Morgunblaðið - 30.08.2003, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI – leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
HINN nafnkunni Brodsky-kvartett frá
Bretlandi mun halda tvenna tónleika á
Listahátíð í Reykjavík í vor. Á öðrum tón-
leikunum mun kvartettinn flytja tónlistina
úr teiknimyndinni Önnu og skapsveiflunum,
þar sem Björk ljær sögupersónunni rödd
sína. „Brodsky flytur þetta verk 29. maí
eins og það var upphaflega samansett, með
Sjón, höfundi sögunnar, og reyndar ætlum
við að fá krakka í skólum í borginni til að
myndskreyta söguna fyrir tónleikana og
nota sem „bakgrunn“ á sviðinu,“ segir
Þórunn Sigurðardóttir, stjórnandi Listahá-
tíðar.
Á þessum tónleikum, sem verða á stóra
sviði Borgarleikhússins, kemur líka fram
með kvartettinum Skólakór Kársness undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur og Snorri
Sigfús Birgisson er að semja verk fyrir
Brodsky sem verður frumflutt þarna.
Svo verður Brodsky með aðra tónleika í
klassískari kantinum, verk eftir Beethoven,
Bartók, Shostakovítsj og jafnvel Britten, að
sögn Þórunnar. „Líklega miðnæturtónleikar
með smáljósasprelli.“
Nott boðið til landsins
Af þessu tilefni verður Julian Nott, sem
semur tónlistina í Önnu og skapsveiflunum,
boðið til landsins og mun hann koma fram á
stórri ráðstefnu sem Listahátíð heldur
ásamt Kvikmyndamiðstöð Íslands um ís-
lenska kvikmyndatónlist frá upphafi. „Þar
mun KaSa-hópurinn spila heilmikið af stór-
merkilegri gamalli íslenskri kvikyndatónlist,
m.a. úr fyrstu myndum Lofts Guðmunds-
sonar og eftir hann,“ segir Þórunn.
Brodsky-kvartettinn hefur ekki komið til
Íslands í annan tíma en hefur spilað talsvert
með Björk, meðal annars þegar hún fékk
tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
Brodsky-
kvartettinn
á Listahátíð
ÖLLU starfsfólki Hótels Selfoss og skrifstofu
Kaupfélags Árnesinga, KÁ, hefur verið sagt
upp störfum. Uppsagnirnar miðast við mán-
aðamótin og ná til þrjátíu starfsmanna hótels-
ins og átta starfsmanna á skrifstofu kaup-
félagsins. Í flestum tilvikum hafa starfs-
mennirnir þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Þar sem um fjöldauppsagnir er að ræða voru
þær tilkynntar til Vinnumálastofnunar í gær.
KÁ er sem kunnugt er í greiðslustöðvun
vegna mikilla rekstrarerfiðleika, sem aðallega
hafa komið til vegna endurbóta og stækkunar á
Hóteli Selfossi. Greiðslustöðvunin var fyrir
tæpum mánuði framlengd til loka október
næstkomandi. Skuldir KÁ umfram eignir
nema um 320 milljónum króna og hafa viðræð-
ur staðið yfir við helstu lánardrottna um gerð
nauðasamninga.
Guðmundur Búason, framkvæmdastjóri KÁ,
segir að uppsagnirnar séu einkum til komnar
vegna greiðslustöðvunarinnar og fyrirsjáan-
legra breytinga á starfsemi félagsins. Kaupfé-
lagið hafi þurft að ganga gegnum erfiða endur-
skipulagningu og selt nokkrar eignir. Eins og
fram hefur komið í Morgunblaðinu keypti Fóð-
urblandan búrekstrarsvið KÁ fyrr í þessum
mánuði og hinn 1. október mun Olíufélagið ehf.,
ESSO, taka við rekstri fimm söluskála á Suður-
landi sem KÁ hefur verið með í rekstri.
Hótelin seld á Flúðum, Kirkju-
bæjarklaustri og í Vík í Mýrdal
Í tilkynningu stjórnar KÁ frá því í gær kem-
ur fram að undirritaðir hafi verið samningar
um sölu á rekstri Hótels Kirkjubæjarklausturs
til Eignarhaldsfélagsins Bæjar hf. annars veg-
ar og hins vegar á rekstri Hótels Flúða til
Eignarhaldsfélagsins Hótels Flúða hf. Eru
þessi félög að mestu í eigu heimamanna á hvor-
um stað og taka við rekstrinum nú um mán-
aðamótin. Þá er stefnt að því að Eignarhalds-
félagið Móklettur hf. taki yfir rekstur
Edduhótelsins í Vík í Mýrdal í lok september.
Nýir aðilar kaupa allar eignir hótelanna, dag-
legan rekstur og yfirtaka samninga við starfs-
menn, sem alls eru um fjörutíu á þessum stöð-
um.
Guðmundur Búason segir að ekki hafi enn
tekist að finna nýjan rekstraraðila að Hóteli
Selfossi og því hafi verið ákveðið að grípa til
uppsagna á hótelinu um mánaðamótin. Áfram
verði unnið að því að tryggja rekstur hótelsins.
„Það hefur legið fyrir að þegar búið yrði að
losna við rekstrareiningar kaupfélagsins yrði
starfsfólki á skrifstofunni sagt upp. Því miður
þarf að grípa til þessara aðgerða,“ segir Guð-
mundur sem var meðal þeirra sem fengu upp-
sagnarbréf í hendur frá stjórn KÁ í gær.
Í tilkynningu stjórnar KÁ segir að við upp-
haf greiðslustöðvunarinnar hafi 185 manns
verið starfandi hjá kaupfélaginu. Með þeim að-
gerðum sem gripið hefur verið til hafi tekist að
„verja“ um 145 störf.
KÁ segir upp 38 manns á
skrifstofu og Hóteli Selfossi
25 ÁRA karlmaður var hand-
tekinn með þýfi eftir gripdeild í
útibúi Íslandsbanka við Eiðis-
torg í gær. Að sögn lög-
reglunnar telst hér ekki um
bankarán að ræða þar sem
maðurinn beitti ekki hótunum
við starfsmenn. Þá var hann
óvopnaður og huldi ekki andlit
sitt er hann gekk inn í af-
greiðslusalinn og hrifsaði pen-
inga úr gjaldkeraskúffu. Ekki
er gefið upp hversu mikið hann
tók.
Að lokinni gripdeildinni hvarf
hann fótgangandi á brott en
starfsmaður bankans fylgdi
honum eftir og var í beinu
símasambandi við lögregluna á
meðan. Að sögn sjónarvottar
sem Morgunblaðið ræddi við
komu lögreglumenn á bifhjólum
örskömmu síðar og handtóku
manninn á strætisvagnabiðstöð
skammt frá bankanum. Náðist
þýfið þar og var komið til skila.
Útibúinu var lokað í kjölfar at-
burðarins.
Maðurinn hefur komið við
sögu lögreglunnar áður en hún
gefur ekki upp fyrir hvaða sak-
ir. Ekki hafði verið tekin
ákvörðun um það í gærkvöldi
hvort krafist yrði gæslu-
varðhalds yfir manninum. Málið
sætir rannsókn lögreglunnar í
Reykjavík.
Þetta er í fjórða skiptið á
þessu ári sem fjármunum er
stolið úr banka en í hin skiptin
þrjú var um vopnað bankarán
að ræða. Fyrst var framið rán í
Sparisjóði Hafnarfjarðar 1. apr-
íl, næst í Sparisjóði Kópavogs
16. maí og síðan í Grindavík 5.
júní.
Handtekinn eftir
gripdeild í banka
á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Júlíus
Þjófurinn var handtekinn með þýfið örskömmu eftir gripdeildina.
ÓLAFUR Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum, hefur
sáð svokölluðu hausthveiti sem
uppskera á næsta sumar.
Hann segir að með þessari aðferð
sé vaxtartími hveitiplöntunnar
lengdur. Plantan nái að grænka
fyrir veturinn og stóra spurningin
sé hvort hún lifi af fram á vor. Þessi
aðferð er notuð m.a. í Danmörku og
þar eru bændur þessa dagana að sá
sínu hausthveiti.
Ólafur reyndi hveitiræktun fyrir
nokkrum árum en þá náði plantan
ekki fullum þroska eftir að hafa
verið sáð að vori. Hann er þess full-
viss að tilraunin hefði tekist í sumar
þar sem hitinn hefur verið mun
meiri og aðstæður því betri til þess-
arar ræktunar. Inn í það spilar
hversu snemma var hægt að sá sl.
vor og ef það verður raunin á næsta
ári ætti þetta að ganga. Því ætlar
hann að reyna aftur að sá vorhveiti
næsta vor og sjá hvernig það þrosk-
ast um sumarið.
Ólafur segir hveitið miklu veð-
urþolnara en bygg og hveitifræið
sjálft fjúki síð-
ur af plönt-
unni. Sá eig-
inleiki gerir
það að verkum
að hveitið get-
ur staðið leng-
ur fram á
haustið og
þannig lengt
vaxtartímann.
Afurðin af
þessari rækt-
un yrði ekkert
öðruvísi en hveitið sem neytendur
fá í næstu verslun. Afbrigði plönt-
unnar heita ýmsum nöfnum og er
það valið sem hentar best til rækt-
unar á svæðum eins og Íslandi.
„Ég held að við eigum að fara að
leita að nýjum tækifærum til rækt-
unar á Íslandi. Við þurfum að gera
stórátak og notast við Rannsókn-
arstofnun landbúnaðarins til þess,
en hún hefur verið ötul við að þróa
og kynbæta t.d. íslenska kornið.
Það er von á verulegum árangri
þar,“ segir Ólafur Eggertsson.
Sáir hausthveiti til
uppskeru næsta sumar
Ólafur Eggertsson
KAUPHALLARAÐILAR sem áttu
þátt í viðskiptum með hlutabréf
Skeljungs á verðinu 12 hinn 30. júní
síðastliðinn hefðu átt að halda að sér
höndum þar til að fullu var upplýst
um breytt eignarhald félagsins. Þetta
er önnur meginniðurstaðan í yfirlýs-
ingu Kauphallar Íslands í gær, en
Kauphöllin hefur haft til athugunar
þau atriði þessara viðskipta með
hlutabréf Skeljungs sem snúa að
upplýsingagjöf og verðmyndun.
Hin meginniðurstaða Kauphallar-
innar er að betur hefði mátt standa að
upplýsingagjöf um þessi viðskipti í
samræmi við þær skyldur sem hvíla á
útgefendum og markaðsaðilum.
Mánudaginn 30. júní síðastliðinn
urðu mikil viðskipti með stóra eign-
arhluti í Skeljungi á verðinu 12 á
sama tíma og markaðsverðið var á
bilinu 15,0–15,7.
Kauphallaraðilar eru nú 17 talsins,
en þeir eru lánastofnanir, verðbréfa-
fyrirtæki og verðbréfamiðlanir auk
Seðlabankans og Lánasýslu ríkisins.
Þeir kauphallaraðilar sem um ræðir
og voru aðilar að viðskiptum með
hlutabréf Skeljungs á verðinu 12 eru
Landsbanki Íslands og Íslandsbanki.
Bundinn þagnarskyldu
Tómas Sigurðsson, forstöðumaður
lögfræðideildar Íslandsbanka, segir
að tvennt sé vert að hafa í huga vegna
yfirlýsingar Kauphallarinnar hvað
varðar Íslandsbanka. Í fyrsta lagi
liggi ljóst fyrir að Íslandsbanki hafi
ekki átt viðskipti með hlutabréf
Skeljungs fyrir eigin reikning fyrr en
allar upplýsingar hafi legið fyrir. Í
annan stað sé bankinn bundinn þagn-
arskyldu um þau viðskipti sem hann á
fyrir viðskiptavini sína, þangað til
þau eru frágengin. Yfirlýsing Kaup-
hallarinnar virðist benda til þess að
Íslandsbanki hefði átt að neita þeim
sem óskuðu eftir viðskiptum með
hlutabréf Skeljungs þennan tiltekna
dag. Þá sé verið að gefa upplýsingar
um að eitthvað sé í vændum. Slík
upplýsingagjöf brjóti í bága við
skyldur Íslandsbanka.
Ekkert óeðlilegt
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbanka Íslands, segir að bank-
inn líti svo á að ekkert óeðlilegt hafi
átt sér stað í viðskiptum hans með
hlutabréf Skeljungs umræddan dag,
enda hafi bankinn ekki á nokkurn
hátt verið aðili að viðskiptunum.
Bankanum hafi boðist bréf til kaups
sem hafi verið keypt.
Kauphöll Íslands um viðskipti með hlutabréf Skeljungs
Kauphallaraðilar
hefðu átt að bíða
Betur/12