Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Óhætt er að segja að Jónasheitinn Guðmundsson,fyrsti formaður Sam-bands íslenskra sveitar- félaga, hafi sýnt mikla framsýni,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, en þess er í dag minnst að stofnþing sambandsins var sett fyrir nákvæmlega 60 árum. Að sögn Vilhjálms var sambandið frá upphafi hugsað sem sameig- inlegur málsvari sveitarfélaganna gagnvart ríkisvaldinu og því ætlað að sinna hagsmuna- og baráttu- málum sveitarfélaga, auk þess að vera öflugur vettvangur fyrir um- ræður um sameiginleg málefni sveitarfélaganna, efla samstarf þeirra og auka fræðslu um sveit- arstjórnarmál almennt. Við stofnun gerðust samtals 53 af 218 sveitarfélögum landsins aðilar að sambandinu. Á næstu áratugum fjölgaði aðildarsveitarfélögum hratt og upp úr 1970 voru loks öll sveit- arfélög landsins gengin í sam- bandið. Í dag eru sveitarfélög í land- inu samtals 101 og íbúafjöldi þeirra er allt frá 38 íbúum upp í 114 þús- und. Ljóst má því vera að aðstæður og þarfir sveitarfélaganna eru afar misjafnar og því liggur beint við að spyrja Vilhjálm hvernig gangi að vera málsvari fyrir svo stóran og ólíkan hóp sveitarfélaga. „Það hefur raunar gengið nokkuð vel. Auðvitað koma upp álitamál þar sem lítil sveitarfélög telja að stóru sveitarfélögin séu að fá of mikið og öfugt. Ég hef hins vegar ekki litið á þetta sem vandamál heldur fremur sem verkefni. Stjórn sambandsins hefur hverju sinni lagt áherslu á þau viðfangsefni í störfum sínum sem eru sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna, en hefðbundin flokkapólitík hefur afar sjaldan átt upp á pallborðið hjá okkur. Sem for- maður sambandsins hef ég gert mér far um að kynna mér málefni allra sveitarfélaga og í stjórninni hefur verið lögð áhersla á að fórna aldrei hagsmunum tiltekinna sveitarfé- laga í þágu annarra. Miðað við nú- verandi sveitarfélagaskipan verðum við auðvitað að átta okkur á því hvernig við getum tryggt það að sveitarfélög, hvort sem þau eru lítil, meðalstór eða stór, geti með sem bestum hætti sinnt lögbundnum verkefnum sínum,“ segir Vil- hjálmur og bendir á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem eitt mikilvægasta tækið í því samhengi. „Það er alveg ljóst að sveitarfélög víða á landsbyggðinni hafa orðið fyrir búsifjum á undanförnum ár- um, ekki síst vegna íbúafækkunar og neikvæðrar atvinnuþróunar, en fjárhagsleg staða margra sveitarfé- laga er mjög erfið. Þetta er auðvitað hluti af ákveðnum byggðarvanda og ég tel að ríkisvaldið þurfi að koma af miklu meiri krafti inn í þessa um- ræðu, en ekki bara líta svo á að þetta sé einhver sérstakur vandi einstakra sveitarfélaga.“ Aðspurður segir Vilhjálmur sam- skipti sveitarfélaga við ríkið hafa verið með mismunandi hætti í tím- ans rás. Að sögn Vilhjálms er þessa dagana verið að vinna að nýjum samstarfssáttmála milli ríkis og sveitarfélaga sem á að tryggja betra og markvissara samstarf. Segir Vil- hjálmur það mikið hagsmunamál, því sambandið sé stöðugt að fjalla um bæði ný lög og reglugerðir sem oft á tíðum setji nýjar kvaðir á sveit- arfélögin sem kalli aftur á aukið fjármagn. „Það hefur því miður of oft verið svo að ríkisvaldið og fram- kvæmdavaldið hafa sett lög og reglugerðir sem sveitarfélögum er ætlað að framkvæma án þess að hugsað hafi verið fyrir tekjustofn- um,“ segir Vilhjálmur og segist von- ast til að það standi til bóta með breyttum samstarfssáttmála. Stoltur af flutningi grunnskól- ans frá ríki til sveitarfélags Talið berst að formannstíð Vil- hjálms, en hann hefur gegnt emb- ættinu lengst allra að Jónasi Guð- mundssyni undanskildum, sem gegndi formannsembættinu í 22 ár, þ.e. allt frá stofnun sambandsins til ársins 1967. „Ég er afskaplega þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt í formannstíð minni. Raunar var það tilviljun sem réði því að ég tók við þessari stöðu á sínum tíma. Sjálfur hafði ég sóst eftir því að verða forma menn lögðu hart að mér og því kost á mér.“ Síðan eru li fimmtán ár og hefur Vilhjál ið endurkosinn þrisvar sinn „Það hefur verið afar áhu að starfa á þessum vettvang starfi mínu hef ég kynnst m þéttbýlis og landsbyggðar e vel. Einnig hef ég eignast m góða vini og kunningja í geg starfið. Það má því segja að notið hverrar stundar í þess starfi,“ segir Vilhjálmur, en geta að hann hefur ekki mis úr vinnu alla formennskutíð Þegar hann er spurður hver urinn að því sé segist Vilhjá þakka guði fyrir hvað hann heilsuhraustur. „Sjálfur er é færður um að lykillinn að gó heilsu sé í fyrsta lagi að hafa af því sem maður er að vinn öðru lagi að vera tiltölulega ur og í þriðja lagi, sem er mj Stofnþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var sett á þessum degi fyrir 60 árum. Í samtali við Silju Björk Huldudóttur segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, formaður sambandsins, sveitarfélögin hafa átt verulegan þátt í því að breyta íslensku samfélagi, efla mannlífið í landinu og gera það fjölbreyttara. „Mikilvægt a hæfilega kær Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson „SVEITARFÉLÖG gegna sífellt þýðing- armeira hlutverki í þjóðlífinu, verkefnum þeirra fjölgar, viðfangsefni breytast og á hverjum tíma verða þau að laga starfsemi sína að nýjum verkefnum. Sama gildir um sambandið og starfsemi þess sem verður að taka mið af þörfum sveitarfélaganna hverju sinni þó að meginhlutverk þess sé almenn hagsmunagæsla í víðum skilningi,“ segir Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sveitarfélaga síðan 1990. Sem dæmi um þróun og breytileika í starf- semi sambandsins nefnir Þórður að fyrir nokkrum árum var starfafyrirkomulagi á skrifstofu sambandsins breytt og starfsem- inni skipt niður í fimm svið. „Lögfræðisvið, hag- og upplýsingasvið og kjarasvið fengu aukið vægi og stofnað var nýtt þróunar- og alþjóðasvið. Sömuleiðis var gerð breyting á rekstrar- og útgáfusviði,“ segir Þórður, en þess má geta að á síðasta ári flutti starfsemi sambandsins í nýtt og nútímalegra skrif- stofuhúsnæði að Borg- artúni 30 í Reykjavík. Spurður um starfsemi sambandsins segir Þórð- ur það hafa í mörg horn að líta. „Sambandið er sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna í land- inu. Fyrst og fremst gegnir það hags- munagæslu, vinnuveit- endahlutverki og fræðslu- og upplýsingastarfsemi. Jafnframt á það að standa vörð um sjálfsstjórnarrétt sveitarfé- laganna og tekjustofna þeirra og stuðla að framþróun og nýsköpun í stjórnsýslu, þjón- ustu og verkefnum og miðla upplýsingum þar um. Oft finnst sveitarstjórnarmönnum hægt miða við að þoka hagsmunamálum áleiðis. En undir merkjum sambandsins hafa sveitarstjórnarmenn haft margvísleg áhrif á framþróun þjóðfélagsins í tímans rás.“ Sinnir hagsmunagæslu- og þjónustuhlutverki Þórður Skúlason UPPHA félagsle manns, Heimsk hag sve tekjusto gjaldþro gekkst í arfélög skyni að unaraðg manns s Jónas G 1952. Jónas arfulltrú hann ha armenn un sveit Hann va armenn þeir gæ 1941 hó arstjórn ávarpso Sa NÁTTÚRAN NÝTUR VAFANS Dómur Hæstaréttar, um aðmeta verði umhverfisáhrifálvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, styrkir stöðu þeirrar umhverfislöggjafar, sem sett hefur verið í landinu. Sú meginregla, að ekki sé hægt að ráðast í stórfelldar framkvæmdir án þess að meta áhrif þeirra á umhverfið, er fest í sessi. Það er því rétt, sem Hjörleifur Guttormsson, stefnandinn í hæsta- réttarmálinu, segir í Morgun- blaðinu í gær, að dómurinn hefur verulega þýðingu fyrir stöðu um- hverfisréttar í landinu. Auðvitað þýðir dómur Hæstarétt- ar ekki að álver Alcoa Fjarðaáls hafi þau neikvæðu áhrif á umhverfið að verkefnið sé í hættu. Hann fjallar ekki efnislega um umhverfisáhrif verksmiðjunnar. Hann þýðir ein- göngu að gera þarf nýtt mat á um- hverfisáhrifum hennar. Þrátt fyrir að slíkt mat hefði farið fram á áhrif- um þeirrar verksmiðju sem Reyð- arál hugðist reisa, kemst rétturinn að þeirri niðurstöðu að hin nýja verksmiðja sé það ólík hinni fyrri, að ekki sé hægt að líta svo á að um sömu framkvæmd sé að ræða. Þessi dómur þýðir að umhverfið nýtur vafans í tilvikum sem þessum. Menn geta ekki stytt sér leið framhjá kröfunni um umhverfismat til að spara sér peninga eða tíma. Það vekur athygli að Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarða- áls, segir í Morgunblaðinu í gær: „Við keyptum mat af Reyðaráli og létum gera samanburðarskýrslu sem var í samræmi við lögin. Með þetta í höndum og niðurstöður rannsókna sem við höfum látið gera teljum við að það verði ekki tíma- frekt ferli að fara í mat á umhverfis- áhrifum.“ Ef þetta er raunin má spyrja: Lá ekki beint við strax í upphafi, ekki sízt í ljósi þeirrar gagnrýni sem ál- versframkvæmdirnar mættu, að gera nýtt umhverfismat? Ef það er ekki tímafrekt nú hlýtur það sama að hafa átt við þá. Morgunblaðið hefur áður hvatt Alcoa Fjarðaál til að hefja undir- búning að umhverfismati fyrir ál- verið í Reyðarfirði, burtséð frá nið- urstöðu Hæstaréttar. Blaðið hefur bent á að með vinnslu slíks um- hverfismats væri búið að útiloka sí- felldar ásakanir á hendur Alcoa og stjórnvöldum um að bera ekki virð- ingu fyrir umhverfinu og draga úr þeirri tortryggni, sem ella gæti grafið um sig. Vilji stjórnenda Alcoa Fjarðaáls til að starfa í sátt við um- hverfið verður ekki dreginn í efa- .Fyrirtækið á því að líta á umhverf- ismatið sem tækifæri, fremur en ógn. REGLUR UM AKSTUR UTAN VEGA Náttúran er viðkvæm á norð-urhjara. Ekki þarf mikið álag til að spilla gróðri og lítið sár getur hæglega stækkað. Eyðileggingin þarf ekki að taka nema sekúndubrot, en oft er náttúran mörg ár ef ekki áratugi að ná sér. Það mætti ætla að þetta væri hverjum manni ljóst og þyrfti ekki að hafa um það mörg orð – og þaðan af síður lög og reglugerðir – að umgangast þurfi náttúruna með gát. En það er öðru nær. Gríðarleg spjöll hafa verið unnin á íslenskri nátt- úru með umferð farartækja – eða fararskjóta – utan vega. Í gær tók gildi ný reglugerð um umferð utan vega – eða öllu heldur á vegum. Þar er ekki að- eins kveðið á um ökutæki heldur einnig umferð hrossa á hálend- inu. Í texta reglugerðarinnar er reynt að taka af öll tvímæli um akstur utan vega. Í gömlu reglu- gerðinni sagði til dæmis að allur akstur utan vega og merktra slóða „þar sem náttúruspjöll geta af hlotist“ væri bannaður. Í þeirri nýju er er orðalagið af- dráttarlaust: „Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega í náttúru Íslands.“ Einu undan- tekningarnar eru akstur vélknú- inna ökutækja á jöklum og snævi þakinni og frosinni jörð svo framarlega sem ekki skapist hætta á náttúruspjöllum, auk þess sem heimilt er að aka utan vega á ræktuðu landi vegna land- búnaðarstarfa. Auk þess eru til- tekin ákveðin störf, sem geta af nauðsyn krafist aksturs utan vega, þar á meðal björgunar- störf. Enn fremur er í reglugreðinni kveðið á um að þegar farið sé ríð- andi um landið eða á hjóli skuli fylgja þar til gerðum stígum eins og auðið er. Um þessar mundir er unnið að kortlagningu vega og slóða á há- lendinu og liggja nú fyrir GPS- hnit fyrir 90-95% vega og slóða á hálendinu, að því er kemur fram í samtali við Sigríði Önnu Þórð- ardóttur umhverfisráðherra í Morgunblaðinu í gær. Mikilvægt er að hraða þeirri vinnu til þess að ferðalangar á hálendinu eigi auðveldara með að skipuleggja ferðir sínar og halda sig við slóða og vegi. Ljóst er að álag og ágangur á hálendi Íslands mun aukast á komandi árum. Það er því mik- ilvægt að fyrir liggi afdráttar- lausar reglur um það með hvaða hætti megi ferðast um óbyggðir landsins – hvar megi fara og hvar ekki. En það þarf ekki síður að kynna þær reglur, sem settar hafa verið þannig að jafnt ís- lenskir sem erlendir ferðamenn viti nákvæmlega hvernig þeir eigi að haga ferðum sínum. Nátt- úruvernd er ekki aðeins spurning um stórframkvæmdir, heldur umgengni hvers og eins um um- hverfi sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.