Morgunblaðið - 30.08.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Oxford
Street
Wigm
ore S
treet
Grosv
enor
Squar
e
Grosv
enor S
treet
Kensington Road
Bayswater
Road
Paddington
Station
Knigh
gsbrid
ge
Ki
ng
s R
oa
d
Sloan
Street
St. Jam
es's Street
Baker
Street
G
loucester
Street
Edgware Roadt
Westmister Bridge
O
ld
Bond
Street
N
ew
Bond
Street
Victo
rya
Stree
t
River Thames
Covent
Garden
Soho
W
aterloo
Bridge
Pic
cad
illy
Pa
ll M
all
Oxford
Street
New
Oxfo
rd
Regent Street
Regent Street
H
aym
arket
C
haring
C
ross
R
oad
Picadilly
Circus
Hide Park
Green Park
Marylebone
Henry VIII
Churchill
Inter
Continental
Thistle Kensington
Palace
Mayfair
Bloomsbury
Knightsbridge
Notting Hill
Sherlock Holmes
Millennium
Mayfair
Jurys Doyle Clifton Ford
K-West
www.icelandair.is
London
www.icelandair.is/london
Eyða einum degi í Westbourne Grove
og Notting Hill, fjarri skarkala helstu
verslunargatnanna. Fara á markaðinn á
Portobello Road á laugardegi.
Í London þarftu að:
á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Henry
VIII, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Brottfarir 16. jan. og 21. feb.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
21
70
5
07
/2
00
3
Verð frá 29.900 kr.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
KRISTJÓN Þorkelsson pípulagn-
ingameistari kom frá Írak í síðustu
viku, en hann starfaði þar á vegum
Rauða krossins.
Hann segir að
ástandið í land-
inu sé slæmt.
Þar ríki hálfgerð
óöld því enginn
sjái um öryggið
og öll yfirstjórn
sé í molum.
„Þetta var eins
og hvert annað
verkefni í upp-
hafi. Ég varð
ekkert var við neina óvild heima-
manna eða neitt slíkt. Ég var stað-
settur í Bagdad en vann víða við
það að meta og greina verkefni
varðandi sjúkrahús. Ég fór þrjá til
fjóra daga í viku í borgir og þorp
og skoðaði bæði sjúkrahús og
heilsugæslustöðvar,“ segir hann.
Rauði krossinn hefur dregið úr
starfsemi í Írak í kjölfar árása á
erlenda starfsmenn samtakanna
22. júlí sl. en þeir voru í bifreið á
leið til Bagdad. Önnur bifreið tók
fram úr og skaut á bifreiðina. Einn
starfsmaður lést og annar særðist.
Kristjón kom þar að um tíu til
fimmtán mínútum eftir að atburð-
urinn átti sér stað. „Þetta er ekki
það sem maður vill lenda í, en mað-
ur verður að taka því og sinna þeim
sem eru hjálparþurfi.“
Kristjón bendir á að Írakar séu
óþolinmóðir og finnist uppbygging-
in hafa gengið hægt. Þeir telji að
Bandaríkjamenn hafi að sumu leyti
staðið í vegi fyrir uppbyggingu.
Hann segir að ekki þurfi annað en
að líta á tölur fallinna hermanna
frá því stríði lauk til að sjá það.
Bandaríkjamenn hafi misst um sjö-
tíu menn en Bretar innan við tíu.
Tvisvar áður starfað í Írak
Kristjón hefur tvisvar áður
starfað í Írak á vegum Rauða
krossins, árin 1991 og 1992. Hann
segir að ástandið þá hafi verið
gjörólíkt því sem nú er, því þá hafi
herinn verið við völd og engin óöld
ríkt. Hann telur að framhaldið fari
svolítið eftir því hvaða stefnu
Bandaríkjamenn taki á næstu vik-
um. Ef þeir haldi áfram þessum
einhliða framkvæmdum, eins og
verið hafa undanfarið, verði mjög
erfitt um vik í landinu á næstu
mánuðum.
„Það eru allar líkur á því að
þessi óöld haldi áfram á meðan
þetta er gert í nafni Bandaríkj-
anna. Maður verður líka að gera
sér grein fyrir því að flestir þessir
bandarísku hermenn, sem eru
þarna, eru á aldrinum 18–20 ára
frá mið- og suðurríkjum Banda-
ríkjanna. Þeir þekkja ekkert nema
þorpin sem þeir eru frá. Þeir
þekkja ekki einu sinni arabíska
menningu og vita ekki að þeir eru á
einu elsta menningarsvæði í heim-
inum,“ leggur hann áherslu á.
Hann segir að þetta móti fram-
komu þeirra í garð Íraka. Írakar
séu yfirhöfuð mjög kurteist fólk og
beri til að mynda mikla virðingu
fyrir aldri.
Kristjón Þorkelsson nýkominn frá Írak eftir störf á vegum Rauða krossins
Varð ekki var
við óvild
heimamanna
Ljósmynd/Kristjón Þorkelsson
Eins og sjá má eru bifreiðar alþjóða Rauða krossins merktar í bak og fyrir.
Skotið var á samskonar bifreið 22. júlí sl.
Kristjón
Þorkelsson
ALÞJÓÐA Rauði krossinn hefur undanfarið
dregið úr starfsemi sinni í Írak af ótta við árás-
ir. Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Rauða
krossins, segir að allir fjórir Íslendingarnir, sem
voru að störfum í Írak, séu komnir heim. Guð-
björg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Eva
Laufey Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur, Þor-
kell Þorkelsson ljósmyndari og Kristján Þor-
kelsson pípulagningameistari unnu að uppbygg-
ingarstarfi í Írak.
„Það eru um fimmtíu alþjóðlegir starfsmenn í
Írak núna. Sumir hafa það verkefni að vinna
með íraska Rauða hálfmánanum. Rauði krossinn
er í þeirri stöðu að á staðnum er öflugt Rauða
hálfmánafélag og þetta er sama hreyfingin,“
segir Þórir. Hann bendir á að yfirleitt vinni
staðarmenn langmestu vinnuna og starf er-
lendra starfsmanna felist í að styðja það starf.
Undantekningin sé í raun fangaheimsóknir sem
alþjóða Rauði krossinn sinni. Hann leggur
áherslu á að þörfin á alþjóðlegu hjálparliði sé
mjög mikil, en það sé hægt að halda úti heil-
miklu starfi án þeirrar sérþekkingar sem al-
þjóðlegu starfsmennirnir koma með.
„Við höfum fengið fréttir af því að það sé í
undirbúningi að ráðast á alþjóða Rauða krossinn
í Írak, en við vitum ekki hver eða hvers vegna.
Þess vegna hefur verið dregið úr fjölda erlendra
starfsmanna á staðnum og gripið til ýmissa ör-
yggisráðstafana, sem ekki er hægt að fara út í.“
Þórir segir að í Írak sé mest áhersla nú lögð
á undirbúning uppbyggingarstarfs, auk þess
sem alþjóðlegu starfsmennirnir sinni mikil-
vægum Rauða kross verkefnum, eins og heim-
sóknum til fanga, skilaboðaþjónustu og leit-
arþjónustu.
Allir Íslendingarnir komnir heim
ELSTI núlifandi Íslendingurinn, Málfríður Jónsdóttir, varð
107 ára í gær en haldið var upp á afmælið á Landakoti.
Að sögn Maríu Halldórsdóttur, dóttur Málfríðar, heyrir
hún orðið mjög lítið og á lítil samskipti við aðra en er
heilsuhraust að öðru leyti. María segir að langlífi sé ætt-
gengt í móðurættinni enda hafi móðir Málfríðar, Þórunn
Bjarnadóttir, orðið 101 árs. Málfríður fæddist 29. ágúst
1896 á Fögrueyri við Fáskrúðsfjörð en flutti til Reykjavík-
ur ásamt foreldrum sínum árið 1903 og hefur búið þar síð-
an en dvaldi þó í Danmörku á árunum 1920–23. Málfríður
eignaðist Maríu með Halldóri Kiljan Laxness en þau kynnt-
ust sumarið 1922 á Borgundarhólmi. Málfríður giftist hins
vegar aldrei og eignaðist ekki fleiri börn. Á myndinni má
sjá fimm ættliði saman komna. Yngst er Rebekka Ýr Guð-
björnsdóttir, 4 ára, fyrir ofan hana stendur Þórunn Kristín
Guðmundsdóttir, 34 ára, við hlið hennar stendur Ragna
María Ragnarsdóttir, 55 ára, og svo sitja hlið við hlið
mæðgurnar Málfríður, nýorðin 107 ára, og María, áttræð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Elsti Íslendingurinn 107 ára
KJARTAN Jakob Hauksson, sem nú
rær kringum landið til styrktar Sjálfs-
björg, er kominn til Vestfjarða. Í gær-
kvöldi var hann við Dýrafjörð og
stefnir að því að taka land í Bolung-
arvík í dag, laugardag, þar sem hann
mun dvelja næturlangt áður en stefn-
an er tekin fyrir Horn.
Í dagbókarfærslu á fimmtudag seg-
ir að hann hafi í fyrrinótt fengið góð-
an svefn og sofið í fimm klukkustund-
ir. Róður hefur verið nokkuð þungur
undanfarna daga og veður- og sjólag
verið erfitt. Spáin í dag er fremur góð
en gert er ráð fyrir hægri vestlægri
átt og tíu til fimmtán gráða hita.
Ræðarinn
nálgast
Bolungarvík
Á FUNDI utanríkisráðherra Norður-
landa í gær í Ríga, höfuðborg Lett-
lands, var meðal annars rætt um þró-
un og stækkun Evrópusambandsins
og framtíðarsamstarf á Evrópska
efnahagssvæðinu. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra lagði áherslu á
hversu mikilvægt væri að gengið yrði
frá stækkun Evrópska efnahags-
svæðisins samtímis gildistöku samn-
ingsins um stækkun Evrópusam-
bandsins. Ráðherrarnir ræddu
einnig við starfsbræður frá Eystra-
saltsríkjunum um öryggismál.
Rætt um
stækkun
EES