Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 20
Krýsuvík | Fjáreigendur í Grindavík og af Vatns- leysuströnd slepptu í gær fyrstu kindunum í nýtt beitarhólf sem þeir eiga aðild að með Hafnfirð- ingum í nágrenni Krýsuvíkur. Fyrstu kindurnar voru frá Hermanni á Stað og fengu Birgir Þór- arinsson varaoddviti Vatnsleysustrandarhrepps, Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grindavík og Valgerður Ólafsdóttir, formaður Fjáreigenda- félags Grindavíkur, það hlutverk að veita þeim frelsi. Samið var um beitarhólfið á síðasta ári og lauk vinnu við það í gær. Vegagerð ríkisins kostar girð- ingarnar til þess að þurfa ekki að girða meðfram Reykjanesbrautinni og öðrum vegum á Suð- urnesjum. Samhliða er unnið að miklu upp- græðsluátaki sem Landgræðslan skipuleggur en sveitarfélögin kosta. Nú er lausaganga búfjár bönnuð í meginhluta Landnáms Ingólfs. Við það opnast stór landsvæði til uppgræðslu og skógræktar, án þess að rækt- unarfólk eigi á hættu að sauðfé eyðileggi vinnu þess. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Í fyrsta skipti í nýja haga Sauðfé Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Veðrið á sér margar hliðar, en fáum hefði dottið í hug í lok apríl, þegar gróður var að lifna, að allar þessar frostnætur væru framundan. Þetta varð til þess að gras- vöxtur stóð nánast í stað í nokkrar vikur og höfðu menn lambær á gjöf allan sauð- burðinn þó svo að þær væru úti. Gjafatím- inn er því orðinn langur þar sem kindur voru settar inn mánuði fyrr síðastliðið haust en venja er til. Auðvitað veldur þetta vonbrigðum og nú er orðið ljóst að uppskera af túnum og ökrum verður lé- legri en oft áður. Þrátt fyrir þetta er mikilvægt að horfa á björtu hliðarnar og það verður að segjast eins og er að þetta vor var að sumu leyti gott því ekkert hret kom seinnihluta maí- mánaðar, þannig að aldrei þurfti að krafla inn lambfé og gefa inni í marga daga.    Fuglar voru ekki eins söngglaðir í frost- unum og á hlýjum venjulegum vordögum og trúa má því að fúlegg verði fleiri en venja er til vegna kuldans. Í gamla daga hefðu menn glaðst yfir fúleggjunum og safnað sér í fötur, en nú eru ekki nema 2 til 3 manneskjur í Aðaldal sem vilja fúl- egg. Að sumu leyti má segja að þetta kalda og þurra veðurfar fari vel með fuglana því ekki flæðir yfir þá bleytan. Aftur á móti hefur verið erfitt um æti, því vaðfuglar standa í tjörnum sem eru við það að þorna upp og ekki er auðvelt að ná maðki í svo þurri mold sem nú er orðið raunin. Þau tíðindi eru að tvær æðarkollur fundust dauðar úr hor á Tjörnesi, svo líka hefur verið erfitt hjá fuglum sem nýta sér sjáv- arfang.    Ferðamenn eru farnir að láta sjá sig þó ekki séu þeir margir og eru þeir skemmti- legt krydd í tilveruna hér í sveitunum. Þeir hafa oft aðra sýn á hlutina og víd- eómynda bröndóttar kýr sem þeim finnst fallegri en aðrar. Stundum koma þeir heim á bæi til þess að spyrja um handverk eða heimaafurðir og því ber að fagna að ferðaþjónustuaðilar skuli huga betur að þessum þætti í þjónustu sinni. Líklega er matarmenningin töluvert merkilegri en áður hefur verið talið og all- ir hafa sína sérstöðu. Eitt er víst að flat- brauðið úr Laxárdal og Laxárnesi er ekki eins, en ótrúlega gott á báðum stöðum. Þá er áleggið, silungurinn, mjög ólíkur, auk þess sem reykurinn er ekki sá sami. LAXAMÝRI EFTIR ATLA VIGFÚSSON FRÉTTARITARA Úr sveitinni Stjórn Landverndarkom saman í Al-viðru í vikunni, ásamt verndara samtak- anna, Vigdísi Finnboga- dóttur, til að gróðursetja 75 bjarkir sem nú mynda Vigdísarrjóður. Rjóðrið á að vera skjól þeim börn- um sem í framtíðinni munu sækja fræðslu og út- vist í Alviðru. Gróðursetn- ingin er afmæliskveðja- samtakanna til Vigdísar í tilefni af 75 ára afmæli hennar 15. apríl sl. Árlega sækja um 2.000 skólabörn fræðslu og útvist í Alviðru en þar hefur Landvernd rekið fræðslusetur mörg undanfarin ár. Vigdís hefur sem verndari Landverndar verið ómet- anleg og óþreytandi í stuðningi sínum við starf samtakanna undanfarin ár, segir í frétt frá Landvernd. Gróðursetur 75 bjarkir Vigdísarrjóður í Alviðru – 75 bjarkir gróðursettar í gær. Hjálmar Frey-steinsson ortikominn heim: Á mínum ferðum margt ég lít merkilegt og sniðugt og eftir að ég kom frá Krít kríta ég oftar liðugt. Hallmundur Kristinsson leggur út af vísu Hjálmars: Að lítt sé að græða á lækning- um þegna líkast til álykta hlýt. Finnst mér því trúlegt að fá- tæktar vegna ferðist þú mest út á krít. Jón Ingvar Jónsson hripar á blað: Ó, hve mundi gleðjast geð, gremjan burtu viki, ef ég gæti auðgast með einu pennastriki. Í vísnahorni sl. miðviku- dag misritaðist nafn höf- undar vísu um Lon og Don, hann er að sjálfsögðu Þorsteinn Valdimarsson. Ort á Krít pebl@mbl.is Akureyri | Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær var lagt fram bréf frá íbúum í ná- grenni tjaldstæðisins við Þórunnarstræti, en í því gera þeir grein fyrir því ónæði sem þeir hafa orðið fyrir í kringum þjóðhátíð- ardaginn og verslunarmannahelgina, en þá er jafnan margt um manninn á tjaldstæð- inu. Félagsmálaráð hefur lagt til að tjald- stæðið við Þórunnarstræti verði ekki opn- að fyrr en 20. júní næstkomandi og staðfesti bæjarráð þá tillögu á fundi sínum í vikunni. Undanfarna daga hefur verið unnið við að girða umhverfis tjaldstæðið og stefnt að því að ljúka verkinu í lok næstu viku. Tjald- stæði skáta við Hamra hefur verið opið frá því um hvítasunnu. Tjaldstæðið opnað 20. júní Morgunblaðið/Kristján Girðing Unnið hefur verið að því að girða tjaldsvæðið við Þórunnarstræti af. Hrísey | Skrifað hefur verið undir vilja- yfirlýsingu um samstarf, sem miðar að því að úr jarðhitanum í Hrísey verði unnin öll orka sem þar er þörf á. Núna eru húsin á eyjunni hituð upp með hitanum, sem undir eyjunni er, en vonir standa til að þróa megi búnað sem framleiðir rafmagn úr honum og hugsanlega vetni á farartæki. Auk þess eru uppi hugmyndir um að í fjölnýtingu jarðhitans geti falist rekstur ylstrandar, sem gæti eflt ferðaþjónustuna í eyjunni. Jarðhitinn í Hrísey er svonefndur „lághiti“ sem gerir aðrar kröfur til búnaðar til raf- orkuframleiðslu en „háhiti.“ Vonast er til að sú þróun sem þetta samstarf gerir ráð fyrir geti nýst við svipaðar aðstæður ann- ars staðar, bæði hér á landi og erlendis. Þeir sem taka þátt í þessu verkefni eru Akureyrarbær, Norðurorka hf., auðlinda- deild Háskólans á Akureyri, LIH Consult- ing AS í Danmörku, ÍSOR hf., Exorka ehf. og Útrás ehf. Fjölnýting jarðhitans í Hrísey er hluti verkefnisins „Sjálfbært samfélag í Hrís- ey“, sem hleypt var af stokkunum í apríl 2003, með stuðningi iðnaðarráðuneytisins og umhverfisráðuneytisins. Ylströnd í Hrísey? ♦♦♦ Hrísey | Grunnskólinn í Hrísey og leikskólinn Smá- bær hafa fengið Grænfánann fyrir að hafa sýnt góða viðleitni og náð góðum árangri í verndun umhverfis og fyrir að við- halda markvissri stefnu í fræðslu um umhverfi og náttúru. Þetta eru fyrstu skólarnir á Norðurlandi sem fá þessa viðurkenn- ingu. Grænfáninn er umhverf- ismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverf- isstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar þess að hafa leyst fjölþætt verkefni sem efla vitund nemenda, kenn- ara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau efla þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tek- in sé ábyrg afstaða og inn- leiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. Fáninn er veittur til tveggja ára í senn. Grænfáninn í Hrísey
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.