Eintak - 28.04.1994, Qupperneq 7
Volvo 850 hefur fengiö frábæra
dóma um allan heim og er marg-
verðlaunaður.
Sama gildir um Volvo 850 station
sem fæst nú í mörgum spennandi
útfærslum.
Volvo 850 er með ABS hemla-
kerfi, spólvörn, SlPS-hliðarárekstrar-
vörn, Volvo hljómflutningstækjum,
innbyggðum barnastól í aftursæti, 4
gíra sjálfskiptingu ásamt mörgu fleiru.
T5 útfærslan er 225 hestöfl sem
fást úr 5 strokka, 20 ventla, 2,0 lítra
vél með beinni innspýtingu, TURBO
og millikæli (intercooler).
GLT útfærslan er búin 5 strokka,
20 ventla, 2,5 lítra vél með beinni
innspýtingu sem gefur 170 hestöfl.
GLE og GL útfærslurnar eru síðan
fáanlegar með 143 hestafla, 5
strokka, 20 ventla, 2,0 lítra vél með
beinni innspýtingu.
Sætin í Volvo 850 hafa fengið
mikið lof enda hönnuð af
sérfræðingum í beinabyggingu
líkamans. Þess vegna stígur þú
óþreytt(ur) úr Volvo eftir langt
ferðalag um ísland. Volvo 850 er
einnig fáanlegur 7 manna.
Volvo hefur um áratugaskeið verið
fremstur bílaframleiðenda hvað
öryggi varðar. Með Volvo 850
hefur verið stigið skrefi lengra.
Sem dæmi um öryggisbúnað er
krumpsvæði að framan og aftan,
SlPS-hliðarárekstrarvörn,
innbyggður barnastóll í aftursæti,
bílbeltastrekkjarar á frambeltum,
sjálfvirk hæðarstilling bílbelta,
3-punkta belti fyrir alla 5 farþega
bílsins og margt fleira.
Volvo 850 er ekki fjórhjóladrifinn
heldur framhjóladrifinn með spólvörn.
Spólvörnin gerir það að verkum að
framhjólin ná alltaf hámarksgripi sem
gerir Volvo 850 einstaklega
hæfan í vetrarakstri.
Volvo 850 station kostar frá: 2.548.000 kr. stgr. á götuna
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST!
FAXAFENI8 • SÍMI 91-68 58 70
HVERS VEGNA NOTAR ÞÚ
RAUTT EÐAL
GINSENG?
Gunnar Eyjólfsson, leikari og
skátahöfðingi:
Það eflir einbeitinguna.
Sigurður Sveinsson
handboltamaður:
Það er nauðsynlegt fyrir svona
gamla menn eins og mig til að
geta haldið cndalaust áfram í
handboltanum.
Ásta Erlingsdóttir, grasalæknir:
Eg finn að það gerir mér gott.
Dýrleif Ármann, kjólameistari:
Það gefur mér kraft og lífsgleði
við saumaskapinn.
Alda Norðfjörð, eróbikkkennari:
Það stóreykur úthald, þrek og þol.
Hildur ICristinsdóttir, klínikdama:
Til að komast í andlegt jafnvægi
og auka starfsþrek.
Rautt Eðal Ginseng
skerpir athygli
og eykur þol.
EINTAK © STAÐGÓÐUR MORGUNVERÐUR