Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 37
2
20% stgr.afsl. af mótöldum
þegar þú kaupir ADS
L tengingu.
Frítt stofngjald alla
helgina 6.225 kr.
MegADSL tilboð
Opnunartilboð
1
fylgir öllum GSM
áskriftum
frá Íslandssíma.
Frítt stofngjald all
a
helgina 2.100 kr.
10.000 króna inneign
A
D
S
L
I
N
T
E
R
N
E
T
G
S
M
H
E
I
M
A
S
Í
M
I
Verslun Kringlunni
Þökkum frábærar viðtökur um helgina.
Opnunartilboðin halda áfram í nokkra daga.
Komdu við í verslun okkar í Kringlunni og sjáðu
hvernig þú getur á einfaldan hátt bæði bætt fjarskipti
fjölskyldunnar og gert þau ódýrari.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
70
50
03
/2
00
2
Við erum á móti
Símanum...
í Kringlunni
...beint á móti
3 Síminn of dýr?
Mínútuverð heimilis
síma Íslandssíma er
5-20% lægra. Þú getur flu
tt viðskiptin
með einu símtali í 8
00-1111... og haldið
númerinu þínu.
20% stgr.afsláttur af þráð-
lausum símum fyrir
við-
skiptavini Íslandssím
a.
4
Fermingartilb
oð
15.900 kr.*
Nokia 3310
6.000 kr. inne
ign STRAX
*Síminn er læstur á kerfi Íslandssíma
ENN á ný hafa
stjórnvöld verið
dæmd fyrir að brjóta
stjórnarskrárvarinn
rétt á öryrkjum. Í
kjölfarið kjósa for-
sætisráðherra og Jón
Steinar Gunnlaugs-
son, hvor á sinn hátt,
að skeyta skapi sínu á
fjölmiðlum. Sá síðar-
nefndi, sem fyrir ári
vann það þrekvirki að
túlka fyrir þjóðinni
hvað fælist í einföld-
um og skýrum dóms-
orðum Hæstaréttar,
byrjar raunar á því að
veitast með kunnug-
legum hætti að formanni Öryrkja-
bandalags Íslands og lögmanni
þess. Höfuðglæpur þeirra er að
leyfa sér að vekja athygli á því að í
minnisblaði ríkisstjórnarinnar til
starfshóps Jóns Steinars er gefin
ákveðin forskrift að dómi hópsins
um dóm Hæstaréttar í öryrkjamál-
inu svokallaða.
Efist menn um þau augljósu
skilaboð sem í minnisblaðinu felast
er þeim í lófa lagið að bera sjón-
armiðin sem þar eru sett fram
saman við niðurstöðu nefndar Jóns
Steinars. Þegar ríkisstjórn fram-
sendir slík viðhorf sem trúnaðar-
mál til nánustu aðstoðarmanna
sinna er hreinn barnaskapur að
ímynda sér að hún ætlist ekki til
að höfð sé af þeim hliðsjón eins og
berlega kom á daginn.
Þótt formanni starfshópsins
þyki skiljanlega nokkuð vandræða-
legt að minnisblaðið skuli nú birt
opinberlega, gengur út yfir öll
skynsemismörk hvernig hann
bregst við. Í fréttum ríkissjón-
varpsins sama dag gengur hann
svo langt að halda því fram að
hann hafi aldrei litið á minnisblað-
ið á meðan hann starfaði í nefnd-
inni. Ein og sér væri þessi yfirlýs-
ing auðvitað með ólíkindum þótt
ekki lægi fyrir skriflega að starfs-
hópurinn er skipaður á grundvelli
þessa minnisblaðs, eða eins og
segir í dómi Hæstaréttar:
„Í framlögðu skipunarbréfi Jóns
Steinars Gunnlaugssonar hæsta-
réttarlögmanns kemur ljóslega
fram að starfshópurinn var skip-
aður á grundvelli minnisblaðs þess
er látið var fylgja skipunarbréf-
inu.“
Til viðbótar þessu má nefna að í
áliti sínu vitnar starfshópurinn
beint í minnisblaðið og rekur úr
því þríþætt hlutverk sitt. Síðan
eigum við að trúa því að sjálfur
formaðurinn hafi ekki einu sinni
litið á blaðið á meðan hann starfaði
í nefndinni!
Athyglisverðari er þó sú rök-
semd að minnisblaðið hafi ekki
komið frá ríkisstjórn-
inni því að efni þess
hafi upprunalega ver-
ið sett saman af að-
stoðarmönnum henn-
ar. Með sömu rökum
mætti halda því fram
að fjölmargt annað
sem frá ríkisstjórn
kemur, þ.m.t. mörg
ríkisstjórnarfrum-
vörp, sé alls ekki frá
ríkisstjórn komið
vegna þess að textinn
sé unnin af aðstoðar-
mönnum.
Í tilviki því sem hér
um ræðir kemur bein-
línis fram að ríkisstjórnin skipar
starfshópinn á grundvelli minnis-
blaðsins og er blaðið hvorki meira
né minna en hluti af erindisbréfi
hennar til starfshópsins. Stað-
reynd þessi er raunar forsenda og
grundvöllur þess að stjórnvöld
voru dæmd til að láta Öryrkja-
bandalaginu blaðið í hendur, eða
eins og segir í dómi Hæstaréttar:
„Í ljósi þess, sem að framan er
lýst, verður að líta svo á að minn-
isblaðið hafi verið gert að hluta er-
indisbréfs til starfshópsins og hafi
þannig myndað grundvöll að starfi
hans.“
Af framansögðu má ljóst vera að
það er ekki bara einhver vitleys-
isgangur í formanni og lögmanni
Öryrkjabandalagsins að blaðið hafi
komið frá ríkisstjórninni, heldur
hefur um það verið kveðinn upp
skýr og skilmerkilegur dómur í
Hæstarétti. Það er síðan alveg
sjálfstætt umhugsunarefni þegar
upplýst er að tveir af fjórum
nefndarmanna hafi átt þátt í því að
semja þetta hlutdræga erindisbréf
til sjálfra sín. Hafi nefndarmenn í
raun og veru viljað sinna sínu
verkefni af fullum heilindum hefðu
þeir að sjálfsögðu leitað eftir at-
hugasemdum Öryrkjabandalagsins
við þau sjónarmið sem sett eru
fram í minnisblaðinu og tekin
beint upp í niðurstöðu nefndarinn-
ar. Það var ekki gert heldur látið
nægja að ráðslaga við hina brot-
legu í málinu og taka við einhliða
viðhorfum þeirra til þess hvernig
framfylgja mætti dómi gegn þeim
sjálfum.
Þegar formaður starfshópsins,
sem fyrir ári réðst svo harkalega á
Hæstarétt, hefur á nýjan leik
reynt að gera lítið úr formanni Ör-
yrkjabandalagsins og lögmanni
þess, vindur hann sér galvaskur að
fjölmiðlunum með þeim orðum að
það sé „ámælisvert af fréttamönn-
um að skynja ekki það grundvall-
aratriði málsins að minnisblaðið
hafi ekki komið frá ríkisstjórn-
inni.“
Arnþór
Helgason
Dómur
Í áliti sínu, segir
Arnþór Helgason,
vitnar starfshópurinn
beint í minnisblaðið.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalags Íslands.
Hlutverk og eðli
minnisblaðsins
og þökk til hans. Látum þá von og
trú sem hann einn getur vakið
móta alla okkar tilveru. Þá fyrst
öðlast líf okkar djúpstæðan tilgang
þrátt fyrir alla tímabundna vanlíð-
an, spurningar og efasemdir. Þá
fyrst eignumst við raunverulega
virðingu fyrir lífinu, gildum þess og
fegurð.
Lífið er það dýrmætasta sem við
eigum. Og það er dýru verði keypt.
Njótum því þeirrar gjafar sem lífið
er. Sýnum lífinu virðingu. Sjálfum
okkur og honum sem gaf okkur líf-
ið og einn megnar að viðhalda því.
Tökum tillit til ólíkra samferða-
manna okkar, skoðana þeirra, kyn-
ferðis eða litarháttar. Umgöngumst
alla sköpunina, allar góðar gjafir
Guðs af virðingu og með þakklæti.
Njótum þess að vera. Njótum
þess að vera núna og um ókomna
tíma.
Lifi lífið!
Höfundur er rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju.