Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÝJASTA ELDHÚSINNRÉTTINGIN HORIZON HVID/3000 Sjötíu herbergi bætt-ust við hótel- oggistihúsaflóru Reykjavíkur í gær þegar nýtt hótel, Radisson SAS 1919, tók til starfa í fyrr- verandi höfuðstöðvum Eimskipafélagsins við Pósthússtræti. Þá opnaði fyrr á þessu ári Reykjavík Centrum hótel í Aðal- stræti, en þar eru samtals 90 herbergi. Árið 2003 var sömuleið- is ár mikillar hótelupp- byggingar í Reykjavík en þá opnuðu meðal annars Hótel Plaza við Ingólfstorg, 101 hótel á Hverfisgötu og lokið var við stækkun Nordica hótels við Suðurlandsbraut (áður Hótel Esja). Ekki fleiri hótel í Reykjavík á þessu ári Ekki er áformað að opna fleiri hótel í Reykjavík á þessu ári en hóteluppbyggingu í borginni virð- ist þó hvergi lokið og sem dæmi eru uppi hugmyndir um stækkun Grand hótels v/Sigtún, á árinu 2007 um 200 herbergi í tveimur 13 hæða turnbyggingum. Í fyrra voru hótel á höfuðborg- arsvæðinu 26 talsins og herbergi 1.980 og lætur því nærri að fjöldi herbergja sé nú í kringum 2.200 og er þá einungis miðað við tvö ný hótel í Reykjavík á þessu ári. Þess má geta að samanlagður fjöldi hótela og gistiheimila á höf- uðborgarsvæðinu var í fyrra 66 af um 300 á landinu og er fjöldi her- bergja 2.591 en 7.502 á landinu öllu. Gistinóttum fjölgar Gistinóttum hefur að sama skapi fjölgað og er það almennt mat fólks í greininni að aukning gistirýmis hafi haldist í hendur við fjölgun gistinátta. Þess má geta að meðalársherbergjanýtingin í Reykjavík hefur að jafnaði verið um 68–70% síðustu 4–5 ár sem er svipað og í sambærilegum borg- um erlendis. Hagstofan sendi fyrir skemmstu frá sér tölur yfir gisti- nætur í apríl en samkvæmt þeim fjölgaði gistinóttum í öllum lands- hlutum í aprílmánuði. Hlutfallsleg aukning varð raunar langmest á Suðurlandi (35%) frá fyrra ári en minnst á Norðurlandi (2%). Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur í apríl 55.880 en voru 53.230 í sama mánuði árið á undan og nemur aukningin milli ára 5 prósentustigum. Hagstofan bendir á að fjölgunin sé eingöngu vegna Íslendinga, það er Íslendingar eru duglegri nú en áður að nýta sér hótelkost á Íslandi, ef til vill samhliða aukinni markaðssetningu í tengslum við styttri ferðir og árshátíðir. Á sama tíma stóðu gistinætur útlendinga í stað. Voru gistinætur útlendinga í apríl tæplega 53 þús- und og hefur þeim fækkað um tæpt prósentustig frá áramótum. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði hins vegar, sem fyrr segir (um 32% á landsvísu) og fjölgaði því gistinóttum í heildina á landsvísu um 9%. Þess skal getið að tölur Hag- stofunnar miðast við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem eru opin árið um kring. Fyrir skemmstu birti Ferðamálaráð einnig tölur yfir komur erlendra ferðamanna til landsins fyrstu fimm mánuði ársins, þ.e. til loka maí og skiptingu þeirra eftir þjóð- erni. Erlendum ferðamönnum fækkaði um tæp 6% Alls fóru ríflega 92 þúsund er- lendir gestir um Leifsstöð á þessu tímabili og nemur fækkunin 5,6% Samdráttur er á flestum svæðum. Einna mest er fækkunin frá Sví- þjóð og Noregi (18,4% og 23,8%). Sömuleiðis nam samdráttur í komu ferðamanna frá Finnlandi 17%, frá Hollandi 18,2%, frá Ítalíu 18,9% og Sviss 38,9%, en annars staðar var samdráttur í komu ferðamanna minni. Á nokkrum svæðum var aukning á milli ára, frá Bandaríkjunum 3%, Þýska- landi 1,7% og Danmörku 1,1%. Ferðaþjónustumenn benda margir hverjir á að gengisþróun sé íslenskri ferðaþjónustu fjötur um fót um þessar mundir og Ís- land sé einfaldlega „of dýr áfanga- staður“ eins og einn viðmælandi orðaði það. Þetta hafi gert mönn- um erfitt fyrir. Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, bentu t.d. á það nýverið að hátt gengi íslensku krónunnar léki ferðaþjónustuna grátt líkt og aðrar gjaldeyrisskapandi atvinnu- greinar og rýrði samkeppnis- hæfni. Þar að auki hefði dregið mjög úr framlagi ríkisins til mark- aðssetningar ferðaþjónustu á þessu ári. SAF hefði varað við því að lífsnauðsynlegt væri að verja greinina á meðan gengi krónunn- ar væri jafnhátt og það yrði best gert með aukinni markaðssókn. Samhliða því sem hótel- og gistihúsaeigendur finna fyrir minni straumi erlendra ferða- manna hingað gætir samdráttar í allri þjónustu við ferðamenn og ráðstefnuhópar eru sömuleiðis minni en búist hafði verið við á þessu ári, að sögn manna í ferða- þjónustugeiranum. Fréttaskýring |Uppbygging hótela í borginni og gistinætur Tvö ný hótel í Reykjavík Gistinóttum fjölgaði fyrstu mánuði árs- ins en erlendum ferðamönnum fækkaði Ferðamönnum fækkaði fyrstu mánuði ársins. Ferðaskipulag og undir- búningur að breytast  Erfitt virðist að spá um aðsókn ferðamanna hingað í sumar. Ferðamynstrið hefur breyst frá því sem áður var og æ algengara verður að ferðalangar bóki ferð- ir og hótel með litlum fyrirvara á Netinu. Þetta hangir saman við aukið framboð á flugi og öðrum ferðamöguleikum til landsins. Þess má geta að gistinóttum fjölgaði um 9% á síðasta ári á meðan meðalaukningin í N- Evrópu var rétt rúm 3%. Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is KRAKKARNIR á leikskólanum Gullborg létu sitt alls ekki eftir liggja þegar leikskólinn fagnaði 15 ára af- mæli sínu. Í góðu samstarfi við foreldra og starfsfólk lögðu þeir á sig mikla vinnu við að undirbúa afmælishá- tíðina og var skólinn þeirra skreyttur í hólf og gólf. Enda voru þau meðvituð um að hún Gullborg væri 15 ára sem hlýtur að teljast afar hár aldur þegar maður er fimm. Gengið var í skrúðgöngu til heiðurs Gullborg og súkkulaðiterta boðin gestum úti í garði – enda alkunna að það viðrar alltaf vel í Vesturbænum. Hoppkastali vakti mikla lukku Gullborgarbarna en ekki síður sló í gegn afmælisgjöf frá þeim til skólans, stórt myndverk með sjálfsmynd hvers einasta þeirra en aðalmarkmið leikskólans eru einmitt tengd sjálfsmynd barna. Ljósmynd/Gullborg Hún Gullborg er fimmtán ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.