
dreifðu byggða undir kjörorðinu:
Vertu með – Gerðu þitt besta!
Í stjórn og varastjórn hins ný-
stofnaða félags Dalvíkurbyggðar
voru kosnir:
Ragnar Stefánsson, Laugasteini,
formaður, Sveinn Jónsson, Kálfs-
skinni, Rafn Arnbjörnsson, Dalvík,
Helga Bryndís Magnúsdóttir,
Bakka, og Þorgils Gunnlaugsson,
Sökku.
Aðildarfélögum
í „Landsbyggðin
lifi“ fjölgar
Dalvík
100. fundur bæjarstjórnar Snæ-
fellsbæjar var haldinn fimmtu-
daginn 7. mars sl. Af því tilefni
var fengin terta fyrir bæjarfull-
trúa og gesti fundarins.
19 mál voru tekin fyrir á fund-
inum, m.a. bréf frá Framfara-
félagi Snæfellsbæjar, Hellissands
og Rifsdeild, þar sem bent var á
nauðsyn þess að Vegagerðin ljúki
við að lýsa upp leiðina á milli
Hellissands og Rifs. Tók bæj-
arstjórn heilshugar undir það er-
indi enda mikil nauðsyn á þessu
vegna öryggis gangandi, hjólandi
og akandi vegfarenda.
Einnig var tekið fyrir erindi
frá Láru Kristinsdóttur og Lárusi
Einarssyni þar sem þau sýndu því
áhuga að byggja upp útivistar-
paradís á norðanverðum Snæ-
fellsjökli.
Önnur mál ásamt afgreiðslu
bæjarstjórnar er hægt að nálgast
á heimasíðu Snæfellsbæjar:
www.snb.is
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar á tímamótafundinum, frá vinstri: Margrét
Ingimundardóttir, Ólína Kristinsdóttir, Kristinn Jónasson bæjarstjóri,
Pétur S. Jóhannsson, Sveinn Þór Elínbergsson, Ólafur Rögnvaldsson,
Jón Þór Lúðvíksson og Ásbjörn Óttarsson.
100. fundur
bæjarstjórnar
Snæfellsbær
KRISTJÁN Þórhallsson frá Björk í
Mývatnssveit, fréttaritari Morgun-
blaðsins, var jarðsunginn frá Reykja-
hlíðarkirkju síðastliðinn laugardag.
Sr. Örnólfur Jóhannes Ólafsson jarð-
söng, kór Reykjahlíðarkirkju söng við
undirleik Valmars Valjaots. Baldur
Baldvinsson söng einsöng.
Kistuna báru Þórhallur Kristjáns-
son, Guðni Rúnar Helgason, Helgi
Kristjánsson, Hermann Kristjáns-
son, Leifur Hallgrímsson og Jóhann
Fr. Kristjánsson.
Jarðarför
Kristjáns
Þórhallssonar
Mývatnssveit
UM nokkurt skeið hafa staðið yfir
gagngerar breytingar á hinu aldna
félagsheimili Bifröst á Sauðárkróki.
Um árabil var Bifröst einn vin-
sælasti dansstaður Skagfirðinga og
þar var Sæluvika Skagfirðinga
haldin um árabil, en með tilkomu
nýrri félagsheimila víðsvegar um
fjörðinn dreifðist skemmtanahaldið
og þegar krár spruttu upp á hverju
götuhorni í þéttbýlinu var tímabil
stærri dansstaðanna þar á enda
runnið.
Alllengi hefur verið um það rætt
hvert ætti að vera hlutverk Bifrast-
ar og flestir hallast að því að ef
húsið yrði ekki fjarlægt, ætti að
breyta því í kvikmynda- og leikhús,
en hverfa alfarið frá öllu dansleikja-
haldi og öðrum slíkum skemmtun-
um.
Nú eftir síðustu áramót náðist
um það samstaða meðal eigenda
Bifrastar að höggva á hnútinn og
gera þær breytingar á þessum
gamla samkomustað Sauðkrækinga
að hann tæki að sér breytt hlut-
verk, enda næg samkomuhús þar
sem unnt væri að halda dansleiki
og árshátíðir.
Var þegar hafist handa og lauk
því verki nýlega. Hússtjórn bauð til
móttöku í Bifröst, en í upphafi bauð
Ómar Bragi Stefánsson, starfsmað-
ur menningar-, íþrótta- og æsku-
lýðsnefndar, gesti velkomna en
hann hefur verið umsjónarmaður
með breytingum hússins, en síðan
tók til máls Helgi Thorarensen, for-
maður hússtjórnar, og rakti í
stórum dráttum á hvern hátt hefði
verið að framkvæmdum staðið og í
hverju breytingar hússins væru
fólgnar. Fram kom að breytingar
þær sem á húsinu hafa verið gerðar
kosta um fjórar milljónir en þær
eru að mestu bundnar við sýning-
arsalinn sjálfan og anddyri hússins.
Sagði Helgi komið hallandi gólf í
salinn og föst sæti, nýtt hljóðkerfi
og sýningarvélar hússins væru ný-
legar þannig að nú ættu bíógestir
að geta notið hinnar bestu aðstöðu í
húsinu. Þá sagði hann að samkomu-
lag hefði orðið um það að húsið urði
nú afhent fullbúið til Leikfélags
Sauðárkróks sem tæki að sér rekst-
ur þess til eins árs.
Þakkaði Helgi framkvæmdaaðil-
um, Trésmiðjunni Borg, Rafsjá og
Dodda málara mjög góða vinnu og
framkvæmd alla við breytingarnar.
Þessu næst undirrituðu Helgi og
Guðbrandur J. Guðbrandsson, for-
maður leikfélagsins, samstarfs-
samninginn.
Æfingar á Galdra-Lofti
Í ávarpsorðum Guðbrandar kom
fram að leikfélagsfólk hugsar gott
til glóðar að starfa við betri að-
stæður í Bifröst, þakkaði hann
þetta góða framtak og sagði að þeg-
ar væru hafnar æfingar á leikverk-
inu Galdra-Loftur sem frumsýnt
yrði í Sæluviku.
Nokkur ávörp voru flutt, meðal
annars Guðrún Halla frá Bandalagi
íslenskra leikfélaga sem færi
rekstraaðila blómvönd ásamt árn-
aðaróskum og Ómar Bragi kallaði
til Sigurbjörgu Sigurðardóttur, en
hún ásamt manni sínum Guðmundi
Valdimarssyni rak um áratuga
skeið Sauðárkróksbíó og þakkaði
Ómar Boggu fyrir margar ánægju-
stundir í bíóinu.
Hugurinn leitar í Skagafjörð
Að lokum ávarpaði Friðrik Þór
Friðriksson kvikmyndaleikstjóri
samkomugesti og eins og aðrir ósk-
aði hann Skagfirðingum til ham-
ingju með húsið, og sagði það vera
sér ánægjuefni að fá að sýna mynd
sína Bíódaga fyrsta við þessar nýju
aðstæður, þá ræddi hann um gildi
kvikmynda almennt fyrir íslenska
menningu og sem þá afþreyingu
sem unglingum stendur til boða.
Sagði Friðrik að þegar hann
fengi hugmynd að nýrri kvikmynd
leitaði hugurinn gjarna norður í
Skagafjörð, enda hefðu allar mynd-
ir hans verið að einhverjum hluta
teknar upp þar. Sagði Friðrik að
hann ynni nú að undirbúningi
tveggja mynda, annars vegar
myndar um Sölva Helgason, eða
Sólon Íslandus, en hins vegar væri
Einar Kárason rithöfundur þessa
dagana að fullgera handrit að
Grettissögu Ásmundarsonar, sem
væntanlega yrði hafist handa við að
tveim árum liðnum og því mættu
menn glöggt sjá að hann ætti eftir
mikið óunnið hér í Skagafirði.
Að lokum nutu gestir ánægju-
legrar sýningar á Bíódögum og
höfðu margir á orði að ekki liði á
löngu áður en þeir færu aftur í bíó.
Morgunblaðið/B.B.
Gestir þáðu veitingar í boði hússtjórnar Bifrastar er breytingum var lokið.
Bifröst breytt í leik-
og kvikmyndahús
Sauðárkrókur