Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 51

Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 51 Ef nemendur vilja geta þeir gegn sérstöku gjaldi og samhliða náminu lokið stöðluðum prófum og fengið TÖK - skírteini sem atvinnulífið viðurkennir. Boðið er upp á morgun- og kvöldnámskeið sem hefjast 8. apr. Markmiðið með þessu 90 kennslustunda tölvunámi er að þjálfa nemendur í að nota tölvur og styrkja þar með stöðu þeirra í atvinnulífinu eða heima fyrir. Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500 Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937 Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is Upplýsingar og innritun: Sími 544 4500 og á www.ntv.is Grunnatriði í upplýsingatækni Windows stýrikerfið Word ritvinnsla Excel töflureiknir Access gagnagrunnur PowerPoint (gerð kynningarefnis) Internetið (vefurinn og tölvupóstur) Verklegar æfingar Efni sem tekið er fyrir: n t v .i s nt v. is n tv .i s TÖK tölvunám Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi Gjafabrjóstahöld Stuðningsbelti og nærfatnaður Þumalína Pósthússtræti og Skólavörðustíg Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Á FUNDI Stúdentaráðs Háskóla Ís- lands í síðustu viku var Brynjólfur Stefánsson kjörinn formaður ráðs- ins. Brynjólfur er 24 ára verkfræði- nemi og var kosinn í Stúdentaráð á síðasta ári. Brynjólfur hefur starfað í stjórn ráðsins í vetur, ásamt því að vinna hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Handtölvum. Þetta er í fyrsta sinn í 11 ár sem formaður Stúdentaráðs kemur úr röðum Vöku. Fráfarandi formaður SHÍ, Þorvarður Tjörvi Ólafsson, stýrði kosningu nýs formanns en að henni lokinni voru Þorvarði þökkuð góð störf í þágu ráðsins. Á næstu vikum og mánuðum mega stúdentar búast við nokkrum breyt- ingum á skrifstofu og starfsemi Stúdentaráðs. Ekki var skipað í stöðu framkvæmdastjóra, eins og síðustu ár, en þess í stað verður stað- an auglýst laus til umsóknar á allra næstu dögum, segir í fréttatilkynn- ingu. Ný stjórn Stúdentaráðs tekin við SALA á Xbox-leikjatölvunni hófst á öllum stærstu mörkuðum í Evrópu fimmtudaginn 14. mars. Xboxið er til sölu í öllum helstu tölvuversl- unum landsins. „Xbox er af nýrri kynslóð leikja- tölva, kraftmeiri og betur búin en áður hefur þekkst. Mynd- og hljóð- gæði eru eins og best verður á kos- ið, sem gerir hönnuðum tölvuleikja mögulegt að gera leikina raunveru- legri en áður. Xboxið styður Dolby Digital 5.1 hljóð og er með öflugu nVidia skjá- korti. Það er einnig með harðan disk sem gerir möguleika þess ennþá fjölbreyttari og skemmti- legri. Síðast en ekki síst er Xboxið fáanlegt með búnaði sem gerir kleift að spila DVD-myndir, sem eykur enn á notagildi þess,“ segir í fréttatilkynningu. Leikjatölvan Xboxið komin í verslanir SAMTÖK atvinnulífsins standa fyrir morgunverðarfundi undir yf- irskriftinni „Samkeppnishugsun í menntakerfið: þjónusta, nýjungar, skólagjöld“, miðvikudaginn 20. mars kl. 8.30 – 10 í Skála á Rad- isson SAS Hótel Sögu. Erindi flytja: Runólfur Ágústs- son, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Gylfi Magnússon, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ, Magnús Gunnarsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði. Fundarstjóri er Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að þátttakendur til- kynni þátttöku fyrirfram í síma eða með tölvupósti til sa@sa.is. Fundargjald er kr. 2.000, morg- unverður innifalinn, segir í frétta- tilkynningu. Samkeppnis- hugsun í menntakerfið SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópavogs og Sjálfstæðiskvenfélagið Edda bjóða eldri borgurum í Kópavogi til vorfagnaðar miðvikudaginn 20. mars kl. 20.30 í Félagsheimili Kópa- vogs. Gunnar I. Birgisson, alþingismað- ur og formaður bæjarráðs, flytur ávarp, kór eldri borgara syngur, boðið verður upp á harmonikkuspil og kaffihlaðborð. Allir eldri borg- arar í Kópavogi eru boðnir vel- komnir, segir í fréttatilkynningu. Vorfagnaður fyrir eldri borg- ara í Kópavogi SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN á höfuð- borgarsvæðinu halda opinn fræðslu- fund í dag þriðjudaginn, 19. mars kl. 20 í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6. Fundurinn er í umsjón Skógrækt- arfélags Garðabæjar. Erindi heldur Bjarni Diðrik Sig- urðsson skógvistfræðingur. Árni Elv- ar leikur léttan djass. Opið hús er liður í fræðslusamstarfi skógræktarfélaganna og Búnaðar- banka Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Boðið verður upp á kaffi, segir í fréttatilkynningu. Opið hús skógræktar- félaganna ÁRSFUNDUR Orkustofnunar verður haldinn í Gullteigi á Grand hótel miðvikudaginn 20. mars kl. 13.30. Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra orkumála, ávarpar fundinn, en aðrir frummælendur verða Þorkell Helga- son, orkumálastjóri, Freysteinn Sig- urðsson, jarðfræðingur, Steinar Þór Guðlaugsson, jarðeðlisfræðingur og Árni Snorrason, forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar. Á fundinum verður lögð fram árs- skýrsla Orkustofnunar fyrir árið 2001 og hefti með erindum sem flutt verða á fundinum, segir í fréttatil- kynningu. Ársfundur Orkustofnunar ÞINGFLOKKUR Vinstri hreyfing- arinnar græns framboðs lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöðu Hæstaréttar varðandi minnisblað sem ríkisstjórninni var gert að birta. Flokkurinn leggur áherslu á opna stjórnsýslu, enda sé hún ein meginforsenda þess að lýðræði fái þrifist, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. „Þingflokkur Vinstrihreyfingar- innar græns framboðs vekur at- hygli á því að ríkisstjórnin hefur ítrekað reynt að skjóta sér undan skyldu sinni til að upplýsa um mál- efni sem snerta stjórnsýsluna, nú síðast kröfu þingmanna um að fá vitneskju um hvernig 300 milljón króna kostnaði við einkavæðingu væri ráðstafað. Það fékkst þó upp- lýst vegna þrýstings frá fjölmiðli á grundvelli upplýsingalaga. Vinstrihreyfingin grænt framboð leggur áherslu á opna stjórnsýslu enda er hún ein meginforsenda þess að lýðræði fái þrifist. Dómur Hæstaréttar er mikilvægur og er nauðsynlegt að ríkisstjórnin dragi af honum rétta lærdóma,“ segir ennfremur. Dómi um birtingu minnisblaðs fagnað Vinstrihreyfingin – grænt framboð ÍSLENSK erfðagreining gengst fyrir tveimur útsendingum á Netinu frá ráðstefnu Banc of America um sameindalíffræðileg greiningarpróf fyrir heilsugæslu. Þar mun Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, ræða þróun DNA- greiningarprófa og áherslur Ís- lenskrar erfðagreiningar á því sviði. Ráðstefnan verður haldin mið- vikudaginn 20. mars 2002 á Pierre Hotel í New York. Kári Stefánsson mun taka þátt í pallborðsumræðum undir titlinum „Tying Drugs and Diagnostics: Is this the Forefront of Targeted Treatment“, kl. 15. Síðar um kvöldið, kl. 20 mun hann kynna starfsemi Íslenskar erfðagreiningar almennt. Báðar útsendingarnar verða sendar út á heimasíðu Íslenskrar erfðagreiningar www.decode.is/ investors/events. Einnig má hlusta á pallborðsumræðurnar á www.veracast. com/webcasts/bas/ genomics-2002/id98103154.cfm, en kynninguna á fyrirtækinu á www.veracast.com/webcasts/bas/ genomics-2002/id18109179.cfm. Þeim sem hyggjast hlusta á útsend- ingarnar er bent á að skrá sig nokkru fyrir útgefinn tíma, m.a. til að sækja hugbúnað, sé þess þörf. Upptökur af báðum atburðunum verða aðgengilegar á þessum vefsíð- um í að minnsta kosti viku. Ráðstefna send út á Netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.