Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKIÐ Corus Group, sem
framleiðir stál og ál, hyggst selja ál-
framleiðslu sína. Álframleiðslan er
mun minni hluti af starfsemi fyrir-
tækisins en stálframleiðslan, en hef-
ur, ólíkt stálframleiðslunni, verið
rekin með hagnaði.
Í frétt í Financial Times segir að
mögulegt sé að einhver af stærstu ál-
framleiðendum heims muni kaupa
Corus, en í þeim hópi eru Alcoa, Alc-
an, Norsk Hydro og Pechiney.
Álframleiðandi
til sölu
DECODE genetics, móðurfélag Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hefur
gengið formlega frá kaupum á
bandaríska lyfjaþróunarfyrirtæk-
inu MediChem Life Sciences og
fer greiðsla fram með nýjum
hlutabréfum í DeCODE. Gefnar
verða út 8,4 milljónir nýrra hluta
vegna kaupanna og eftir það verð-
ur hlutafé DeCODE um 53,6 millj-
ónir hluta.
Eftir sameiningu fyrirtækjanna
þarf að bæta við lyfjaþróunardeild
til að tengja fyrirtækin tvö saman
og fullkomna samrunann. Í
lyfjaþróunardeildinni munu starfa
um eða yfir 250 manns, en ekki
liggur fyrir hvort hún verður hér á
landi eða í Bandaríkjunum, en bú-
ist er við ákvörðun um það eftir
5–8 vikur. Önnur starfsemi í sam-
einuðu fyrirtæki verður á sama
stað og verið hefur í fyrirtækj-
unum tveimur. Um 150 starfsmenn
sem eru hjá MediChem í Chicago
verða þar áfram, og þeir 600
starfsmenn sem hér eru hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu verða hér.
Erfiðara að manna
starfsemina hér á landi
Að sögn Páls Magnússonar,
framkvæmdastjóra samskipta- og
upplýsingasviðs Íslenskrar erfða-
greiningar, spila nokkrir þættir
inn í þá ákvörðun hvar nýja deildin
verður staðsett. Verði hún hér á
landi geti orðið erfiðara að fjár-
magna hana, enda hafi Ísland ekki
sérstöðu í lyfjaþróun eins og varð-
andi erfðafræðilegar rannsóknir.
Ísland hafi aftur á móti ákveðna
galla, og sem dæmi sé hér ekki
nægilegur fjöldi af sérmenntuðu
starfsfólki á þessu sviði til að
manna slíka starfsemi.
Verði niðurstaðan sú að hafa
lyfjaþróunardeildina hér á landi
mun þurfa aukið húsnæði fyrir
starfsemina og segir Páll að Ís-
lensk erfðagreining hafi tryggt sér
rétt til að byggja sunnan við nú-
verandi höfuðstöðvar og líklegast
sé að byggt verði á þeirri lóð.
DeCODE kaupir MediChem
Óvíst hvort 250 ný
störf lenda
hér eða í Banda-
ríkjunum
Scandinavia /IATA með rúmar 33
milljónir, Flugleiðahótel og Flug-
félag Íslands eru alls með um 31
milljón, Lykilhótel eru með 31 millj-
ón, Samvinnnulífeyrissjóðurinn með
27 milljónir, Gjaldskil ehf. með 25
milljónir, Kilroy Travels Int. A/S 23
milljónir, Sparisjóðabanki Íslands
22 milljónir og Hópferðaskrifstofan
20 milljónir. Skiptastjóri hafnaði al-
mennri kröfu samgönguráðuneytis
upp á 41 milljón króna. Alls nema
framantaldar 12 kröfur 65% al-
mennra krafna.
LÝSTAR kröfur í þrotabú Sam-
vinnuferða-Landsýnar hf., sem
samþykktar hafa verið af skipta-
stjóra, nema alls um 890 milljónum
króna samkvæmt kröfuskrá þrota-
búsins. Þar af nema veðtryggðar
kröfur 35 milljónum, forgangskröf-
ur nema 45 milljónum og almennar
kröfur um 810 milljónum króna.
Lýstar kröfur námu alls 332 talsins.
Eini samþykkti veðkröfuhafinn
er Íslandsbanki en veðkrafa bank-
ans hljóðar upp á 35 milljónir
króna. Skiptastjóri hafnaði 183
milljóna króna veðrétti Landsbanka
Íslands, sem er langstærsti kröfu-
hafi í búið en deilur standa um veð-
réttindi bankans. Krafa Lands-
bankans telst því til almennra
krafna. Þá var veðkröfu Heimsferða
upp á rúmar 25 milljónir alfarið
hafnað.
Forgangskröfur, að fjárhæð 45
milljónir samkvæmt kröfuskrá, eru
fyrst og fremst launakröfur starfs-
manna. Fram kom í samtali við
skiptastjóra í Morgunblaðinu á
sunnudag að lýstar forgangskröfur
hefðu numið nær 100 milljónum og
ágreiningur væri uppi um hversu
mikill hluti þeirra fengist sam-
þykktur. Skiptafundur hefur verið
haldinn en til að jafna þann ágrein-
ing og annan verður haldinn annar
skiptafundur á föstudag.
Samþykktar almennar kröfur í
þrotabúið nema 810 milljónum
króna. Stærst er krafa Landsbanka
Íslands, rúmar 200 milljónir, og eru
þar með taldar þær 183 milljónir
sem ekki hafa fengist samþykktar
með veðrétti. Meðal annarra stórra
kröfuhafa með samþykktar almenn-
ar kröfur eru: SPRON með 44
milljónir, Atlanta með 39 milljónir,
Íslandsbanki með 33 milljónir, BSP
Hæstu kröfur í
þrotabú SL frá
Landsbanka og
Íslandsbanka
Morgunblaðið/Golli
FISKISTOFA svipti skip og báta
veiðileyfi 23 sinnum í febrúar. Var
það ýmist gert vegna afla umfram
heimildir, vegna vanskila á frumriti
úr afladagbók eða annarra brota.
Eftirtaldir bátar og skip voru
svipt veiðileyfinu vegna afla um-
fram heimildir, en öll hafa þau
fengið leyfið að nýju þar sem afla-
marksstaða þeirra var lagfærð:
Aðalvík SH 443, Bervík SH 143,
Sigurbjörg Þorsteins BA 65, Bryn-
dís SU 288, Klettsvík SH343, Far
GK 147, Jónas Guðmundsson GK
475, Sigurvin GK 61, Hafursey ÍS
600, Hafbjörg ST 77 og Siggi Breið-
fjörð KE 76.
Eftirtaldir voru sviptir leyfi
vegna vanskila á frumriti úr afla-
dagbók. Allir hafa fengið leyfið að
nýju: Hafnarröst ÁR 250, Jón á
Hofi ÁR 62, Síldin AK 88, Stormur
ÍS 800, Sjöfn NS 123, Sigurbjörg
ST 55, Gunnar GK 501, Þórunn Ósk
KE 79 og Bjarni KE 23.
Dalaröst ÞH 40 og Keilir SI 145
voru sviptir leyfi vegna rangrar til-
greiningar á hluta af afla við vigtun
á hafnarvog, en báðir hafa end-
urheimt veiðileyfið. Þá var Hansi
RE 24 svipur leyfi í hálfan mánuð
vegna brots á reglum um tilkynn-
ingar í Símakrók.
23 sviptir
veiðileyfi
LOKAGILDI Úrvalsvísitölu Verð-
bréfaþings Íslands var 1.306.78 stig í
gær og er þetta í fyrsta sinn frá því í
desember árið 2000 sem vísitalan
hefur farið yfir 1.300 stig. Vísitalan
hefur ekki verið hærri síðan 18. des-
ember 2000. Vísitalan hefur hækkað
um 12,7% frá áramótum og um
32,2% frá því hún náði lágmarki í
ágúst í fyrra.
Úrvalsvísitalan
yfir 1.300 stig
JÓN Ólafsson, stjórnarmaður í Ís-
lenskum aðalverktökum, hefur
keypt 5.150 þúsund krónur að nafn-
verði í Íslenskum aðalverktökum á
genginu 2,49. Umrædd hlutabréf eru
keypt í nafni Jóns Ólafssonar og co
og er eignarhlutur Jóns Ólafssonar
og fjárhagslega tengdra aðila í ÍAV
11,76%, eða 164.576 þúsund krónur
eftir þessi viðskipti.
Kaupþing hefur jafnframt aukið
hlut sinn í ÍAV og er nú með 6,09%,
eða 85.303 þúsund krónur að nafn-
verði.
Kaupþing og
Jón Ólafsson
kaupa í ÍAV
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦