Morgunblaðið - 30.08.2003, Síða 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EFTIR ríflega fimmtán plötur virðist
bandaríska sveitin Yo La Tengo síður
en svo af baki dottin. Hér er um að
ræða hina „algeru“ neðanjarðarsveit,
sem alltaf hefur
gefið út á óháð-
um merkjum og
er dáð af nægi-
lega mörgum
(eða fáum) svo
það sé hægt að
halda þessu
gangandi. Yo La
Tengo er í dag skipuð hjónunum Ira
Kaplan og Georgia Hubley, sem hafa
verið í henni frá upphafi og bassaleik-
aranum James McNew. Í tónlistarleit
sinni hafa Tengo-liðar farið inn á ýmis
svið og nærtækasta dæmið um þá til-
raunastarfsemi er síðasta breiðskífa,
afburðagripurinn Summer Sun, þar
sem sumarpoppi Beach Boys m.a. er
vottuð virðing.
Ég hitti Ira eftir hljómleika sveit-
arinnar á síðasta degi hátíðarinnar og
hann samþykkti góðfúslega að veita
stutt spjall.
„Ég þoli ekki svona baksviðspassa
og allt þetta stúss í kringum svona há-
tíðir,“ segir hinn mjög svo viðkunn-
anlegi Kaplan brosandi og undirstrik-
ar með því „hippíska“ áru hópsins.
Jæja, hvað segirðu gott? Hvernig
er að vera í Yo La Tengo í dag?
„Ja…bara gaman…(verður hugsi)
…ef það væri það ekki þá held ég að
við myndum einfaldlega hætta þessu.
Rokksveitir eru samt eins og hnefa-
leikamenn. Þær vita aldrei hvenær
þær eiga að hætta! Ætli við séum
nokkuð undantekning frá því. Ég
vona þó innilega að við hættum áður
en við verðum leiðinleg.“
Svo virðist sem Yo La Tengo hafi
ríka þörf fyrir að endurskapa sig…
„Já…en við höfum aldrei reynt
það. Ég meina…fólk breytist og því
ættu hljómsveitir ekki að gera það
líka? Ef þetta gerist eðlilega þá er það
í lagi. Ég held að það sé verra ef það
er gert á markmiðsbundinn hátt.“
Að spara aurinn
Hvernig hljómsveit er Yo La
Tengo?
„Ætli það sé ekki hægt að kalla
þetta einhvers konar „költ“-band. Við
höfum t.d. aldrei reynt að fara yfir á
stóra útgáfu. Ekki að ég hafi eitthvað
á móti því, ég held bara að það sé
skynsamlegra fyrir okkur að halda
okkur við lítið merki. En þetta er
samt skrýtið. Captain Beefheart var á
Warner Brothers á sínum tíma og
slíkt virðist bara ekki gerast lengur.“
Af hverju fæstu við tónlist? Gerðist
það fyrir slysni eða var þetta eitthvað
sem þú stefndir á frá upphafi?
„Ja…ég myndi segja að þetta hafi
orðið að veruleika fyrir slysni því við
höfum aldrei reynt að ná vinsældum.
Við höfum bara unnið hörðum hönd-
um að okkar hlutum. Annars verð ég
að segja að viðtöl og slíkt eru ekki mín
sterka hlið. En ef það hjálpar til við
plötusölu og stuðlar að því að við get-
um lifað af listinni þá geri ég það með
glöðu geði. En það sem okkur finnst
skemmtilegast að gera er að leika á
tónleikum og búa til plötur. Ég er
stoltur af því að við höfum þó náð
þetta langt og við förum ýmsar leiðir
að því markmiði. Við sjáum til dæmis
sjálf um umboðsmennskuna og það
sparar alltaf einhvern aur!“
Að lokum. Hvað er svo framundan?
„Ég hreinlega veit það ekki. Túra
nýju plötuna eitthvað frekar og svo
sjáum við til.“
Yo La Tengo
Morgunblaðið/Móheiður Geirlaugsdóttir
Hróarskelduviðtalið: 4. hluti
Í þetta sinnið ræðir
Arnar Eggert Thor-
oddsen við Ira Kaplan,
leiðtoga nýbylgjusveit-
arinnar Yo La Tengo.
Ira Kaplan. Hver stakk honum ofan í þennan forláta blómapott?
-www.roskilde-festival.dk
-www.yolatengo.com
arnart@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Skítamórall eða
Skímó kom úr stuttu fríi fyrr á
þessu ári eftir að vera búin að
hlaða rafhlöðurnar. Í vor fór sveitin í
stuttan túr en svo hefur hún verið
að leika í ágústmánuði og munu
halda því ótrauð áfram í sept-
ember. Í kvöld leikur sveitin í
Sjallanum, Akureyri. Gítarleikari
sveitarinnar, Arngrímur Fannar
Haraldsson eða Addi Fannar, svar-
ar hér áleitnum en um leið grall-
aralegum spurningum um sjálfan
sig.
Hvað ertu með í vösunum?
Símann, penna og minnisblokk af
því ég er svo gleyminn.
Uppvaskið eða skræla kartöflur?
Uppvask.
Hefurðu tárast í bíói?
Já því miður!
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Europe í Laugardalshöll 1986 með
pabba og Einari bróður.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Nicolas Cage.
Hver er þinn helsti veik-
leiki? Minnið, það á það til
að bregðast mér!
Finndu fimm orð sem lýsa
persónuleika þínum vel.
Geðgóður, ástríkur og
öruggur en er stundum svo-
lítið utan við mig!
Bítlarnir eða Stones?
Stones, ekki spurn-
ing.
Hver var síð-
asta bók
sem þú
last tvisv-
ar?
Principl-
es Of
Marketing eftir Cottler.
Hvaða lag kveikir blossann?
Turn Your Lights Down Low eftir
Bob Marley.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Keypti síðast DVD-safnið með Led
Zeppelin.
Hvert er þitt mesta
prakkarastrik?
Þau eru nú nokkur og
fæst prenthæf!
Hver er furðuleg-
asti matur sem þú
hefur borðað?
Namíbískur bauna-
grautur eldaður af
innfæddum!
Geðgóður og gleyminn
SOS
SPURT & SVARAÐ
Addi Fannar
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
IÐNÓ
fim, 4. sept kl. 21,
opnunarsýning, örfá sæti,
sun 21. sept kl. 21,
lau 27. sept kl. 21.
Félagsheimilið Hnífsdal,Ísafirði
lau 13. sept kl. 21.
Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700
og sellofon@mmedia.is
Gríman 2003
"..Besta leiksýning," að mati áhorfenda
Stóra svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
forsala aðgöngumiða er hafin
Forsýning lau 13/9 kl 14 - UPPSELT
FRUMSÝNING su 14/9 kl 14
Lau 20/9 kl 14,Su 21/9 kl 14. Lau 27/9 kl 14
Su 28/9 kl 14, Lau 4/10 kl 14, Su 5/10 kl 14
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 13/9 kl 20, Lau 20/9 kl 20
KVETCH e. Steven Berkoff
Mi 3/9 kl 20 UPPSELT, Fi 4/9 kl 20, - UPPSELT
Fö 5/9 kl 20 - UPPSELT
Mi 10/9 kl 20,Fi 11/9 kl 20,Fö 12/9 kl 20
Aðeins þessar aukasýningar
Nýja sviðið
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ - Sex danshöfundar
frumflytja sex sólódansa
Lau 6/9 kl 20
Su 7/9 kl 20
Lau 13/9 kl 20
Su 14/9 kl 20
SUMARÓPERAN - POPPEA
Í kvöld kl 20
Su 31/8 kl 20 - Síðustu sýningar
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT og ÍD
Í kvöld kl 20,
Su 31/8 kl 20
Lau 6/9 kl 20,
Su 7/9 kl 20
Litla sviðið
Endurnýjun áskriftarkorta er hafin.
Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. kr. 9.900
VERTU MEÐ Í VETUR
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Dúndrandi harmonikuball frá kl. 22:00 í kvöld
í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima.
Söngvarar: Ragnheiður Hauksdóttir og Corina Cubid.
Fjölbreytt danslög. Margar hljómsveitir.
Dansleikur fyrir alla.
Aðgangseyrir kr. 1.200.
HARMONIKUBALL
Harmonikufélag Reykjavíkur.
Borgfirsk helgi með
Stuðbandalaginu í kvöld
ATH! Tónleikar með Halla Reynis 4. september
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 UPPSELT
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 UPPSELT
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT
30. SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 UPPSELT
AUKASÝNING LAUGARDAGINN 6/9 - KL. 15 LAUS SÆTI
31. og 32 SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 UPPSELT
33. SÝNING FÖSTUDAGINN 12/9 - KL. 20 LAUS SÆTI
34. SÝNING SUNNUDAGINN 14/9 - KL. 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!