Tíminn Sunnudagsblað - 17.01.1971, Blaðsíða 16
GuUfoss me3 gamla svipnum. Þeir segja, að hann geti orðið svipaður, þegar kranatíðin er gengin i garð.
ákváðu mjólkuryfirvöldin, sem
hafa fyrirkomulag sitt frá Kristj-
áni fjórða danakonúngi, að alt
smjör, ilt oig gott, hvaðan sem
var af landinu, skyldi gert að
„gæðasmjöri“ með fororðntngu
einsog í dentíð, til þess að koma
í veg fyrir að mjólkurbúin keptu
hvert við annað í gæðum. Svona
var nú hugur hins opinbera til
iðnreksturs á Akureyri þann dag-
inn.
Annað dæmi um ást hins opin-
bera á iðnaði akureyrínga: Ein
frægust verksmiðja á Akureyri er
bjórgerðin, ekki þó vegna þess að
hún selji drykkjarhæfan bjór held-
ur af því hún er af yfirvöldunum
látin hella niður drykkjarhæfum
bjór. Þetta iðnfyrirtæki starfar
undir iöggjöf sem skyldar það til
að framleiða svikna vöru, svokallað
„pissuvatn“ í stað öls handa ís-
lendíngum. Sem sjá má er nafn-
giftin frá dönum nokkrum sem
urðu fyrir þeirri reynslu að
smakka þennan vökva. Á dögunum
varð af misgáníugi úr þessu eitt
hvað sem lfktist drykkjarhæfum
bjór. Lögreglan á Akureyri sat fyr-
ir hjá ljósmyndara einkennis-
klædd, meðan hún var látin vera
að hella niður þessu voðalega eitri
í tonnatali, því bjór er sú ein teg-
und eiturs sem bannað er með
lögum að hafa um hönd á íslandi
— að arseniki ekki undanskildu.
Þegar málsvari úr Orkustofnun
var krafinn sagna í opinberum fjöl-
miðli í sumar, kom uppúr honum
að 54ra megavatta orkuverið fyrir-
hugaða á Laxár- og Mývatnssvæð-
inu væri raunar ekki ætlað íslend-
íngum, við værum altof litlir fyrir
svona aflstöð: hér var verið að
hugsa um ímyndaðar þarfir stórra
„orkunotenda“ útlendra á borð við
Aluminium suisse. Þeir aðiljar
voru að vísu enn ekki fæddir, efcki
einusinni í kollinum á þessum
blessuðum manni sjálfum, heldur
vonaðist hann til að þeir mundu
gefa sig í ljós um það er virkjun-
inni væri lokið. Semsé 54 mega-
vött uppá grín og kanski. Má vera
svisslendingar komi með heims-
frægar beljur sínar og setji upp á
Akureyri smjörbú handa Evrópu,
Vache suisse; svissar eru líka meist-
arar í bjórgerð, toanski hugur hins
opinbera yrði hlýrri gagnvart Biére
suisse en eyfirskum bjórgerðar-
mönnum.
★
Annar kontóristi úr Orkustofn-
un kom i útvarpið og talaði um
Gullfoss. Rannsóknir og mælín-gar
hafa verið gerðar á fossinum, sagði
þessi maður, og hægt að leggja til
atlögu við vatnsfall þetta með litl-
um fyrirvara. Eru svona ræður
haldnar til að storka landslýðnum,
eða hvað? Einginn virðist þó kippa
sér upp. Landslýðurinn hlustaði
með þolinmæði sem mátti heita
kristileg. Manni skildist að Gult-
foss ætti að vera hafður í nýar
málmbræðslur, meira aiúminíum,
að sínu leyti einsog va-kir fyrir lax-
árvirkjunarnefnd nyrðra: stórir
„oricunotendur“ að utan gefa sig
vonandi fram!
Það var fróðlegt að heyra að
Gullfoss hefði líka verið tekinn í
karphúsið af verkfræðíngakontór
Iðnaðarmálaráðuneytisins. í æsbu
minni var til kona skamt frá Gull-
fossi, Sigríður nokkur í Brattholti,
og lét til sín ta-ka í samskonaa*
máli þegar útlendir og innlendir
of-urfiugar ætluðu að taka höndum
saman og gánga í skrokk ó Gull-
40
T f M I N N
SUNNUDAGSBLA®