Morgunblaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2003 25
Hilmir Snær og Stefán Karl fara á kostum!
Vinsælasta leiksýning síðustu ára!
Síðustu forvöð að sjá þessa makalausu sýningu!
FYRSTA frumsýning haustsins í
Borgarleikhúsinu verður 14. sept-
ember á barnaleikritinu Línu
Langsokk eftir Astrid Lindgren. Á
kynningarfundi í Borgarleikhúsinu
í gær kom fram að tvær sýningar
frá fyrra leikári verða teknar upp
að nýju á stóra sviðinu strax í
næstu viku, Púntila og Matti og
Öfugu megin uppí.
Guðjón Pedersen leikhússtjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið að
sígild verk, bæði gömul og ný, yrðu
uppistaðan í frumsýningum Leik-
félagsins í vetur, og Lína Lang-
sokkur uppfyllti sannarlega skil-
yrðin um góða klassík fyrir börnin.
Í titilhlutverkinu er nýútskrifuð
leikkona, Ilmur Kristjánsdóttir, og
María Reyndal leikstýrir. Athygli
vekur að hljómsveitin Geirfuglarnir
mun sjá um tónlistina í sýningunni.
Söngleikurinn Chicago verður
frumsýndur á stóra sviðinu í janúar
í leikstjórn Þórhildar Þorleifs-
dóttur. „Þetta er sígildur söng-
leikur um efni sem leitar á okkur
nú sem aldrei fyrr. Þörfin til að
komast í sviðsljós fjölmiðlanna með
öllum tiltækum ráðum,“ segir Guð-
jón. Ekki hefur enn verið ráðið í
hlutverk en Sigurjón Jóhannsson
gerir leikmynd og Jochen Ulrich
semur dansa.
Guðjón Pedersen ætlar svo sjálf-
ur að leikstýra leikgerð Mikhaels
Bulgakovs á hinu sígilda spænska
verki Don Kíkóta eftir Cervantes.
Aðalhlutverk verða í höndum Ingv-
ars E. Sigurðssonar og Eggerts
Þorleifssonar.
Stefán Jónsson tekur
við nýja sviðinu
„Við höfum mótað þá stefnu að
sýningar á stóra sviðinu eigi að
höfða til sem flestra og þau þrjú
verk sem við frumsýnum í vetur
eiga að standa vel undir þeim
væntingum. Við leyfum okkur að
fara aðrar leiðir í nálgun okkar að
leiklistinni á nýja sviðinu og gera
þar meiri tilraunir með form og
efni. Það höfðar líka til ákveðins
hóps leikhúsunnenda sem okkur er
ánægja að koma til móts við.
Á nýja sviðinu tekur nýr umsjón-
armaður við taumunum af Benedikt
Erlingssyni sem verið hefur leið-
togi leikhóps nýja sviðsins und-
anfarin tvö ár. Stefán Jónsson tek-
ur við hlutverki hans og leik-
hópurinn verður einnig stokkaður
upp að nokkru leyti. Fyrsta frum-
sýning þeirra verður í lok desem-
ber á Sporvagninum Girnd eftir
Tennessee Williams. Síðar í vetur
verða frumsýndir þrír einþáttungar
eftir þá Braga Ólafsson, Jón Atla
Jónasson og Þorvald Þorsteinsson.
Frá fyrra leikári verða tvö verkefni
tekin upp á Nýja sviðinu, Sum-
arævintýri og Maðurinn sem hélt
að konan hans væri hattur.
„Við munum einnig taka upp
sýningar á Píkusögum en í
tengslum við þá sýningu hefur ver-
ið útbúið kennsluefni fyrir grunn-
og framhaldsskóla sem var af-
skaplega vel tekið í fyrravetur og
við höldum því ótrauð áfram á
þeirri braut,“ segir Guðjón.
Samstarfsverkefni með
alþjóðlegu yfirbragði
Samstarfsverkefni skipa stóran
sess á verkefnaskrá Borgarleik-
hússins og bendir Guðjón sér-
staklega á að sá þáttur starfsem-
innar hefjist í raun með
nútímadanshátíð fyrstu tvær helg-
arnar í september með þátttöku
allra fremstu dansara og danshöf-
unda landsins. Hátíðin fer fram á
stóra sviðinu en að öðru leyti eru
samstarfsverkefnin bundin við litla
svið leikhússins. „Þetta er þó ekki
eingöngu samstarf um leiksýningar
þar sem 15.15-tónleikaröðin á nýja
sviðinu er hluti af því og þar er
geysilega spennandi röð tónleika
framundan í vetur.
Samstarfsverkefni við aðra leik-
hópa eru af ýmsum toga og með al-
þjóðlegra yfirbragði en oft áður.
Þrjár Maríur er titill einleiks eftir
Sigurbjörgu Þrastardóttur í svið-
setningu Strengjaleikhússins. Leik-
ari er Nanna Kristín Magnúsdóttir
og leikstjóri Catriona Macpie frá
Skotlandi.
Dansleikhús með ekka frumsýnir
nýja leikgerð frönsku sögunnar
Hættuleg kynni í leikstjórn Aino
Freyju Järvelä.
Common Nonsense er heiti á al-
þjóðlegu leikhúsverkefni þar sem
íslenski leikhópurinn Hluta-félag í
samstarfi við BAC í London og
Teater Pero í Stokkhólmi taka
saman höndum.
Annað alþjóðlegt verkefni nefnist
In Transit og er unnið með þátt-
töku íslensks, ensks og skandinav-
ísks leikhúsfólks. Loks verður
brúðuleikhúsið 10 fingur með sýn-
ingu á verkinu Rauðu skórnir sem
byggt er á sögu H.C. Andersen.
Ingvar E. Sigurðsson, Helga Arn-
alds og Hallveig Thorlacius leika
og Benedikt Erlingsson leikstýrir.
Þá verða nokkrar aukasýningar í
september á Rómeó og Júlíu sem
fer síðan til London þar sem leik-
hópnum hefur verið boðið að sýna í
Young Vic-leikhúsinu í október og
fram í nóvember. „Kvetch verður
einnig á dagskrá fram eftir haust-
inu enda sáu færri en vildu þá sýn-
ingu í vor.“
Meira en leikhús
Loks bendir Guðjón á aðra starf-
semi á vegum leikhússins sem gef-
ist hefur vel og dregið að sér
margt áhugasamt fólk. „Þessi hluti
starfsins gengur undir nafninu
Meira en leikhús og má nefna
dansleikhússamkeppni Leikfélags
Reykjavíkur og Íslenska dans-
flokksins sem haldin var í fyrsta
sinn í fyrravor og gafst svo vel að
við ætlum að endurtaka þann leik.
Þá er mikið fræðslustarf unnið á
vegum leikhússins og skólum og
hópum boðið að koma í leikhúsið og
kynna sér starfsemina eða hlýða á
kynningarfyrirlestur um einstök
verkefni klukkutíma fyrir sýningu.
Við ætlum að efna til samstarfs við
Bandalag íslenskra leikfélaga laug-
ardaginn 25. október um ör-
leikritahátíð. Við munum einnig
verða með samstarf við Borg-
arbókasafnið í Kringlunni um
kynningar á jólabókunum í desem-
ber og reglulegir málfundir um
leikhús, siðfræði og samfélagsmál
verða haldnir í leikhúsinu í vetur.
Námskeið um leikhús og leiksýn-
ingar verða haldin í samstarfi við
Mími – símenntun og taka leikarar
hússins m.a. þátt í þeim nám-
skeiðum.“
Guðjón segir að þrátt fyrir erf-
iðleika í rekstri Borgarleikhússins
og umtal í þá átt hafi stjórn leik-
hússins tekist að rétta stefnuna og
reka leikhúsið hallalaust fyrstu sjö
mánuði ársins. „Þetta tókst með
því að grípa til mjög róttækra að-
gerða í rekstri hússins. Fjárhags-
legt bolmagn okkar leyfir ekki
meira en fimm frumsýningar á veg-
um Leikfélags Reykjavíkur í vetur.
Það er tveimur færra en und-
anfarin ár. Vissulega vildum við
geta haldið úti öflugri starfsemi á
vegum félagsins en við teljum að
okkur hafi engu að síður tekist að
setja saman fjölbreytta, skemmti-
lega og fræðandi dagskrá í leikhús-
inu í vetur þar sem flestir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
enda höfum við á að skipa færu
listafólki á öllum sviðum leikhúss-
ins.“
Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn kynna vetrarstarfið í Borgarleikhúsinu
Fjölbreytt dagskrá
á þremur sviðum
Morgunblaðið/Arnaldur
Guðjón Pedersen leikhússtjóri kynnir dagskrá Leikfélags Reykjavíkur.
FYRSTA frumsýning Íslenska dans-
flokksins í Borgarleikhúsinu verður
9. október. Katrín Hall, listrænn
stjórnandi flokksins, segir að fram-
undan séu miklar annir á starfs-
árinu; tvær stórar frumsýningar,
þátttaka í danshátíð og dansleik-
hússamkeppni og fleira.
„Við erum komin af stað með æf-
ingar á fyrsta verkefninu sem er
frumsýning á þremur nýjum verk-
um, Symbiosis eftir Itzik Gallili,
Party eftir Guðmund Helgason sem
fékk áhorfendaverðlaunin á Dans-
leikhúskeppninni sl. vor, og rúsínan
í pylsuendanum er verkið The Match
eftir Lonneke van Leth þar sem hún
teflir saman fótbolta og dansi, og
leikur sér með alla þætti þessara
ólíku greina. Tónlistin er frumsamin
af hljómsveitinni Skárrenekkert.
Mjög skemmtilegt verk,“ segir Katr-
ín. Þetta er samstarfsverkefni Dans-
flokksins og Holland Dance Festival.
Dansflokkurinn heldur síðan til
Den Haag í Hollandi þar sem hann
tekur þátt í alþjóðlegu Danshátíð-
inni 24. og 25. október. „ Þar sýnum
við Stingray eftir Katrínu Hall og
Elsu eftir Láru Stefánsdóttur og svo
einnig samstarfsverkefnið The
Match.
Síðan hefjum við æfingar á Pract-
ice Paradise, verki eftir Stijn Celis
ungan belgískan danshöfund og það
verður hluti af sýningu sem við
frumsýnum 27. febrúar. Þetta er létt
og skemmtilegt verk við tónlist eftir
Chopin. Annað verk í þeirri sýningu
verður nýtt dansverk eftir Láru
Stefánsdóttur við tónlist Hjálmars
H. Ragnarssonar sem hann samdi
upphaflega við leiksýningu Þjóðleik-
hússins á Cyrano.“
Sýna á opnun Listahátíðar
Í vor sýnir svo dansflokkurinn
nýtt verk eftir Katrínu Hall sem
frumflutt verður á opnunarhátíð
Listahátíðar. „Við verðum einnig í
samstarfi um ýmis verkefni við Leik-
félag Reykjavíkur í vetur, dansleik-
hússamkeppni verður haldin í annað
sinn nú í vor og dansarar úr flokkn-
um taka þátt í sýningunni á söng-
leiknum Chicago og einnig verða 8
nemendur Listdansskóla Íslands á
námssamningi hjá okkur í vetur og
taka þátt í sýningunni á Línu Lang-
sokki. Þetta er nýjung hjá okkur og
gefur elstu nemendum skólans tæki-
færi til að spreyta sig með atvinnu-
mönnum í lok náms síns.“
Í vetur verða 8 fastráðnir dans-
arar við flokkinn og einn verk-
efnaráðinn og Katrín segir að verk-
efni vetrarins hæfi starfsgetu
hópsins ágætlega. „Við komumst
varla yfir meira en erum samt að
skoða boð um að fara með gestasýn-
ingu til Ludwigshaven í Þýskalandi í
mars ef við höfum tök á.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Jóhanna Vigdís Arnardóttir syngur lag úr söngleiknum Chicago, sam-
starfsverkefni Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins.
Dansað í allan vetur