Heimilistíminn - 10.04.1975, Page 19

Heimilistíminn - 10.04.1975, Page 19
15. april Þú hefur ákaflega samsettan persónu- leika. Þótt þú hafir gaman ab listum og fagurri tónlist, ertu afskaplega raunsær, þegar um viðskipti er að ræða. Þú ert hátt uppi i skýjunum, þegar þú ert að fást við bókmenntaleg viðfangsefni, en mjög svo niðri á jörðinni, þegar um er að ræða að undirrita kaupsamning. Þú hefur áhuga á sálrænum og dulrænum hlutum og ert si- fellt að leita sannleikans á þeim sviðum. En þú vilt þö að hlutirnir verði visinda- lega sannaðir, og ert þvi alltaf að leita sannana. Karlar fæddir þennan dag eru ágætis ræöumenn, og munu að likindum ná frama á stjórnmálasviðinu. Hins vegar heillast konur að sviðinu, þar sem þær hafa leikhæfileika og geta túlkað tilfinn- ingar. Þú hefur unan af selskapslifi og hlakkar alltaf til að hitta athyglisvert fólk. Allt fólk vekur áhuga þinn, og þú þreytist aldrei á að skilgreina manngerð- ir. Þú ert mjög tilfinninganæmur og ert alltaf reiðubúinn að hjálpa þeim, sem verr er ástatt fyrir. En þar sem þú átt auðvelt með að dæma fólk, læturðu sjald- an leika á þig, og þú vilt fá greiða fyrir greiða. Þú ert alltaf reiðubúinn að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft, en kærir þig kollóttan um þá lötu og getur verið hrana- legur i viðmóti við þá. Þegar volæði fólks stafar af leti, kemurðu öðruvisi fram en annars. 16. april. Þú hefur staðfastan persónuleika og af- ar sterkan. Karlar fæddir þennan dag eiga aldrei sitt undir öðrum, og konur eru einnig sjálfstæðar. Þú býrð yfir mikilli orku, og ef þú ert ekki stöðugt að starfa, verðurðu óstyrkur. Börn fædd i þessu merki lenda auðveldlega i vandræðum. Foreldrar verða að sjá til þess að þau hafi ætið næg viðfangsefni. Það er ekki erfitt að móta eitthvað já- kvætt, en hins vegar að bæta eitthvað, sem hefur verið eyðilagt. Þess vegna verðurðu að vera viss um að starfa að hugsjónum þinum og að nota hæfileikana á sem beztan hátt. Eðli þitt er þannig, að þú getur bæði verið þrjózkur og stifur, og þaö getur verið gott, ef það þjónar góðum málstað, en sérlega slæmt, ef þú ert að gera vitleysu. Þú ert glaðlyndur og vingjarnlegur, og margt fólk beinlinis loðir við þig. Oft ertu rausnarlegri en þú ættir að vera. Þar sem þú hefur gaman af að skemmta fólki, ertu frábær gestgjafi. Þú hefur gaman af veizlum, en vilt halda þær heima hjá þér. Þú ert ástrlöufullur og bliðlyndur, og þér hættir til afbrýðisemi, ef sá eða sú, sem þú elskar, snýr sér of mikið að öðrum. Sjálfur ertu mjög heiðarlegur og tryggur, og þú vilt, að maki þinn sé það lika. Stööug hvild er óþolandi þreytandi. List, sem þarf að útskýra, er eitthvaö gruggugt við. Það var kona, sem kysst var á ennið, sem fann upp háu hælana. ♦ Vertu aldrei hræddur við að koma of seint á útsölu. Flestir lifa á þeim launum, sem þeir búast við að fá einhvern tima. Ef maður lifir eins og lamb, dreymir hann eins og úlf. ★ Nágranninn fann upp nýja aðferð til að ala upp börn. Hann flengir þau. ♦ Spekingur cr maður, sem alltaf veit nákvæmlega, hvað gera skal, þangað til hann verður sjálfur fyrir einhverju. Hvers vegna að berjast gegn náttúrunni? Etum og drekkum. 19

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.