Heimilistíminn - 10.04.1975, Blaðsíða 17

Heimilistíminn - 10.04.1975, Blaðsíða 17
9. april Þú ert fljótfær að eðlisfari, en ert fædd- ur stjórnandi. Þú veizt hvað þú vilt og hvernig á að fara að þvi. Þig langar allt- af að reyna allt nýtt og spennandi, og' þarft yfirleitt ekki á leiðbeiningum að halda við það. Þú vilt alltaf vera sá, sem á frumkvæðið og stjórnar gjarna hinum. Þar sem þú missir yfirleitt ekki móðinn, geturðu barizt harðri baráttu til að öðlast frægð á unga aldri. Hvort þú heldur henni við, er undir hæfileikum þinum til að halda þér á toppnum komið. Þú er likamlega seigur og hefur heil- mikinn varasjóð af andlegri orku, en slikt skiptir miklu máli, þegar um er að ræða að fá það sem maður vill. Þú ert vel greindur, en þarft stöðugt að vera að, ef þú átt aö forðast að flækja þig i vandræði og vitleysur. Foreldrar barna, sem fædd eru þennan dag, þurfa alltaf að vera á verði. Konur fæddar þennan dag eru mjög að- laðandi, og munu áreiðanlega eiga sér fleiri en eitt ástarævintýri, áður en þær gifta sig. En þar sem heimili og fjölskylda skiptir þig miklu máli, muntu velja maka og eignast fjölskyldu snemma á ævinni. Þú ert ástúðlegur við þina nánustu og vilt leggja mikið I sölurnar til þess að þeim Höi sem bezt. 11. april Gott skap þitt aflar þér vina, hvar sem þú kemur. Þar sem þú ert heiðarlegur og blátt áfram i tilfinningum, mun margt fólk laðast að þér, og sumt af þvi mun skipta þig máli I sambandi við frama þinn. En þú ert sjálfur svo viss i þinni trú, aö þú biður fólk aldrei um ráð eða stuðn- ing. Þú tekur sjálfur áhættuna og frum- kvæöið og telur, að einungis þannig mun- iröu ná frama. Konur fæddar þennan dag hafa einkum áhuga á fallegum fötum, tónlist og dansi. Þér finnst gaman að skemmta þér og vilt gjarna eiga nóga peninga, sem þú getur notað til að gera þig sérlega aðlaöandi. Stjörnurnar hafa gefið þér fegurð, per- sónutöfra og fallegan likama. Þú veizt alltaf, hvenær þú getur náð þvi besta út úr aðstæðum. Að líkindum eignastu maka, sem verður til þess að þú hækkar I mann- félagsstiganum og eignast meiri peninga. Karlmenn fæddir þennan dag hafa hæfi- leika til aö tala til almennings. Þeir geta oröiö góðir leiðtogar, stjórnmálamenn, auglýsingamenn eða blaðamenn. Þú hef- ur marga hæfileika, en verður að gæta þess að beina orku þinni að einu sviði, annars verðurðu þúsund þjala smiður og ekki sérlega góður við neitt. 10. apríl Stjörnurnar hafa gefið þér heilmikinn pfersónukraft, og það er á þinu valdi að nota hann til hins bezta fyrir mannkynið. Ef þú vanrækir það, sem þú hefur fengið I vöggugjöf, munu mistökin hafa slæmar afleiöingar fyrir þig. Þér liður bezt, ef þú streitist við að ná takmarki þínu. Inn- blásturinn einn er ekki nægur. Hægt er að beina orku þinni I ranga átt lika, og það er þitt að ákveða. 1 hvert sinn, sem þú þarft að taka ákvörðun, er skynsamlegt af þér að hugsa þig vel um. Þú ert fljótur að laga þig að aðstæðum, og getur það bæði gagnvart fólki og hlut. um. Þetta eru mikilvægir hæfileikar fyrir stjórnmálamann, en alvarleg mistök, ef grundvöllurinn er vélrænt starf. Þar sem þú hatar alla reglusemi, er ekki hyggilegt fyrir þig að velja starf, þar sem allt geng- ur eins og eftir spori. Vertu frumlegur, sýndu frumkvæði, starfaðu hörðum hönd- um, og þá muntu ná takmarkinu á skömmum tima. Þú ert trúarlega sinnaður og hefur sterka trú á andlegum verðmætum fyrir manneskjuna, og þú leitar gjarna huggunar I trúnni. Konur fæddar þennan dag eru afar elskar að tónlist og hafa gjama góða söngrödd. Þú finnur á þér, hvemig fólk er, og þér er illa við allt fals og hræsni. Ef þú fylgir jafnan hugboði þfnu og treystir þvi frá upphafi, gerirðu aldrei vitleysu. 17

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.